15.02.1984
Efri deild: 51. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2855 í B-deild Alþingistíðinda. (2476)
159. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. fjh.- og viðskn. vel unnin störf í sambandi við það frv. sem hér er til umr., þ.e. frv. til l. um breyt. á lögum nr. 75 frá 14. sept. 1981, um tekjuskatt og eignarskatt o.s.frv.
Ég átta mig nú ekki almennilega á þeim málflutningi sem uppi hefur verið hafður. Hæstv. 3. þm. Norðurl. v. gerir að sínum orðum umsagnir verkalýðshreyfingarinnar eða samtaka þeirra sem leitað var til og er ég út af fyrir sig ekkert óánægður með það, en hann segir að þetta frv. og næsta frv. á dagskrá séu einvörðungu til að lækka skatt þeirra sem eiga eða reka fyrirtæki. Það er ekki rétt. Það veit hann ef hann les frv. Það er líka skattafrádráttur fyrir einstaklinga og hjón sem leggja fé í fyrirtæki og eins af arði sem slík hlutabréf gefa. Ég hefði heldur viljað að jafnglöggur maður í fjármálum og hv. 3. þm. Norðurl. v. er... (Gripið fram í.) Það er að koma fram. — Ég hefði heldur viljað að hann liti þannig á að hér væri verið að auka möguleika fólksins í landinu til þátttöku í atvinnurekstri og þar með að skapa aukin tækifæri þeirra sem eiga peninga afgangs, hvort sem þar eru ríkir eða fátækir. Það er líka til fátækt fólk sem á eitthvað af aurum afgangs. Það tekur kannske lengri tíma fyrir það að eignast verulegar eignir, en það getur verið að safna í annaðhvort eigin sarp eða með það í huga að skilja eitthvað eftir handa börnum og barnabörnum. En alla vega er hugmyndin að allir taki á eftir getu til að skapa sterkari fyrirtæki, traustari grundvöll undir atvinnurekstur, hvort sem hann er í höndum einstaklinga eða samtaka. Og ég held að það komi einmitt þeim fátækustu, sem ekkert geta lagt til í slíkt fyrirtæki, mest til góða ef það er hægt að tryggja atvinnuöryggi, auka atvinnutækifæri. Ég mundi því telja þau slagorð sem hér eru notuð, að gera þá ríku ríkari og fátæku fátækari, marklaus með öllu. Þetta er alveg þveröfugt. Það er verið að skapa hér traustari grundvöll undir atvinnurekstri og auka atvinnutækifæri í landinu. Og það kemur öllum til góða.
En ég get ekki með nokkru móti breytt og mun ekki taka að mér að breyta fastmótaðri hugsjón, sem er pólitískt andstætt minni, frekar en virðulegum 3. þm. Norðurl. v. tækist að breyta minni skoðun á þjóðfélaginu. En hvað bendir meira til og undirstrikar þörfina fyrir að breyta þjóðfélaginu en einmitt það dæmi sem hv. 5. landsk. þm. kom með áðan? Það er þetta þjóðfélag sem við erum að taka við. Við erum búnir að vera 8 til 9 mánuði við stjórn og það ætlast enginn til þess að við gjörbyltum þjóðfélaginu á ekki lengri tíma, en ég tek svo sannarlega undir með hv. 5. landsk. þm. að þessu þjóðfélagi þarf að breyta og ég bið hann um að hjálpa okkur til þess. Við erum að reyna það. Það sem hér er lagt til og ég undirstrika er að gefa fólkinu í landinu tækifæri til að ávaxta sitt fé á annan og kannske betri máta en hingað til hefur verið gert. Fólk sem á peninga afgangs leggur þá nú í banka — reynir að ávaxta sitt fé þannig — og hefur þar viss skattfríðindi, en við erum að opna fleiri möguleika sem jafnframt treysta atvinnureksturinn í landinu.
Ég vil því taka undir það með hv. 5. landsk. þm. að í frv. kristallast sú stefna ríkisstj., og hún er ljós, að þessi ríkisstj. er ríkisstj. atvinnuveganna, þar með fyrirtækjanna, það er alveg rétt. Hún er ríkisstj. stöðugleika. Og þetta er ríkisstj. kosin af fólkinu og fyrir fólkið. Hún er kosin af fólkinu og hún er kosin fyrir fólkið. Það er einmitt vegna þess að fólkið í landinu vildi breyta stjórnarháttum. (Gripið fram í: Undir forustu framsóknar.) Undir forustu Framsfl. og Sjálfstfl., það segir sig sjálft, og án forsrh. Alþfl., það segir sig líka sjálft.
Ég vil taka undir að það er til skammar þegar fólk þarf að búa við svo lág laun að það nær ekki 11 þús. kr. á mánuði. Konan sem 5. landsk. þm. nefndi hefur rúm 10 þús. kr. á mánuði. Það eru lág laun, við vitum það og getum vel skammast okkar fyrir það. Það er einmitt þess vegna sem við viljum breyta þjóðfélaginu. Við erum á góðri leið með að gera það.
En ég vil ítreka þakkir mínar til virðulegrar fjh.- og viðskn. fyrir vel unnin störf og þá sérstaklega formanns hennar.