07.02.1984
Sameinað þing: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2636 í B-deild Alþingistíðinda. (2318)
416. mál, staða heilsugæslulæknis á Eskifirði
Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):
Herra forseti. Svo sannarlega skal ég taka undir með hæstv. heilbrrh. um að átakið í heilsugæslumálunum í framhaldi af þeirri löggjöf sem sett var um heilbrigðisþjónustu hefur orðið til þess m.a. að tryggja búsetuna út um land. Hér er nefnilega um eitt þýðingarmesta byggðamálið að ræða. Einmitt þessi uppbygging sem hefur orðið á heilsugæslustöðvunum út um land og sá forgangur sem þau mál hafa blessunarlega fengið hefur tryggt að fólk hefur laðast til þjónustu á þessum stöðvum miklu frekar en áður var. Myndast hefur festa og öryggi í þessum málum miklu betur en áður var og fátt orðið drýgra til að tryggja fólkinu öryggi og betri búsetu á þessum svæðum.