26.10.1983
Efri deild: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í B-deild Alþingistíðinda. (232)
8. mál, ráðstafanir í sjávarútvegsmálum
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég kem nú ekki upp í ræðustólinn enn þá einu sinni til andsvara um þá hugmynd mína sem margrædd er og ég gat um í Vestmannaeyjum fyrst. Það er alls ekki á nokkurn hátt hártogun að menn skilja bara hreint ekki eða vilja ekki skilja hvað við er að etja. Mér er næst að halda að það sé skýringin, eða að menn geti ekki skilið það. Ég er nú að taka við stóru fyrirtæki sem hæstv. fyrrv. fjmrh. rak. Ég hef talað um að ég vonist til þess að verða vondur fjmrh. og ég hef hælt honum fyrir að vera góður fjmrh. Það út af fyrir sig skýrir kannske mikið. Ríkissjóður, sem er með á annan milljarð dollara í eyðslutánum, má segja, er að komast í sama vanda og sjávarútvegurinn, sem haldið hefur uppi ríkisrekstrinum, á sama hátt og endataus lán til sjávarútvegs eru að koma honum í vanda og yfirdrætti í peningastofnunum, eins er það með ríkissjóð og Seðlabankann. Það er hægt að finna hliðstæðu þar.
Svo kemur hæstv. fyrrv. ráðh. og kveðst líta svo á, að útgerðin geti vel staðið undir sér rekstrarlega, það séu sveiflur í sjávarútvegi. Það er atveg rétt. Þó að ríkissjóður hafi oft hlaupið undir bagga með rekstrarlánunum tel ég rangt að gera það. En ég veit ekki betur en tveim dögum áður en virðulegur þm. fór úr embætti fjmrh. hafði hann einmitt veitt í gegnum Ríkisábyrgðasjóð lán, sem ríkissjóður verður að taka á sig, að upphæð 19 millj. kr. til þessa sama fyrirtækis, Þormóðs ramma. Það er ekkert spursmál um reksturinn. Ég er að tala um fjárfestingarlán og rekstur saman, ég er að tala um byrðina sem hvílir á fyrirtækinu. Fyrirtækið stendur ekki undir því. Það má segja að eignalega, ef það er gert upp, standi Þormóður rammi ekkert illa og alls ekki verr en mörg önnur fyrirtæki. En hver er kaupandinn? Það er ekki nóg að fá matsmann og láta þá reikna allt út miðað við byggingarkostnað og segja: Þetta mikið efni er komið inn, þetta er allt splunkunýtt, þetta eru vinnulaunin og þetta kostar fyrirtækið. Þetta hljótum við að fá fyrir það. Það er bara ekki svona einfatt, ef það er enginn kaupandi að því, að fá það verð fyrir.
Ég vil leiðrétta annan misskilning sem er mikill og rangur og ósanngjarn. Landsbanki Íslands fullyrðir að það hafi verið inni í uppgjöri milli Landsbankans og Útvegsbankans að Útvegsbankinn taki viðskipti af herðum Landsbankans á Siglufirði. (RA: Það segir Landsbankinn.) Það segir Landsbankinn. Ég vil hér með segja: Það er rangt. Það var gerður listi yfir þau fyrirtæki og þær bankastofnanir sem Landsbankinn átti að yfirtaka. Ég segi bankastofnanir, vegna þess að þeir settu það skilyrði að þeir fengju útibú Útvegsbankans á Seyðisfirði í kaupunum og þeir fengu það. Og þessir fundir, sem voru tveir með Seðlabankanum sem millilið milti Landsbankans og Útvegsbankans, voru bókaðir fundir, haldnir í Seðlabankanum og þar var birtur listi yfir þau fyrirtæki sem kom til álita að Landsbankinn tæki yfir. En Þormóður rammi eða Siglufjarðarfyrirtækin eru ekki þar. Það er best að upplýsa það í eitt skipti fyrir öll.
Aftur á móti voru það mín rök, þegar ég var kosinn af Alþingi sem bankaráðsmaður og síðan skipaður af fyrrv. hæstv. viðskrh. sem bankaráðsformaður, að Útvegsbanki Íslands, eins og hann stóð illa, gæti ekki haft viðskipti við þau sjávarpláss þar sem hann hefði ekki aðgang að sparifé fólksins en aðrir bankar og aðrar peningastofnanir voru með útibú. Þess vegna fór nú þessi uppstokkun af stað. En síðan hefur Landsbankinn notað þessi sömu rök mín sér til framdráttar. Þetta vildi ég að kæmi hér greinilega fram.