13.02.1984
Efri deild: 49. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2775 í B-deild Alþingistíðinda. (2389)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Ragnar Arnalds:
Virðulegi forseti. Það var eitt helsta ádeiluefni stjórnarandstöðunnar á þá ríkisstjórn sem hér var næst á undan að hún tæki erlend lán úr hófi fram og það var því ein helsta yfirlýsing núverandi stjórnar, þegar hún tók við, að stöðva yrði erlenda skuldasöfnun. Hæstv. fjmrh. hefur gefið ýmsar athyglisverðar yfirlýsingar um stefnumörkun sína í fjármálum í núv. ríkisstj. Hann hefur sagt að aukafjárveitingar verði ekki veittar og hann hefur sagt að ekki megi fara út fyrir þann launaramma sem finna má í fjárlögum ársins. Hvort tveggja þótti mér nokkuð hraustlega mælt og sérstaklega ef yfirlýsingar af því tagi eru tengdar hótunum um að segja af sér embætti. En ég hygg að sú yfirlýsing sem hæstv. ráðh. gaf um erlenda skuldasöfnun hafi ekki síður verið mjög djarfleg. Hann lýsti því yfir, að ef skuldastaða ríkisins færi yfir 60% af þjóðarframleiðslu á þessu ári hlyti hann að fara frá. Staðreyndin er auðvitað sú, að skuldastaða þjóðarinnar er rétt við 60% markið og um hreina skuldaaukningu er að ræða samkv. því frv. sem við erum hér að ræða um, eins og glöggt kom fram í máli seinasta ræðumanns. Hrein skuldaaukning verður tæpar 1400 millj. kr., þ.e. erlendar lántökur umfram endurgreiðslur á löngum lánum, og sú skuldaaukning sem þarna er um að ræða nemur hvorki meira né minna en 2% af vergri þjóðarframleiðslu. Það er því alveg ljóst að þegar af þessari ástæðu má ekki mikið út af bera svo að erlend skuldasöfnun og skuldastaða fari yfir 60% markið. Kannske verður það fyrst og fremst hinn mikli búhnykkur sem við fréttum af í hádeginu í dag sem verður ríkisstj. og ráðh. til bjargar. Ég hygg að erfitt hefði verið að standa við þessar yfirlýsingar ef ekki væru nú horfur á því blessunarlega, að verulega miklu meiri loðna veiðist í vetur en áður var búist við, jafnvel töluvert meira en þjóðhagsáætlun gerði ráð fyrir. Hún gerði ekki ráð fyrir nema 400 þús. tonnum, en veiðin gæti orðið meira en 50% meiri á þessu ári en þar var ráð fyrir gert. Þá hækkar deilitalan í hlutfallinu og skuldastaða þjóðarinnar verður eitthvað hagstæðari.
En staðreyndin er sú, að þó að við lítum á tölurnar í þessu frv. til lánsfjáráætlunar segja þær ekki alla söguna. Það eru ekki öll kurl komin til grafar. Við eigum eftir að fá stóra reikninginn úr útgerðardæminu. Þar verður greinilega um töluverða lánsfjárútvegun að ræða — lánsfjárútvegun sem engin von er til að almenn innlend sparifjármyndun leysi úr, heldur hlýtur að koma fram með beinum eða óbeinum hætti í erlendri skuldaaukningu. Hv. seinasti ræðumaður nefndi líka vanda landbúnaðarins. Þar má nú vera að um minni tölur sé að ræða, sem ekki séu alveg eins ógnvekjandi, en þó bersýnilega talsverður vandi sem leysa þarf. Einnig hefur komið fram að ríkisstj. hyggst taka lán til innlendrar skipasmíði og þau lán verða ekki tekin annars staðar en erlendis. Það eru sem sagt ansi mörg göt á lánsfjáráætluninni og sá boðskapur áætlunarinnar að aukning skulda verði ekki nema tæpar 1400 millj. kr. er mjög óviss þegar allt kemur til alls.
Þetta er reyndar í fullu samræmi við það sem gildir í ríkisbúskapnum öllum. Hæstv. ríkisstj. og stjórnarmeirihluti hennar afgreiddi fjárlög með mjög verulegum halla, 388 millj. kr. halla, en það blasir hins vegar við að það var alls ekki endanleg áætlun um hallann á árinu vegna þess að því til viðbótar koma skattalækkanir í þágu atvinnurekstrarins sem við erum nú þessa dagana að fjalla um hér í þinginu. Því miður hafa ekki fengist upplýsingar af hálfu fjmrn. um hvað þær skattalækkanir hafa mikið tekjutap í för með sér á árinu og er þar borið við ýmsum erfiðleikum að áætla tekjutapið - erfiðleikum, sem vissulega eru fyrir hendi og engin ástæða er til að efast um að á eru. Þar er um að ræða verulegt skarð í tekjuhlið ríkissjóðsdæmisins sem ekki er gert ráð fyrir í fjárlagadæminu eins og það liggur nú fyrir.
