14.02.1984
Sameinað þing: 48. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2802 í B-deild Alþingistíðinda. (2420)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Mér hefur borist svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 14. febr. 1984.
Guðmundur J. Guðmundsson; 7. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Vegna mjög mikilla anna í brýnni félagsmálastarfsemi óska ég eftir leyfi frá störfum á Alþingi í a.m.k. hálfan mánuð frá og með deginum í dag. Jafnframt óska ég eftir að 1. varaþm. Alþb. í Reykjavík, Ólafur Ragnar Grímsson, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd.“
Ólafur Ragnar Grímsson hefur setið áður á þessu þingi og býð ég hann velkominn á ný til starfa á Alþingi. Ég vil taka fram áður en við hefjum störf að eins og í dagskrá stendur er gert ráð fyrir tveim fundum Sþ. í dag. En ég vil vekja athygli á því að 1. mál á síðara fundi, sem er sameiginlegt hagsmunamál Grænlendinga og Íslendinga, þáltill., er samkomulagsmál hér í þinginu. Það verður gerð tilraun, ef þingið leyfir, til að afgreiða það mál til nefndar í dag til að flýta fyrir því. Til þess að svo megi verða verður þriðji fundur Sþ. í dag, einn fyrir utan þá sem eru á hinni prentuðu dagskrá.
Þá vil ég enn fremur taka fram að á síðasta fundinum verða umræður utan dagskrár.