07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2617 í B-deild Alþingistíðinda. (2292)

146. mál, umhverfismál

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Aðeins til að leggja áherslu á mikilvægi þessa máls fyrir fiskiðnað hér á landi og þá um leið atvinnumál víðs vegar og afkomu fiskverkunar vil ég geta þess að ég hef hér í höndum úttekt hjá einu fyrirtæki á Vesturlandi sem er studd rannsókn frá hendi Sölusambands ísi. fiskframleiðenda til þess að sannprófa nákvæmlega málið. Þessi úttekt náði yfir 600 tonn af saltfiski í vinnslu. Aukakostnaðurinn við að ormahreinsa þennan fisk var 4.4 millj. eða 3.38 kr. á kíló að jafnaði. Þessar tölur verða ekki véfengdar, þær eru studdar nákvæmri úttekt frá degi til dags á því tímabil sem þetta stóð. Þannig að hér sjá menn að það er ekkert smámál fyrir fiskvinnsluna og atvinnulífið í landinu í sambandi við sjávarútveg að þarna sé rétt á haldið.

Einnig liggur fyrir að frystihús á Vestfjörðum, í kjördæmi hv. 5. þm. Vestf., hafa sent frá sér töflur og upplýsingar um þennan kostnað á því svæði og skiptir hann milljónum króna. Og það sem gerir þetta mál enn alvarlegra en það að nú er sannað að hringormurinn er þekktur í nær öllum tegundum fisks sem veiddar eru á íslandsmiðum. Það er einnig áhyggjuefni. Þess vegna er brýn þörf á því að rétt sé staðið að þessum málum og að útrýming selsins sé skipulögð á raunhæfan hátt.