13.02.1984
Neðri deild: 45. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2799 í B-deild Alþingistíðinda. (2414)

129. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Hér fer vissulega fram góð og gagnleg umr. um álagningu skatta í landinu og hvernig við eigum að dreifa skattbyrðinni sem réttlátast meðal þjóðfélagsþegnanna. Umr. þessi hefur staðið í allan dag og var líka í síðustu viku og auðvitað er það mjög eðlilegt. Við erum að fjalla hér um álagningu á beinum sköttum upp á 3 milljarða sem vissulega er stór tala og eðlilegt að rætt sé hvernig þessu sé sem réttlátlegast dreift.

En í s.l. viku og vikunni þar áður vakti satt að segja furðu mína umr. sem fram fór hér um tvö mál sem liggja fyrir þinginu um skattsvik í þjóðfélaginu. Í fyrsta lagi er það tillaga um aðgerðir til þess að fyrirbyggja skattsvik og í annan stað till. um úttekt á umfangi skattsvika. En það virðist sem svo að ekki nokkur einasti þm. hér inni hafi áhuga á að ræða um þau mál, skattsvikin í þjóðfélaginu. Við erum þó að tala hér um miklu stærri tötur en verið er að fjalla um í dag. Ég færði fyrir því rök í báðum þessum umr. hver áætla mætti að skattsvikin væru í þjóðfélaginu. Ég byggði það m.a. á mati sem lagt var á þessi mál fyrir nokkrum árum síðan en það gerði prófessor Ólafur Björnsson sem byggði það á þjóðhagsreikningstölum á árunum 1957–1960. Taldi hann að áætla mætti að skattsvik hér í þjóðfélaginu væru um 11% af þjóðartekjum sem eru þá um 5–6 milljarðar eða helmingi stærri tala en við erum að fjalla um hér í dag.

Samt virðast þm. ekki hafa nokkurn minnsta áhuga á að ræða um þessi mál, skattsvikamál í þjóðfélaginu. Ég tel að löngu sé kominn tími til að ræða þau mál. Sumir áætla jafnvel að frá því að þessar tölur voru settar fram hafi skattsvikin a.m.k. tvöfaldast. Þannig að hv. þdm. ættu að sjá að hér er ekki um neitt smámál að ræða. Það vekur auðvitað furðu ef hv. þdm. telja að þeir geti bara látið þessi mál afskiptalaus, að þeim komi ekki við þó að skattsvik séu ástunduð hér í stórum mæli. Þetta er vissulega mál sem Alþingi kemur við og Alþingi á að leggja línurnar um það hvernig á að taka á þessum málum.

Ég ræddi m.a. í mínu máli hve illa er búið að skattstofunum. Um það hef ég tölur frá embætti skattrannsóknastjóra hvað inn kemur vegna skatteftirlits bæði hjá skattstofunum og skattrannsóknastjóra. Ef litið er á þær tölur sem settar voru fram á árinu 1975, þ.e. þjóðhagsreikningstölur 1957–1960, og útreikningur skattsvikanna var byggður á þá innheimtist vegna skattsvika aðeins um 1% af því sem þá var áætlað að stolið væri undan skatti. Fyrir utan það að skattstofurnar eru svo illar búnar að mannskap að þær geta aðeins skoðað þessi venjulegu launamannaframtöl en ekki framtöl einstaklinga og fyrirtækja í atvinnurekstri. Það er eingöngu innan við 1% af fyrirtækjum í atvinnurekstri sem eru skoðuð nú hjá skattrannsóknarstjóra og þetta þarf vissulega að breytast.

Skattsektirnar hér á landi eru orðnar til háborinnar skammar. Upphæðin er í krónutölum núna í lögunum og hefur ekki verið breytt í nokkur ár. Skattsektarákvæðunum er ekki beitt eins og á að beita þeim, það er yfirleitt frá 0,5 upp í 2,5-földun sem skattsektirnar eru hér á landi þó að í lögum segi að beita megi allt að tíföldun varðandi þá upphæð sem stolið er undan skatti.

Ég taldi ástæðu, herra forseti, til að vekja athygli á þessu hér við umr. um álagningu á tekjuskatti og eignarskatti vegna þess að hér er virkilega um stórmál að ræða og ég tel tíma til kominn að Alþingi og alþm. láti sig þessi mál einhverju skipta vegna þess að ekki síst í þeim málum er misréttið falið í þjóðfélaginu og hve byrðunum er misjafnt dreift á þjóðfélagsþegnana. Eftir því sem fleiri komast upp með að stela undan skatti leggjast byrðarnar þyngra á þá sem eru þó skilamenn og standa í skilum með sinn skatt til þjóðfélagsins.