09.02.1984
Sameinað þing: 46. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2763 í B-deild Alþingistíðinda. (2378)

172. mál, hagnýting Íslandsmiða utan efnahagslögsögunnar

Stefán Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil eins og aðrir lýsa yfir fylgi mínu við þessa þáltill. á þskj. 313 og vil færa flm. þakkir fyrir að vekja athygli á þessu en það er ekki nýtt. Hann hefur verið ötull stuðningsmaður þessa máls og ég held að þær fréttir sem við heyrðum nú í hádegisfréttum um þann hug sem menn bera til þess auðs sem er í hafinu við Grænland veki okkur til umhugsunar um það sem hér er að gerast og við kannske máttum alltaf búast við að gæti gerst.

Þetta er mikið hagsmunamál okkar Íslendinga og ég vil taka undir hvert orð sem hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson sagði í þessum efnum. Ég þarf ekki mörg orð. Sem betur fer held ég að við Íslendingar eigum allir samleið í þessu máli og ég held að þegar svo er komið eins og nú hljótum við að standa saman, burtséð frá því hvaða flokkum við tilheyrum, því hér er um sjálft lífshagsmunamál þjóðarinnar allrar að tefla. Ég vænti þess að þetta mál fái skjóta afgreiðslu og ríkisstj. bregði hart við og fylgist grannt með því sem hér er að gerast.