07.02.1984
Sameinað þing: 45. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2641 í B-deild Alþingistíðinda. (2323)
124. mál, stuðningur við íþróttahreyfinguna
Flm. (Helgi Seljan):
Herra forseti. Á þskj. 159 hef ég leyft mér ásamt hv. 4. þm. Vesturl. og hv. 4. þm. Norðurl. e. að flytja svohljóðandi till. til þál. um skipulagðan stuðning hins opinbera við ungmenna- og íþróttahreyfinguna:
„Alþingi ályktar að feta ríkisstj. að láta undirbúa og semja löggjöf um skipulegan stuðning hins opinbera við ungmenna- og íþróttahreyfinguna. Skal í því sambandi haft náið samband við fjöldahreyfingar á þessu sviði svo sem Ungmennafélag Íslands og Íþróttasamband Íslands.
Meðal áhersluatriða í löggjöf þessari skulu vera:
1. Sérstök rækt verði lögð við almenningsíþróttir og hvernig laða megi sem flesta til líkamsræktar.
2. Samstarf skóla og félagasamtaka um eflingu íþrótta verði stóraukið.
3. Hvers konar íþróttastarfsemi verði skipulega nýtt í þágu baráttunnar gegn vímuefnaneyslu.
4. Tekið verði upp ákveðnara og skipulegra form þess fjárhagsstuðnings sem hið opinbera veitir til íþróttastarfsemi.
5. Tryggð verði sem best nýting þess fjármagns sem veitt er til íþróttahreyfingarinnar í því skyni að stórauka þátttöku almennings og þá ungs fólks alveg sérstaklega.“
Þar sem mér er kappsmál að þessi till. komist til n. flyt ég framsögu fyrir henni nú þó að fáliðað sé í salnum, eins og oft vill verða á þessum tíma. En vissulega hefði verið forvitnilegt að fá nokkra umræðu um stöðu ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar og stuðning hins opinbera við hana. Ég veit hins vegar að allir hv. þm. þekkja þessi mál býsna vel, hver frá sínum stað, vita um gildi þess arna, og ég veit að skilningur á þessu máli er mikill og góður hér á Alþingi.
Í grg. er vitnað til ýmissa þeirra forustumanna sem ég þekki best í ungmenna- og íþróttahreyfingunni fyrir austan, þar sem tekist hefur með skipulegu átaki að hefja ungmenna- og íþróttahreyfinguna úr býsna mikilli deyfð, sem hún var í á tímabili, í það að nú er hún mjög virk og öflug fjöldahreyfing, bæði á landsmælikvarða í atmennum íþróttum og ekki síður í almenningsíþróttum og nýjum greinum sem menn hafa þar tekið upp.
Ég vísa til grg. um þá nauðsyn sem á því er að málefni þessarar hreyfingar séu tekin skipulega til meðferðar á þann hátt, ekki til ofstjórnar eða yfirráða hins opinbera á þessari hreyfingu heldur til verulegs stuðnings og ávinnings fyrir þessar hreyfingar, sem eru sérstaklega Íþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands.
Ég ætla að láta mér nægja, með leyfi hæstv. forseta, að vitna í kjallaragrein í DV frá s.l. föstudegi eftir formann UÍA, Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands, Hermann Níelsson, sem er skrifuð beinlínis í framhaldi af því að málefni ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar er nú til meðferðar á Alþingi Íslendinga. Af því tilefni vekur Hermann Níelsson, hinn mikli áhugamaður okkar eystra um þessi mál, athygli á eftirfarandi, svo ég vitni orðrétt í hans mál, með leyfi hæstv. forseta:
„Íþróttalög voru síðast endurskoðuð af Alþingi fyrir tæpum þrjátíu árum eða 7. apríl 1956. Þau skiptast í sex kafla og fjalla m.a. um: stjórn íþróttamála í landinu, íþróttasjóð, íþróttir í skólum, réttindi til íþróttakennslu, frjálst íþróttastarf og ýmis ákvæði. Lögin í sjálfu sér hafa verið ágæt og þjónað sínum tilgangi, en þróun þjóðfélagsins hefur á fyrrnefndu tímabili verið svo ör að endurskoðun og aðlögun hlýtur að vera tímabær.
