15.02.1984
Efri deild: 51. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2850 í B-deild Alþingistíðinda. (2473)

159. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Virðulegi forseti. Hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar hefur fjallað um þetta mál allítarlega og samhliða fjallað um mál 160 sem er fylgifrv. með því frv. sem hér er nú til umr., þ.e. frv. til l. um frádrátt frá skattskyldum tekjum manna vegna fjárfestingar í atvinnurekstri.

Hv. alþm. hafa haft þessi frv. undir höndum um tveggja mánaða skeið. Allmikil umr. varð um efni þeirra hér við 1. umr. málsins og þau hafa líka verið rædd mikið opinberlega. Ég sé ekki ástæðu til að ég fari efnislega að ræða þetta mál hér við 2. umr., einkum og sér í lagi með hliðsjón af því að engar brtt. koma fram við frv. að öðru leyti en því að flutt er brtt. vegna orðalags eða mistaka í prentun og er það á þskj. 343 sem allir eru sammála um að þurfi leiðréttingar við.

En n. hafa borist ýmsar umsagnir um frv., þ. á m. frá samtökum atvinnurekenda, þ.e. Félagi ísl. iðnrekenda, Félagi ísl. prentiðnaðarins, Félagi ísi. stórkaupmanna, Kaupmannasamtökum Íslands, Landssambandi iðnaðarmanna, Landssambandi ísl. rafverktaka, Landssambandi ísl. útvegsmanna, Sambandi fiskvinnslustöðvanna, Sambandi málm- og skipasmiðja, Sambandi veitinga- og gistihúsaeigenda, Verktakasambandi Íslands, Vinnuveitendasambandi Íslands og Verslunarráði Íslands.

Enn fremur bárust umsagnir frá Alþýðusambandi Ístands og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Má segja að þau samtök leggist gegn samþykkt þessara frv. eins og nú er ástatt. Skal ég ekki fara lengra út í að rekja efni þeirra skjala enda eru þau prentuð með nál. hv. minni hl. n.

Hins vegar gerðu þessi samtök atvinnurekenda tillögur um ýmiss konar breytingar sem eru í 8 liðum. Niðurstaðan varð sú að við í meiri hl. töldum ekki efni standa til þess að flytja þessar brtt., enga þeirra, og hygg ég að enn minna efni hafi minnihlutamenn talið standa til að verða við þessum óskum. Hér er auðvitað um samkomulagsmál að ræða á milli stjórnarflokkanna og við töldum eðlilegast og heppilegast eftir að hafa grandskoðað þessi frv. bæði að leggja til að þau yrðu samþykkt óbreytt.

Ég mun sem sagt ekki, hæstv. forseti, stofna hér til efnislegra umr. en auðvitað er ég reiðubúinn til að taka þátt í þeim ef aðrir telja það eðlilegt. Mér sýnist ekki vera ástæða til þess við þessa 2. umr. af þeim ástæðum sem ég þegar hef frá greint og læt því máli mínu lokið.