Sama gildir um ýmiss konar sparnaðaráform sem eru í fjárlagadæminu en enginn veit enn hvernig á að framkvæma. Hinn margfrægi sjúklingaskattur er kannske gleggsta dæmið um þá óvissu sem þarna er á ferðinni, ekki síst þegar meta má það að líkum að skatturinn verði alls ekki lagður á. Margar yfirlýsingar ráðamanna benda eindregið í þá átt að þeir séu að falla frá því að fara þá leið. Er það vissulega vel því að þarna var um að ræða algerlega fráleit og forkastanleg áform. Það breytir samt ekki hinu, að þarna er þá um gat að ræða á ríkissjóðsdæminu og verður að gera einhverja grein fyrir hvernig ætlunin er að fylla upp í það.
Menn skulu gera sér fulla grein fyrir því að skuldasöfnun ríkissjóðs hjá Seðlabanka er í eðli sínu nokkurn veginn hliðstæð erlendum lántökum. Á því tvennu er ekki mikill munur frá hagfræðilegu sjónarmiði vegna þess að auðvitað er Seðlabankinn annaðhvort að leggja fram það fé sem hér um ræðir með hreinni seðlaprentun, sem hefur þá ekki betri áhrif á hagkerfið en óhófleg erlend lántaka, ellegar fé er tekið úr gjaldeyrisvarasjóðum og er þá munurinn enginn orðinn.
Ég vil svo að lokum segja það, að þó að ég telji það rétta stefnu, sem fram kemur í frv. til lánsfjárlaga, að skerða framlög til fjárfestingarsjóða og hafi eindregið beitt mér fyrir því meðan ég var í fjmrn. að framlög til sjóða yrðu töluvert takmörkuð frá því sem var, þá gerði ég alltaf verulegan greinarmun á því hvort um var að ræða verðtryggða útlánasjóði eða fjárfestingarsjóði sem leggja fram tiltekin framlög til nauðsynlegra mála og fá ekki fé sitt til baka. Verðtryggðir fjárfestingarsjóðir eiga að geta staðið nokkurn veginn undir sér sjálfir með þeim lánum sem þeir veita, lánum sem koma til baka með vöxtum og eiga að vera það vel tryggð að ekki verði nein veruleg afföll á. Framlög í þá sjóði eru þá bara hrein sjóðsaukning, hrein aukning eiginfjárstöðu þessara sjóða. Vissulega er eðlilegt að bæta í þessa sjóði á hverju ári einhverju, en það þarf ekki að vera í jafnríkum mæli og var meðan sjóðirnir voru óverðtryggðir og voru því að tapa eigin fé á hverju ári. Sama gildir hins vegar ekki um sjóði sem veita bein framlög til þjóðþrifamála án þess að fá það fé aftur til baka. Dæmi um þetta eru sjóðir eins og Framkvæmdasjóður fatlaðra og Erfðafjársjóður ellegar Kristnisjóður. Þannig má ýmis dæmi nefna. Ég tel að skerðing á framlögum til Framkvæmdasjóðs fatlaðra og til Erfðafjársjóðs sé úr hófi fram. Við stjórnarandstæðingar erum, eins og kemur skýrt fram í nál. okkar á þskj. 340, andvígir þessum miklu skerðingum og munum eindregið hamla þar á móti með atkv. okkar. Ég vil reyndar taka fram að þessi ábending í nál. er kannske ekki endanlega tæmandi upptalning á sjóðum sem verið er að skerða og skerðingum sem eru í hæpnara lagi. Í því sambandi vil ég nefna að biskup hefur bent á að Kristnisjóður hafi ekki verið skertur eins og aðrir sjóðir undanfarin ár og beri því að gjalda varhug við þeim skerðingaráformum sem eru í frv. varðandi þann sjóð. Ég hygg nú að formaður n. hafi haft í huga, eftir þá ábendingu sem fram kom, að taka það mál til endurskoðunar, átti reyndar von á því að hann nefndi það í framsöguræðu sinni áðan, en úr því hann gerði það ekki vil ég benda á að þarna er um að ræða sjóð sem stendur undir útgjöldum sem ekki skila sér til baka eins og um sé að ræða venjuleg útlán. Það hefur verið reynt að hlífa sjóðum af því tagi undanfarin ár og ég vona að svo verði áframhaldandi.
Að öðru leyti tel ég ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál. Augljóst er að það stefnir í verulega skuldaaukningu hjá Íslendingum gagnvart útlöndum áframhaldandi og við því ber að gjalda varhug og það er síður en svo, að lánsfjárlög, sem hér eru til umr., beri því ótvíræðan vott að verið sé að snúa við af þeirri braut, eins og höfðu þó verið gefnar ýmsar yfirlýsingar um.