14.02.1984
Sameinað þing: 48. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2803 í B-deild Alþingistíðinda. (2421)

170. mál, Orkuveita Suðurnesja

Fyrirspyrjandi (Guðmundur Einarsson):

Herra forseti. Á undanförnum tíu árum hafa mjög margar nefndir fjallað um orkumál Suðurnesja. Eftir stofnun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 1978 tekur stjórn þess málið upp og síðan hefur margvíslegur undirbúningur verið unninn, svo sem viðræður sveitarfélaganna sem hlut eiga að máli, umræður um sameiningu rafveitna sveitarfélaganna og Hitaveitu Suðurnesja og úttekt á dreifikerfum.

Í maí 1982 var samþykkt þál. um að skipa fimm manna nefnd til að semja frv. um Orkubú Suðurnesja. Með leyfi forseta vil ég lesa þál. sem vísað er til. Þar segir svo:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að skipa fimm manna nefnd til að semja frv. til l. um Orkubú Suðurnesja. Nefndin skal þannig skipuð: Tveir fulltrúar tilnefndir af stjórn Hitaveitu Suðurnesja, tveir fulltrúar tilnefndir af stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og einn fulltrúi tilnefndur af iðnrn. Iðnrh. skipar formann úr hópi nefndarmanna.

Nefndin hraði svo störfum að frv. verði lagt fyrir næsta reglulegt Alþingi.“

Þetta er samþykkt í maí 1982.

Í ágúst 1982 var þessi nefnd skipuð. Hún hóf störf í janúarlok 1983. Þá voru haldnir fundir og gögnum safnað. Síðasti fundur nefndarinnar var haldinn 19. maí s.l.

Það eru ýmsar ástæður fyrir því að nauðsynlegt er að ákveða framtíðarskipan orkumála á Suðurnesjum eins fljótt og auðið er. Í fyrsta lagi stendur óvissa um framtíðina í vegi fyrir því að framtíðarskipulag orkudreifingar, sölu og orkuöflunar á Suðurnesjum verði ákveðið. Háspennulína á suðurnes var fulllestuð 1980, en með tilkomu raforkuframleiðslu við Svartsengi, þar sem framleidd eru 6–7 megawött, fékkst frestun á byggingu nýrrar línu. Það ber brýna nauðsyn til að ákveða fljótlega næstu aðgerðir á þeim vettvangi. Það eru geysilegir möguleikar til frekari gufuvirkjunar til rafmagnsframleiðslu á þessu svæði. Það má nefna gufu sem þegar er sleppt út í Svartsengi og það má nefna að ný hola er í Eldvörpum og önnur ný hola á Reykjanesi. Það er fræðilega hugsanlegt að þetta svæði geti framleitt tvisvar sinnum það magn raforku sem það nú notar. Það er hins vegar óhjákvæmilegt að framtíðarskipulag þessara mála sé sett í fastar skorður þannig að hægt sé að takast á við þessi verkefni.

Orkuverð á Suðurnesjum er mjög hátt. RARIK á og rekur háspennulínu frá spennistöð við Elliðaár til suðurnesja. Fyrir orkuflutninginn tekur RARIK 17% álag á orkuverð Landsvirkjunar. Síðan bætist þar á söluskattur og verðjöfnunargjald. Þetta gerir það að verkum að Suðurnesjafólk greiðir verulega hátt verð fyrir raforku sína. Þetta mál hefur lengi þarfnast endurskoðunar og yrði vafalaust eitt af fyrstu verkefnum öflugs orkufyrirtækis þeirra Suðurnesjamanna. Það má nefna að það yrði veruleg hagræðing af sameiginlegum orkukaupum með sammælingu orkuveitna á suðurnesjum. Sparnaður þar hefur jafnvel verið reiknaður milli 4 og 5%. Þessar ástæður og ýmsar fleiri liggja til þess að nauðsynlegt er að vinda bráðan bug að því að útkljá skipulag orkumála svæðisins. Þess vegna hef ég lagt fram fsp. til hæstv. iðnrh. um hvað líði framkvæmd þál. og undirbúnings undir Orkubú Suðurnesja.