13.02.1984
Neðri deild: 45. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2787 í B-deild Alþingistíðinda. (2402)

129. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Guðrún Agnarsdóttir:

Ég leyfi mér að mæta hér fyrir brtt. við frv. til l. um breyt. á lögum nr. 75 14. sept. 1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. lög nr. 21 23. mars 1983, um breyt. á þeim lögum. Meðflm. mínir eru hv. þm. Kristín Halldórsdóttir, Guðmundur Einarsson, Kjartan Jóhannsson og Svavar Gestsson.

Brtt. þessari er ætlað að auka við heimildarákvæði til lækkunar á tekjuskattsstofni. Þau ákvæði fjalla almennt um þá sem vegna aldurs, sjúkleika, eignatjóns eða verulega skerts gjaldþols geta ekki staðið undir skattbyrðum sínum, og er þessa nú mikils þörf þegar litið er til atvinnumála þjóðarinnar. Ég ætla að leyfa mér að lesa 66. gr. laganna, með leyfi forseta:

„Heimild til lækkunar á tekjuskattsstofni. Skattstjóri skal taka til greina umsókn manns um lækkun tekjuskattsstofns þegar svo stendur á sem hér greinir:

1. Ef ellihrörleiki, veikindi, slys eða mannslát hafa skert gjaldþol manns verulega.

2. Ef á framfæri manns er barn sem haldið er langvinnum sjúkdómi eða er fatlað eða vangefið og veldur framfæranda verulegum útgjöldum umfram venjulegan framfærslukostnað og mótteknar bætur.

3. Ef maður hefur foreldra eða aðra vandamenn sannanlega á framfæri sínu.

4. Ef maður hefur veruleg útgjöld vegna menntunar barna sinna 16 ára og eldri.

5. Ef maður hefur orðið fyrir verulegu eignatjóni sem hann hefur ekki fengið bætt úr hendi annarra aðila. 6. Ef gjaldþol manns hefur skerst verulega vegna taps á útistandandi kröfum, sem ekki stafa frá atvinnurekstri hans.“

Brtt. er þá svohljóðandi, að aftan við 2. gr. komi ný grein er verði 3. gr. og orðist svo, þ.e. í breyttum lögum:

„Aftan við 6. tölul. 66. gr. laganna (sbr. 3. gr. laga nr. 21/1983) komi nýr tölul. sem orðist svo:

7. Ef gjaldþol manns hefur skerst verulega vegna

atvinnuleysis, aflabrests eða af öðrum skyldum orsökum.“

Brtt. þessi er flutt vegna erfiðleika þeirra sem fólk lendir í þegar launatekjur milli ára lækka verulega. Lög um tekju- og eignarskatt taka nú ekkert tillit til aðstæðna fólks þegar svo stendur á að raunvirði launanna lækkar verulega milli ára án þess að fyrri liðir 66. gr. eigi við.

Við núverandi efnahagsástand má búast við að fjölmargir launamanna lækki verulega í rauntekjum milli ára og verði ókleift að mæta þeirri skattbyrði sem á þá er lögð. Má í þessu sambandi taka dæmi af sjómanni á aflaskipi sem haft hefur verulegar tekjur á þessu ári en þarf að hlíta kvótaskiptingu samfara verulega lægri tekjum á næsta ári. Einnig má minna á landverkafólk sem horfir upp á aflabrest og tekjurýrnun og mögulegt atvinnuleysi.

Meðan staðgreiðslukerfi skatta hefur ekki komist á verður ekki hægt að komast hjá sveiflum sem þessum. Vandi þessi er ekki nýr og hafa margir einstaklingar og fjölskyldur orðið fyrir honum. Hinar miklu samdráttaraðgerðir sem gripið hefur verið til upp á síðkastið kunna að leiða til þess að þetta tillitsleysi laganna við raunverulegar aðstæður bitni á enn fleirum en áður hefur gerst. Þess vegna er þessi brtt. flutt.