07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2630 í B-deild Alþingistíðinda. (2311)
177. mál, námsvistargjöld
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. 45. gr. laga nr. 68/1966 um iðnfræðslu hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Standi sveitarfélag ekki að iðnfræðsluskóla, skal það greiða námsvistargjald til þeirra skóla, sem nemendur úr sveitarfélaginu sækja. Sveitarfélag nemanda telst í þessu sambandi lögheimili þess atvinnurekstrar, er nemandinn stundar iðnnám við. Stundi nemandi nám við verknámsskóla iðnaðarins án þess að vera kominn á námssamning hjá meistara, skal lögheimilissveit nemandans greiða námsvistargjaldið.“
Í greininni segir líka:
„Menntmrn. ákveður árlega námsvistargjald að fengnum sameiginlegum tillögum þeirra sveitarstjórna, sem að rekstri viðkomandi skóla standa.“
Og síðan segir:
„Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, sbr. lög nr. 69/1962, annast uppgjör námsvistargjalds skv. þessari gr., milli þeirra sveitarfélaga, sem í hlut eiga hverju sinni, af framlagi sjóðsins til þess sveitarfélags, sem inna á greiðslu af hendi, enda hafi viðkomandi sveitarstjórn samþykkt greiðsluskyldu sína.“
Það er því ljóst að hér er um að ræða lagaheimild sem nær til nokkurs hluta náms en að öðru leyti þyrftu námsvistargjöld að vera samkomulagsatriði milli sveitarfélaga. Það er ætlan rn. að námsvistargjöld sem á yrðu lögð með slíku samkomulagi yrðu ekki látin bitna á nemendum heldur yrði þar algjörlega um samkomulag og uppgjör milli sveitarfélaganna að ræða.
Hinn 29. nóv. s.l. undirritaði ég bréf til borgarstjórans í Reykjavík um námsvistargjöld. Bréfið frá borgarstjóra var frá 4. okt. s.l. En í bréfi menntmrn. segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Skv. heimild í 45. gr. laga nr. 68/1966 um iðnfræðslu fellst þetta rn. á að námsvistargjöld í iðnnámi verði skólaárið 1983–84 8 500 kr. í bóklegu námi og kr. 13 650 í verklegu námi í Iðnskólanum í Reykjavík. Einnig er fallist á að þetta gjald verði skólaárið 1982– 83 5 100 kr. í bóklegu námi og 7 800 kr. í verklegu námi í skólanum. Rn. fellst á að námsvistargjald verði hið sama í iðnbrautum Fjölbrautaskólans í Breiðholti og í iðnnámi í Iðnskólanum í Reykjavík. Ekki er unnt að staðfesta námsvistargjald vegna annars en iðnnáms vegna skorts á lagaheimildum.“
Í þessu bréfi felst afstaða rn. með tilvísun til gildandi laga og túlkun rn. á gildandi lögum um þetta efni.