07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2633 í B-deild Alþingistíðinda. (2314)

416. mál, staða heilsugæslulæknis á Eskifirði

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Með breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu sem gildi tóku á s.l. sumri var ákveðið að ný Hl stöð yrði á Grundarfirði en þar var áður H stöð, H2 stöð yrði á Eskifirði en þar var áður H1 stöð, H1 stöð yrði á Þorlákshöfn en þar var áður H stöð og H1 stöð yrði í Grindavík en þar var áður H stöð.

Heilbrrn. fór fram á leyfi til að auglýsa þessar stöður og að kostnaður við þær yrði tekinn inn í fjárlög. En víð afgreiðslu fjárlaga fyrir þetta ár fengust ekki stöðuheimildir fyrir læknisstöðum á þessum nýju heilsugæslustöðvum og situr Eskifjörður því við sama borð og hinar stöðvarnar sem ég nefndi að þessu leyti. Alþingi hefur ekki veitt fjárveitingu til stöðvarinnar og er það í samræmi við það meginmarkmið sem ríkisstj. setti sér að fjölga ekki ríkisstarfsmönnum á þessu ári. Allar stöðuheimildir heilsugæslunnar í landinu voru notaðar á s.l. ári og ég geri ráð fyrir að það sama verði upp á teningnum á þessu ári þannig að um tilfærslur milli staða getur því ekki orðið að ræða.

Svar mitt við fsp. er því það að heilbrrn. getur ekki auglýst stöðu við H2 stöð á Eskifirði fyrr en stöðuheimild hefur fengist í fjárlögum. Þá mun ekki standa á rn. að auglýsa stöðuna. Hvort sá læknir verður síðar með búsetu á Reyðarfirði er mál sem enn ekki hefur verið tekin afstaða til en mun ekki verða látið standa á þegar heimild er fyrir hendi.

Einnig er eðlilegt í sambandi við þetta mál að þm. séu minntir á að til að hægt sé að breyta H stöð í H1 stöð og svo vel sé þá H1 stöð í H2 stöð þarf yfirleitt að auka húsnæði heilsugæslunnar á þessum stöðum og til þess þarf fjárveitingar þannig að starfsaðstaða skapist fyrir starfsliðið sem til viðbótar kemur. Ekki er því nóg að fá stöðuheimildir, einnig þarf að fá fjárveitingar til að bæta aðstöðu, breyta húsnæði eða byggja nýtt.

Þá þarf einnig að sjá læknum heilsugæslunnar fyrir íbúðarhúsnæði. Á undanförnum árum hefur fé sem runnið hefur til byggingar læknisbústaða og annarra íbúða fyrir starfslið heilbrigðisþjónustunnar verið mjög af skornum skammti. Búseta nýs læknis við H2 stöð á Eskifirði yrði hugsanlega að ákvarðast af því hvar hægt væri að afla honum húsnæðis.