Það er öllum ljóst að starf ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar frá upphafi hefur verið þjóðinni dýrmætt. Svo mun einnig verða um ókomin ár og jafnvel enn mikilvægara eftir því sem tímar líða. Stór hluti þjóðarinnar er félagsbundinn í íþróttahreyfingunni og þeir eru fáir sem ekki tengjast starfi hennar á einhvern hátt.“
Síðan kemur kafli um fræðslustarf þar sem Hermann segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Mikill meiri hluti barna og unglinga í landinu verður fyrir uppeldisáhrifum við leik og störf í íþróttafélögunum einmitt á mikilvægu mótunarskeiði einstaklingsins. Það er því brýnt að hreyfingunni verði gert kleift að halda úti góðu fræðslu- og menntunarstarfi, sérstaklega fyrir væntanlega leiðbeinendur sem margir hverjir eru fyrirmyndir æskufólks. Margt væri hægt að bæta og efla ef fjárhagslegur grundvöllur væri fyrir hendi. Ég vil nefna hér eitt dæmi um málaflokk sem mikið er til umræðu þessa dagana. Með átaki í fræðslumálum leiðbeinenda væri hægt að samræma aðgerðir gegn notkun og útbreiðslu ávana- og fíkniefna.
Greinarhöfundur dvaldist við nám í Svíþjóð fyrir tveimur árum og varð vitni að jákvæðri tilraun í sveitarfélaginu Lidingö í Stokkhólmi. Þar tóku félögin sig saman og héldu fræðslufundi og námskeið fyrir alla þjálfara barna og unglinga í sveitarfélaginu. Var þar rætt um áfengisneyslu unglinga, orsakir og afleiðingar. Síðan ákváðu leiðbeinendurnir (þjálfararnir) að ræða málin við nemendur sína og reyna að finna leiðir til áhrifa og úrbóta. Haldnir voru fundir einu sinni í mánuði þar sem leiðbeinendurnir báru saman bækur sínar og sögðu frá fenginni reynslu... Því miður hef ég ekki upplýsingar um árangur í tölum, en það er þó alveg víst að viðleitnin var af hinu góða og að mínu áliti líkleg til árangurs.“
Síðan segir í grein Hermanns Níelssonar, með leyfi forseta:
„Íþróttir eru almenningseign og hið frjálsa íþróttastarf landsmanna óháð stjórnmálum, trúarbrögðum og kynþáttamismun. Mestu skiptir því að málefnið, sem svo mörgum er kært, fái þá meðferð að því verði ekki blandað inn í pólitískar deilur.
Allir íþróttaunnendur hljóta að fagna framkominni till. sem reyndar er eins opin og hugsast getur þannig að í raun er aðeins verið að gefa tækifæri til aðgerða. Líklegt verður að teljast að till. verði vísað til n. sem síðan leitar umsagnar a.m.k. ÍSÍ, UMFÍ og íþróttanefndar ríkisins c/o íþróttafulltrúa. Þar með væri tryggt að sjónarmið þeirra aðila sem gerst þekkja til nái fram að ganga. Þá er líklegt að ýmsir ágætir þm. hafi ýmislegt gott til málanna að leggja.
Sem formaður héraðssambands hvet ég félaga mína í öðrum landshlutum til að taka málið til meðferðar og gera þær ráðstafanir sem þeir telja réttar og nauðsynlegar málefninu til framdráttar.“
Í lok greinar sinnar segir svo Hermann Níelsson:
„Í fyrsta lagi er það fræðslustarfið sem nær inn á öll önnur svið og er grundvöllur árangursríks starfs í þágu allrar þjóðarinnar.
Í öðru lagi er um að ræða starf að íþróttum og útivist fyrir almenning. Báðir fyrrnefndu þættirnir kæmu almennu félagsstarfi og afreksíþróttum til góða.“
Hann endar svo sína grein á hvatningu til þm. um að þeir sýni fordæmi með því að trimma sjálfir og byggja þannig upp aukið starfsþrek og heilbrigði líkama og sálar:
„Kyrrsetustarfið brýtur niður þrek fólks ef ekki er séð fyrir meðfæddri og líffræðilegri hreyfiþörf mannslíkamans.“
Þessum tilmælum kem ég á framfæri bæði til mín og annarra. En hann lýkur grein sinni á því að hvetja til samstöðu um eflingu ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. Ef svo mætti verða að þessi till. yrði til nokkurs liðsauka við þessa hreyfingu er hún flutt og ég vísa aftur til grg. sem byggist að miklu leyti á rökstuðningi framkvæmdastjóra UÍA í mörg ár, Sigurjóns Bjarnasonar, sem má segja að hafi með miklum dugnaði hafið ungmenna- og íþróttahreyfinguna á Austurlandi til þess vegs sem hún vissulega hefur náð í dag, en sem segir jafnframt í grg. sinni að betur megi ef duga skuli og það sem fyrst og fremst vanti sé enn frekari uppörvun og enn frekari stuðningur hins opinbera við þau fjölmörgu mál sem þessi hreyfing starfar að til blessunar fyrir land og lýð.
Ég óska svo eftir því, herra forseti, að þessari till. verði að loknum þessum hluta umr. vísað til hv. allshn.