13.02.1984
Efri deild: 49. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2783 í B-deild Alþingistíðinda. (2394)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég skal ekki lengja þessa umr. mikið. Ég kem hér aðeins út af námslánunum vegna þess að hæstv. fjmrh. gerði þau sérstaklega að umtalsefni áðan í ræðu sinni. Námslánamálin eru mér vel kunnug. Mér er það vel kunnugt að það eru gífurlegar fjárhæðir sem fara í dag í Lánasjóð ísl. námsmanna. En mig langar til að upplýsa hæstv. ráðh. um sögu sjóðsins ef honum er ekki kunnug sú saga, en það er eiginlega samfelld sorgarsaga hvernig hefur farið um þau mál.

Þegar námsmenn leggja til í kringum 1975 að námslánin verði verðtryggð var hugmyndin sú að með verðtryggingu lána gæti sjóðurinn í framtíðinni staðið undir sér sjálfur, hann þyrfti ekki að leita í ríkissjóð eftir fjármagni. Vitaskuld þurfti sjóðurinn ákveðinn árafjölda til að ná því marki. Það sem síðan gerist er að í staðinn fyrir að veita til sjóðsins fé á fjárlögum er sjóðurinn látinn taka erlend lán til að standa undir skuldbindingum sínum. Og það er fjármagnskostnaður við þessi erlendu lán, sem sjóðurinn hefur orðið að taka, sem er þyngstur á metunum í þeirri fjárhæð sem til sjóðsins fer. Mig langaði aðeins til að minnast á þetta vegna þess að saga þessa sjóðs er í rauninni skólabókardæmi um ranga beitingu fjármagns.