08.02.1984
Neðri deild: 44. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2725 í B-deild Alþingistíðinda. (2345)

140. mál, lántaka vegna flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Við fyrri hluta 1. umr. þessa máls fyrir viku beindi ég ítrekað fsp. til hæstv. fjmrh., sem er flutningsmaður málsins, en því miður án árangurs. Hér er verið að leita lagaheimildar til erlendrar lántöku, eins og menn hafa nefnt, rúmlega 600 millj. kr. til margra ára. Hér er verið að leita eftir heimild til að taka erlent lán fyrir hinum íslenska kostnaðarhluta við þessar framkvæmdir. Af því tilefni vildi ég spyrja í fyrsta lagi: Hver er hinn raunverulegi innlendi kostnaður við þessa mannvirkjagerð? Hversu stór hluti — þá er ég eingöngu að tala um hlut Íslendinga í þessum kostnaði — er raunverulega innlendur kostnaður, innlend vinnuaflsnotkun, innient byggingarefni o.s.frv., og hversu stór hluti af þessu er óhjákvæmileg gjaldeyrisnotkun vegna innfluttra aðfanga?

Ég fékk því miður engin svör við þessum spurningum, en mér finnst þetta varða miklu varðandi afstöðu til þessa máls. Hér áður fyrr var sú þumalfingursregla viðhöfð að það ætti að stefna að því að taka ekki erlent lán við innlenda mannvirkjagerð eða opinberar framkvæmdir umfram það sem væri raunveruleg gjaldeyrisnotkun við viðkomandi framkvæmdir, fremur ætti að stefna að því að afla fjár á innlendum lánsfjármarkaði ef þörf væri á lántöku fyrir hinum innienda kostnaðarhluta.

Í annan stað er rétt að minna á að hæstv. ráðh. marglýsa því yfir — koma hér varla í ræðustól án þess að lýsa því yfir — að það sé eitt meginstefnumark núverandi ríkisstj. að snúa baki við óráðsíu fyrrv. ríkisstj. og stöðva erlenda skuldasöfnun, sem nú þegar er komin umfram hættumörk, sem skilgreinast af því hvað geti samræmst áframhaldandi efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Ég vek athygli á því að við erum ekki að tala um lánsfjáröflun til eins árs. Við erum að tala um erlenda lánsfjáröflun til að standa undir kostnaði Íslendinga við þessa framkvæmd til fimm ára. Nú svarar ráðh. því gjarnan til að því er þetta mál varðar að efnahagsástandið sé hér svo slæmt, eins og dæmin sanna, að þess sé ekki kostur á þessu ári að afla innlends lánsfjár. Í því efni rifja menn það upp að samkvæmt fjárlögum þessa árs er ríkissjóður rekinn með halla, hallareksturinn er fjármagnaður með yfirdráttarlánum úr Seðlabanka, og samkv. lánsfjárlögum, sem enn er ekki lokið við að afgreiða, er þegar komið að þeim hættumörkum, þ.e. að erlend skuldasöfnun sé 60% af þjóðarframleiðslu, sem ríkisstj. hefur skilgreint svo að fram yfir þau mörk vilji hún ekki fara. Hæstv. fjmrh. hefur auk heldur áréttað það oftar en einu sinni að verði farið yfir þau mörk muni hann yfirgefa stólinn og viðurkenna að honum hafi mistekist.

Nú neitar því enginn að efnahagsástand Íslendinga á árinu 1984 er slæmt. Það á sér margar skýringar og það á sér langan aðdraganda. Hins vegar hlýtur markmiðið með aðgerðum ríkisstj. að vera að bæta þetta ástand. Ég á bágt með að trúa því að því sé slegið föstu tvö, þrjú til fjögur ár fram í tímann að efnahagsástandið geti ekki farið batnandi. Þess vegna er það, að þó að útilokað kunni að vera að afla innlends lánsfjár fyrir kostnaðarhluta okkar á þessu ári er óþarfi að slá því föstu að svo þurfi að vera um næstu ár. Þess vegna er spurningin: Má ekki láta nægja að þessu sinni að leita heimildar til að afla lánsfjár fyrir kostnaðarhlutdeild okkar á þessu ári, en hafa það a.m.k. opið að með batnandi efnahag gætum við reynt á næstu árum að fjármagna okkar hlut fremur með innlendu lánsfjármagni?

Þetta er sá almenni rökstuðningur sem fylgir mínum spurningum. En ég árétta spurningarnar. Þær eru:

Úr því að málið er svona vel undirbúið og það liggja fyrir nákvæmar kostnaðaráætlanir og það liggja jafnvel fyrir drög að einhvers konar arðsemismati á starfrækslu flugstöðvarinnar, þegar þar að kemur, er ekki hægt að fá upplýsingar um hvað telst óhjákvæmilega erlendur kostnaður og að hve miklu leyti er hér um að ræða innlendan kostnað, ekki bara í ár heldur á næstu árum? Og þá í framhaldi af því: Hvað hefur hæstv. utanrrh. um þetta að segja úr því að hæstv. fjmrh. gat ekki svarað þessu? Ef hann horfir næstu ár fram í tímann, telur hann að það kynni að vera fýsilegur kostur að auka notkun innlends lánsfjármagns og innlendrar lánsfjármögnunar varðandi okkar hlut í þessum framkvæmdum? Ég vona eindregið að hæstv. utanrrh. sjái sér fært að svara þessum fsp.

Að öðru leyti örfáar athugasemdir í tilefni af ræðu hv. þm. Geirs Gunnarssonar áðan.

