09.02.1984
Sameinað þing: 46. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2745 í B-deild Alþingistíðinda. (2364)
164. mál, kennsla í Íslandssögu
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það er ánægjulegt að Íslandssagan skuli í annað sinn vera komin hér inn í sali þingsins og menn telji það nokkru skipta hvernig að sögukennslu er staðið í landinu.
Vissulega er það rétt, sem hér kom fram hjá hv. 10. landsk. þm., að Jónas Hallgrímsson hafði mótandi áhrif í stjórnmálalegu tilliti, ekki svo lítil áhrif. Og ég man ekki betur en að Íslandssagan sem ég lærði legði áherslu á áhrif Fjölnismanna.
Ég hygg að það þurfi að koma hér nokkuð skýrt fram hvernig Íslandssögu menn vilja kenna. Hver eru markmið hennar? Persónulega var ég mjög sáttur við þá skýringu sem hæstv. menntmrh. gaf í svari sínu á sínum tíma um markmið Íslandssögukennslunnar. Mér er ljóst að e.t.v. telja einhverjir að sögukennslunni eigi fyrst og fremst að beina inn á þá braut að hún undirstriki hið stéttskipta þjóðfélag, að hún undirstriki að kjör manna hafa alltaf verið misjöfn. Þetta er einn af þeim þáttum sem vissulega er rétt að gefa gaum. En hinu mega menn engu að síður gjarnan gera sér grein fyrir, að um allar aldir var jafnræðið á milli hinna ríku og snauðu mjög oft áberandi. Skipstjóri slapp ekki lifandi ef skipið fórst. Hann fórst með því. Foringjar í pólitískum átökum í þessu landi sátu ekki heima og tefldu fram sínu liði. Þeir féllu undir vopnum eins og þeirra stuðningsmenn. Þegar hungur geisaði í þessu landi svarf ekki aðeins að kotungunum á Suðurlandi, heldur að biskupsstólnum einnig. — Ég held nefnilega að menn hafi gleymt því þrátt fyrir allt, þeir sem hafa tekið upp þann vopnaburð að hér eigi fyrst og fremst að boða stéttskipt þjóðfélag, að Íslendingar voru í mörgum kringumstæðum á einum bát. Og annaðhvort hélt sá bátur velli og náði landi eða hann fórst með manni og mús.
Ég skil ekki hvers vegna menn vilja gera lítið úr því að það eigi að vera eitt af verkefnum sögukennarans að efla trúna á landið. Það er sagt að stjórnmálamenn eigi að taka að sér að efla trúna á landið. Eitt af grundvallarverkefnum sögukennarans á að vera að benda á að þegar Íslendingum farnaðist illa í gegnum aldirnar voru það mennirnir sem brugðust en ekki landið. Það var ekki landið sem brást 1262, það voru mennirnir. Og hver sögukennari sem kemur sér undan því að taka á þessum punkti bregst að mínu mati því verkefni sem honum var ætlað að framkvæma.
Ég ætla ekki að fara að flytja hér langa ræðu um Íslandssögukennslu í skólum. Ég trúi því ekki að það sé þörf á því á Alþingi Íslendinga að gera slíkt. En mig undrar þegar menn telja að þeir séu þess umkomnir að gera lítið úr þeirri Íslandssögu sem kennd hefur verið í skólum og gera lítið úr þeirri kennslu sem þar hefur verið framkvæmd. Og það er dálítið skrýtið einnig ef það á að setja þetta þannig upp að það hafi gleymst að minnast á þátt kvenna. Mér er ekki ljóst hvort jafnvel í dag er sú kona til á þessu landi sem hafði jafnmikil völd og Ólöf Loftsdóttir á sínum tíma. Og ég er ekki viss um að á Vestfjörðum gerist þeir hlutir að kona stjórni jafnmiklum atvinnurekstri og Guðrún á Bæ gerði á sínum tíma, þó að menn hafi ekki verið sáttir við hvernig hún hélt á sínu atvinnurekendavaldi því að sennilega hefur það aldrei verið miskunnarlausara en þegar hún stjórnaði. Þeir áttu ekki einu sinni pottana, landsetar hennar sumir hverjir.
En hvað um það. Ef menn greinir á um Íslandssögukennslu er það eðlilegt að það mál sé afgreitt hér í sölum þingsins og sú stefna sé mótuð hvernig menn vilji að að þeim málum sé staðið. Þess vegna þykir mér vænt um að það gerist aftur á þessum vetri að Íslandssagan sé talin þess virði að hún sé rædd hér í sölum þingsins.