14.02.1984
Sameinað þing: 48. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2811 í B-deild Alþingistíðinda. (2437)
417. mál, skýrsla Stefáns Jónssonar til utanrríkisráðherra
Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Ég biðst velvirðingar á því að í síðustu ræðu minni láðist mér að víkja orðum að ræðum tveggja hv. þm. Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson spurðist fyrir um það hvort til væru í utanrrn. fleiri skýrslur frá sömu mönnum. Um það er mér ekki kunnugt en ég get vel kannað hvort svo er eins og hv. þm. fór fram á.
Þá hélt hv. þm. Steingrímur Sigfússon hér ræðu og spurði hvort ég gerði mig ánægðan með svör Morgunblaðsins. Ég held það skipti nú litlu máli. Það er alkunna og ekki nýlunda að fjölmiðlar telja sig geta neitað því að segja hvaða heimildarmenn þeir hafa að fréttum sem þeir birta. Þetta svar hafa stjórnmálamenn þurft að sætta sig við af hálfu fjölmiðla oftar en einu sinni.
Þá spurði hv. þm. Steingrímur Sigfússon hve stórt upplag þessarar skýrslu væri. Ég veit það ekki en skýrslan sjálf ber það með sér að hún er fjölrituð og slíkt er væntanlega ekki gert nema um nokkurn eintakafjölda sé að ræða. Þá hef ég vikið að tímalengd sem ætti að vera tengd trúnaðarmáli og fjalla ekki frekar um það.
Hv. 8. þm. Reykv., Stefán Benediktsson taldi mig hafa verið tvísaga. Þetta er alger misskilningur. Það sem hann dró fram til vitnis um það var að ég hefði sagt að ráðh. réði dreifingu trúnaðarskýrslu og þess vegna ætti ég að vita hvert trúnaðarskýrslan hefði farið. Ég hef tekið það fram að þessi trúnaðarskýrsla er e.t.v. fyrst og fremst dreifð af hálfu höfunda eða þeirra sem hana sendu rn. en ekki af rn. sem slíku. Það sem ég vitnaði í dreifingu trúnaðarskjala var í sambandi við NATO-skjöl, að í ákveðnum tilvikum fær ráðh. einn þau trúnaðarskjöl. Í öðrum tilvikum verður hann að ákveða hvert þessi trúnaðarskjöl skulu fara til þess að viðkomandi embættismenn hafi þær upplýsingar sem þeim eru nauðsynlegar í starfi sínu. Það er allt annað mál. (Forseti hringir.) Ég held að það liggi ljóst fyrir að trúnaðarmál sem t.d. NATO merkir svo eru ekki trúnaðarmál eftir að NATO hefur sagt að um trúnaðarmál sé ekki lengur að ræða. Ef höfundar segja að ekki sé lengur um trúnaðarmál að ræða og birta skýrsluna getur utanrrn. ekkert frekar um það fjallað á hvaða stigi málsins sem er.
Þá sagði hv. þm. að ég hefði sagt að ég væri ekki ábyrgur fyrir vörslu þessa skjals. Ég er það auðvitað ekki fyrr en ég tek að mér starf utanrrh. Eftir það er ég ábyrgur fyrir vörslu trúnaðarskjala og skjalageymslu í utanrrn. og ber þannig ábyrgð á starfsmönnum rn. En ég vek athygli á því að þetta skjal er sent rn. 1972, ef ég man rétt. Um leið og ég ítreka að ég tel enga ástæðu til að ætla að það hafi lekið út úr rn. legg ég áherslu á að það fór um hendur það margra manna að því er talið er að það getur hafa borist frá ýmsum utan rn.