Meðan ég hlustaði á ræðu hans vaknaði sú spurning í hugskoti mínu hvenær sú stund kynni að renna upp í íslenskri umræðu um samskipti við erlendar þjóðir að hægt væri að ræða ágreiningsmál af þessu tagi án þess, í hvert einasta skipti sem menn opna munninn, að brigsla þeim meiri hluta þjóðarinnar sem er á annarri skoðun en þeir Alþb.-menn í utanríkismálum og í afstöðunni til samvinnu við önnur ríki um hugarfar landráðamanna og þjóðníðinga.

Hv. þm. nefndi að þessi framkvæmd væri alvarleg storkun við kjör láglaunafólks á Íslandi og staðfesting á því að þær upplýsingar sem stjórnvöld byggja á um efnahagsafkomu okkar væru mestan part sennilega lygi og uppspuni. Hann nefndi dæmi um framferði ráðh., sem ég skal seinastur manna verða til þess að réttlæta, þar sem þeir tvöfalda kannske kaup sitt með afslætti í bílaviðskiptum sínum á sama tíma og þeir flytja ræður sínar um nauðsyn þess að herða sultarólina. — En af þessu tilefni vil ég þó nefna eitt: Láglaunafólk á Íslandi hefur fyrr verið í vanda statt. Það er ekki nýtt. Það gerðist ekki eftir 1. júní á fyrra ári að það væri sérstakt og alvarlegt vandamál sem varðaði lágt kaup, lélega afkomu þess hluta sem verst hefur kjör á Íslandi. Það er staðreynd að kaupmáttur kauptaxta hefur farið minnkandi á Íslandi frá árinu 1978. Það er staðreynd að enginn einn hópur í íslensku þjóðfélagi hefur verið eins sárt leikinn af stjórnlausri óðaverðbólgu og það fólk sem verst hefur kjörin á Íslandi. Það er ástæða til að rifja upp þau ummæli fyrrv. þm. og andlegs leiðtoga Alþb., fyrrv. ráðh. Magnúsar heitins Kjartanssonar, þegar hann sagði að óðaverðbólgan væri sjálf gróðamyndunaraðferð braskaranna á Íslandi. Það er spurning hvort það er tilviljun að verðbólga á Íslandi hefur aldrei náð þvílíku hámarki ár eftir ár en eftir stjórnarþátttöku Alþb. Með hverri nýrri ríkisstjórn sem Alþb. hefur tekið þátt í eru fyrri verðbólgumet slegin. Og það er ástæða til að minna á að Alþb. hefur verið aðili að stjórn landsins allt frá árinu 1978 meira og minna samfellt og árangur þess í efnahagsmálum, árangur þess í kjaramálum, árangur þess við að draga úr hvort heldur er launamisrétti eða félagslegu misrétti, sem bitnaði hvað harðast á láglaunafólkinu, er mjög harður dómur um þennan flokk og bendir til þess að það sé sitt hvað hástefndar yfirlýsingar þeirra um umhyggju fyrir þessu fólki og hins vegar árangurinn í verki. Það mætti kannske nefna orðið hræsni í þeim efnum. (Gripið fram í: Hvað er á dagskrá, herra forseti?)

Þessi orð eru sögð að gefnu tilefni, af því tilefni að hv. þm. Geir Gunnarsson sagði að þeir menn sem á annað borð væru fylgjandi þeirri framkvæmd sem heitir bygging flugstöðvar á Íslandi, þrátt fyrir jafnvel skiptar skoðanir um hvernig hún er fjármögnuð, gerðu sig seka um sérstaka storkun gagnvart láglaunafólki á Íslandi og reyndar væri þessi afstaða að því er varðaði samskiptin við Bandaríkjamenn þess eðlis að hún væri storkun við þjóðerniskennd Íslendinga. Ég er með öðrum orðum, herra forseti, að vísa þessum svigurmælum á bug og bið hv. alþm. og samflokksmenn hans að líta sér nær. Ef við erum að tala um t.d. efnahagslegt sjálfstæði Íslendinga og getu þessa fámenna lýðveldis til að lifa af í hörðum heimi mundi ég halda fram þeirri skoðun að þeir menn sem eftir mörg ár í ríkisstjórn á Íslandi bera á því höfuðábyrgð að þessi þjóð skuldar nú um 60% af þjóðarframleiðslu sinni árlega, að greiðslubyrði erlendra skulda er að nálgast fjórðu hverja gjaldeyriskrónu, að einungis um helmingur af þeim gjaldeyri sem aflast nú er nothæfur til almennra nota, einfaldlega af þeirri ástæðu að fjórðungur er veðsettur vegna afborgana og vaxta af fyrri lánum og einn fjórðungur er hreinlega nauðsynlegur vegna aðfanga íslenskra útflutningsatvinnuvega, þeir menn sem sjálfir skilja eftir sig slíkan feril ættu að tala varlega um það, þó að ágreiningur sé í utanríkismálum, að þeir sem eru á öndverðum meiði í þeim málum geri sig ævinlega seka um, ef ekki hugarfar landráðamannsins, þá eitthvert ölmusuhugarfar eða betlihugarfar gagnvart samstarfsþjóðum okkar. Staðreyndin er sú, að sennilega hefur íslensku þjóðerni ekki verið hættara og getu okkar til að halda uppi sjálfstæðu þjóðríki heldur en eftir það algera stjórnleysistímabil sem ríkt hefur í þessu landi á undanförnum árum, ekki hvað síst fyrir tilverknað þjóðfrelsishreyfingarinnar sem kallar sig Alþb.