07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2634 í B-deild Alþingistíðinda. (2316)

416. mál, staða heilsugæslulæknis á Eskifirði

Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. svörin. Það kemur skýrt fram í máli hans að aðalhindrunin í vegi þess að í þessar stöður sé ráðið sé það meginmarkmið hæstv. ríkisstj. að fjölga í engu stöðum í heilbrigðiskerfinu. Mér skilst að hversu nauðsynlegar og sjálfsagðar sem þær eru skuli það ekki gert.

Ég varð þess var að fjárlagatalan í þessum lið hækkaði nokkuð milli 2. og 3. umr. vegna þess að einhverjar stöður höfðu komist inn á s.l. ári. Þeim hefur kannske verið laumað inn, kannske hafa það verið eðlilegar stöður sem var sagt að hefði orðið að taka inn við 3. umr. fjárlaga af þeirri ástæðu að það hefði verið óumflýjanlegt, það hefði þegar verið búið að ráða í þær stöður. Ekki hafði mér hugkvæmst að þrýsta á þessa stöðu á þann veg að henni yrði laumað þannig fram hjá og síðan komið á eftir og sagt að með þeim hætti yrði að sjá fyrir fjármagni til hennar. En þannig mun hafa verið um einhverjar stöður því þá skýringu fékk ég á þeirri hækkun sem varð á framlaginu til reksturs heilsugæslustöðva milli 2. og 3. umr. og hafa þá einhverjir örugglega notið þar góðs af. Ég reikna þá kannske helst með því að það hafi verið hér á þessu þéttbýlissvæði sem það hefur verið án þess að vita það nákvæmlega.

Ég hlýt að leggja áherslu á að á þessu fáist lausn sem allra fyrst. Ég átti samtal við heilsugæslulækninn í morgun og hann ítrekaði enn þörfina á þessu, lýsti t.d. fyrir mér því vandræðaástandi sem nú er þegar loðnuflotinn siglir þarna í höfn og það annríki sem af því leiðir. Mér segir svo hugur um þrátt fyrir framboðið á læknum að ef heilsugæslulæknir mundi hætta nú, sem horfur eru á, yrði ekki auðvelt að fá einn mann til að gegna þessari stöðu og því óttast ég um framhaldið. Við höfum af því mjög slæma reynslu þegar menn eru að koma og fara og stöðugleiki er enginn í þessu. Það veit ég að hæstv. ráðh. skilur mæta vel.

Ég tek það skýrt fram að ég er sammála hæstv. ráðh. í því að við þurfum einnig að huga að því að viðunandi starfsaðstaða sé sköpuð handa því fólki sem til viðbótar er ráðið í heilsugæslukerfinu. Varðandi húsnæðið vill svo til að heilsugæslulæknirinn á Eskifirði á sitt húsnæði og íbúð heilsugæslulæknisins þar í læknisbústaðnum stendur auð þannig að ekkert er því til fyrirstöðu í dag að annar heilsugæslulæknir fái húsnæði á Eskifirði. Það er hins vegar ekki sú æskilega framtíðarskipan sem ég tel á þessu máli því að ég tel rétt að á stöðum þar sem aðeins 15 km eru á milli séu læknarnir búsettir hvor á sínum staðnum þótt þeir vinni við sömu heilsugæslustöðina og heilsugæslusel þá á hinum minni stað.

Ég segi það hér að þörf er mikilla úrbóta á aðstöðunni bæði á Eskifirði og Reyðarfirði. Á sínum tíma var reistur myndarlegur læknisbústaður á Eskifirði. Hann hefur verið látinn duga vegna þess að við þm. Austurl. höfum séð brýnni þörf á því og meiri ástæðu til þess að byggja upp heilsugæslustöðvar annars staðar á svæðinu. En nú er svo komið þeirri uppbyggingu að næsta verkefni á eftir Djúpavogi hlýtur að vera heilsugæslustöð á Eskifirði með viðunandi aðstöðu þar. Kannske ekki af þeirri gerð sem við sjáum því miður allt of mikið af, heilsugæslustöðvar sem eru í raun og veru allt of stórar og þurfa ekki að vera svona stórar og við berum auðvitað allir vissa ábyrgð á að hafa haft þannig — og síðan vel búið heilsugæslusel á Reyðarfirði ekki síður. Það bíður betri tíma en við þm. Austurl. höfum í huga að taka þessi verkefni fyrir um leið og við höfum til þess fjárráð á fjárlögum sem ég hygg að geti orðið með skynsamlegu áframhaldi og skynsamlegum fjárveitingum þegar á árinu 1985.