13.02.1984
Neðri deild: 45. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2801 í B-deild Alþingistíðinda. (2417)
129. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Það er örstutt athugasemd er kemur ekki á óvart þótt þeir framsóknarmenn húki við sama heygarðshornið með niðurgreiðslurnar sínar og hangi á því roði. En það er ástæða til að benda hv. 2. þm. Norðurl. v. á að fara nú í eldhús til hæstv. forsrh. og formanns Framsfl. sem eins og kunnugt er hefur upplýst þjóðina um að þó það kunni að vera hlutskipti hinna snauðu í þessu þjóðfélagi að lifa á vellingi sé það nú ekkert neyðarúrræði því að hann hafi alist upp við þennan velling sjálfur. Þessi grautargerð forsrh. er fræg orðin að endemum. En ég hygg að það sé kannske nær lagi að það fólk sem við þessi kjör býr lifi fremur á vatnsgrautnum óniðurgreiddum, því að hann er ekki niðurgreiddur, hv. þm., fremur en að leggja sér daglega til munns mikið af því ágæta niðurgreidda keti sem hv. þm. ber fyrir brjósti. Hafa þó niðurgreiðslurnar ekki síður því hlutverki að gegna að halda uppi óeðlilegri tilbúinni eftirspurn eftir offramleiðsluvörum en að virka sem tekjujöfnunaraðgerð. Ég er alveg fullviss um að sem tekjujöfnunaraðgerð er sú leið sem við boðuðum hér áðan, að beina þessu fjármagni beint til fólks t.d. í formi neikvæðs tekjuskatts, mun áhrifameiri en núv. kerfi.
Að því er varðar skattsvikin vil ég aðeins taka fram að þegar umr. fór fram um þáltill. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur er kannske svolítið ósanngjarnt að segja að enginn þm. hafi haft áhuga á málinu. Það voru 3 eða 4 sem tóku til máls í því og einir 5 í salnum. Vorum við þó að tala um upphæðir eins og hér hefur verið nefnt, annars vegar tekjur ríkisins af beinum sköttum svona um 3 milljarða kr. og hins vegar mjög varfærið og íhaldssamt mat Ólafs Björnssonar um 10% af þjóðarframleiðslu, þ.e. um 6 eða 6–7 milljarða kr. í skattundandrátt og skattsvik sem allir þeir sem fást við endurskoðun og skattrannsóknir á Íslandi nú vita að hefur margfaldast síðan. Og mjög varleg áætlun nú er að þetta sé sennilega tvisvar sinnum það, þ.e. við værum þá að tala um kannske 13–14 milljarða, af fjárlögum ríkisins sem eru upp á 18 milljarða.