07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2635 í B-deild Alþingistíðinda. (2317)

416. mál, staða heilsugæslulæknis á Eskifirði

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þrátt fyrir mikla fjölgun lækna virðast þeir nú ekki vera áhugasamir að sækja um öll héruð því nýlega voru auglýst þrjú héruð þar sem enginn læknir sótti um. En þau eru fámenn og afskekkt flest en þó er alveg sérstaklega í einu af þessu héraði vel búið að lækni og mjög sæmileg aðstaða við heilbrigðisþjónustu. Ekki mun standa á mér í þessum efnum ef fjárveitingar eru fyrir hendi að uppfylla skilyrði laga. Hins vegar vitum við að Alþingi er oft fljótt að samþykkja lög og oft tekur æði langan tíma að framfylgja þeim.

Mér finnst rétt í þessu tilfelli að segja örfá orð um þróun þessara mála frá því að lög um heilbrigðisþjónustu tóku gildi í ársbyrjun 1974. Þá voru 55 læknishéruð í landinu og heimild fyrir um 55 læknum en að jafnaði tókst aðeins að manna 50 héruð og tæplega þó. Stöður hjúkrunarfræðinga voru skv. eldri lögum 6 í héruðum utan heilsuverndarstöðva. Á 10 ára tímabili hefur breytingin orðið sú að læknar voru í árslok 1983 93, hjúkrunarfræðingar voru 77 og ljósmæður 18. Þessar tölur sýna ljóslega hvaða áhersla hefur verið lögð á að manna heilsugæslu í dreifbýtinu því mestur hluti þessa starfsliðs er á heilsugæslustöðvum sem hafa verið byggðar eða endurbyggðar úti á landi. Auk þessa hefur starfsliði heilbrigðisþjónustu utan Reykjavíkur fjölgað mjög verulega á öðrum sjúkrastofnunum en heilsugæslustöðvum þannig að starfsemin hefur í enn meira mæli færst nær fólkinu en áður var.

Eins og ég sagði áðan voru móttökur lækna yfirleitt þar sem þeir voru búsettir áður. Nú eru læknismóttökur á 74 stöðum utan Reykjavíkursvæðisins og á öllum þessum stöðum er að jafnaði einhver heilbrigðisstarfsmaður starfandi daglega. Til að ákvæðum laga um heilbrigðisþjónustu sé fullnægt þarf að fjölga verulega stöðum í heilsugæslu, bæði utan Reykjavíkur en ekki síður í Reykjavík sem vissulega hefur orðið á eftir við framkvæmd laga um uppbyggingu heilsugæslunnar. Alþingi gerði einnig ráð fyrir þegar lögin voru sett að dreifbýlið nyti forgangs sem það hefur að jafnaði gert síðan lögin tóku gildi.