13.02.1984
Neðri deild: 45. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2793 í B-deild Alþingistíðinda. (2406)

129. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Forseti (Jóhanna Sigurðardóttir):

Vegna beiðni hv. 3. þm. Reykv. vil ég upplýsa það, eins og áður hefur fram komið, að hæstv. fjmrh. er bundinn við umr. í Ed. og óvíst hve lengi það verður. En ég mun gera ráðstafanir til að þessari umr. ljúki ekki fyrr en hv. 3. þm. Reykv. hefur fengið tækifæri til að fá svör við sínum spurningum.