13.02.1984
Neðri deild: 45. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2795 í B-deild Alþingistíðinda. (2409)

129. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Að gefnu tilefni vil ég aðeins koma inn í þessar umr. Það er í sambandi við það sem komið hefur fram í ræðum hv. þm. um sveitarfélögin sem mér finnst ástæða til að koma inn í umr.

Í fyrsta lagi vil ég mótmæla þeirri fullyrðingu, sem hér kom fram, að sveitarfélögin hafi misnotað það frelsi varðandi gjaldskrár og þjónustugjöld sem ákveðið hefur verið að veita þeim. Mér finnst ekki rökrétt að setja þá fullyrðingu fram. Við vitum að það er aðeins um eina gjaldskrá að ræða sem fram hefur komið síðan þessi ákvörðun var tekin, þ.e. hækkun á hitaveitugjöldum í Reykjavík um 25%. Ég vil geta þess hér að þó að það væri ekki í mínum verkahring sérstaklega óskaði ég eftir rökstuðningi fyrir þeirri hækkun og fékk hann. Ég fór yfir hann ásamt forráðamönnum Reykjavíkur borgar og sannfærðist um að ekki væri verið að misnota neitt frelsið sem sveitarfélögum var gefið með þessari sérstöku hækkun. Það voru fyrir hækkuninni eðlileg rök sem ég a.m.k. er samþykkur.

Í sambandi við útsvarsálagningu sveitarfélaganna almennt vil ég endurtaka það, sem ég hef áður sagt í hv. deild, að ekki liggur enn fyrir endanlega hvernig sveitarfélögin munu nýta álagningarprósentu sínu. Það eru ekki nema örfá sveitarfélög sem þegar hafa lagt fram fjárhagsáætlun fyrir þetta ár í endanlegri mynd og ekki nema örfá sem eru þegar búin að samþykkja hana, ef það eru þá nokkur nema Reykjavíkurborg. Mér er hins vegar þegar ljóst að flest sveitarfélögin hafa í hyggju að lækka þessa álagningarprósentu úr 12.1% , sem var almenn regla á árinu 1983, í 9.5–10.5% eða 10.8% flest þeirra. Aðeins Reykjavík er undanskilin með 11% í stað 12.1% sem var á s.l. ári.

Það er einnig kunnugt að félmrh. hefur gefið út opinbera yfirlýsingu um að sveitarfélögin geti ekki vænst þess að fá að nýta þá heimild sem er í tekjustofnalögum um 10% álag á árinu 1984 nema um algjört neyðarástand í viðkomandi sveitarfélagi verði að ræða. Ég get því ekki séð að hv. þm. geti talað í þessum dúr meðan málin liggja ekki ljós fyrir. Ég tel einnig ástæðu til í þessu sambandi að geta þess, sem raunar hefur komið fram opinberlega, að ríkisstj. hefur gert sérstakan samstarfssamning við sveitarfélögin sem þegar er farið að reyna á. Það stendur fyrir dyrum fundur með fulltrúum sveitarfélaganna um samræmingu á því hvernig sveitarfélögin munu standa að ákvörðun um gjaldskrár sínar og önnur þjónustugjöld með það fyrir augum fyrst og fremst að það verði samræmt efnahagsstefnu ríkisstj. og enn fremur að fyrirbyggja óeðlilegt misræmi milli gjalda sveitarfélaganna. Þetta stendur fyrir dyrum og ég reikna með því að ekki verði langt í að fundur verði haldinn. Þá er sjálfsagt að upplýsa hver sú niðurstaða verður.

Ég vil einnig geta þess í tilefni af ræðum hv. þm. hér að það er fullt samstarf á milli Sambands ísi. sveitarfélaga og félmrn. um öflun viðhorfa og ákvarðana sveitarfélaganna í heild um beitingu tekjustofna, bæði hvað varðar útsvarsprósentu og ákvörðun einstakra sveitarfélaga um afslátt, lækkun eða niðurfellingu útsvars t.d. til lífeyrisþega og lágtekjufólks. Þetta mál er nú í sérstakri meðferð hjá sveitarfélögunum og í fullu samráði og samstarfi við félmrn.

Vegna ummæla sem fram komu áðan hjá hv. 5. þm. Reykv. tel ég ástæðu til að vekja athygli á þeim og taka undir með honum. Ég sat þessa ráðstefnu s.l. laugardag með ungu fólki aðallega, sem ræddi vandamál sín af fullri hreinskilni og einurð, og mér fannst margt athygli vert koma þar fram. Það liggur fyrir að niðurstöður þessarar ráðstefnu og fólksins sem ræddi þarna bæði í heild og í smáhópum munu verða sendar sem ályktun og ég geri ráð fyrir að félmrn. fái þær formlega í hendur næstu daga. Ég mun draga af þeim ýmsar ályktanir því að ég tel að komið hafi þar fram margar skynsamlegar tillögur.

Ég vil að lokum, af því ég ætla ekki að fara að ræða í heild þessi mál, geta þess að félmn. Nd. hefur tekjustofnafrv. til meðferðar. Það er, eins og hv. þm. vita, ákvörðun um vissan frádrátt sem kemur í útsvarsálagninguna í samræmi við þá ákvörðun sem verður tekin um tekju- og eignarskatt. Er sjálfsagt að það mál verði skoðað nánar hvort breyta á þeim fjárhæðum eða ekki. En ég mun beita mér fyrir því og ég endurtek það hér að ég mun beita mér fyrir því, að félmn. Alþingis fái upplýsingar í stórum dráttum um ákvörðun sveitarfélaga um meðferð gjaldstofna á þessu ári, eins og ég gaf raunar yfirlýsingu um í umr. fyrr í deildinni. Þær upplýsingar eru þegar að berast inn á borð til mín og ég mun standa við þá yfirlýsingu.