15.02.1984
Efri deild: 52. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2867 í B-deild Alþingistíðinda. (2494)
181. mál, sala jarðarinnar Bæjarstæðis í Seyðisfjarðarhreppi
Flm. (Tómas Árnason):
Virðulegi forseti. Ég flyt ásamt hv. 2. þm. Austurl. og 11. landsk. þm. frv. þetta til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að selja jörðina Bæjarstæði í Seyðisfjarðarhreppi, Norður-Múlasýslu. Þetta frv. er flutt að beiðni Jóns Sigurðssonar bónda á Hánefsstöðum í Seyðisfjarðarhreppi. Bæjarstæði hefur verið í eyði áratugum saman og eru engin mannvirki á jörðinni. Jón Sigurðsson ætlar að nota jörðina til beitar.
Hreppsnefnd Seyðisfjarðarhrepps hefur mælt með því að jörðin verði seld Jóni Sigurðssyni og fylgja meðmæli hreppsnefndarinnar prentuð sem fskj.
Ég vil taka það fram að þriðji maðurinn í hreppsnefndinni er Jón Sigurðsson, sem er oddviti, en hann skrifar ekki undir þetta bréf.
Ég vil geta þess að Jón Sigurðsson sendi jarðanefnd Norður-Múlasýslu bréf varðandi þetta mál, en það kom ekki í hendur flm. fyrr en eftir að frv. fór í prentun, þannig að það fylgir ekki sem fskj. með þessu máli. Ég ætla að leyfa mér að lesa bréfið, en það er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Jarðanefnd Norður-Múlasýslu.
Þar sem ég hef óskað eftir við landbrn. að ríkissjóður selji mér jörðina Bæjarstæði í Seyðisfjarðarhreppi óska ég eftir umsókn jarðanefndar Norður-Múlasýslu. Jörðin Bæjarstæði er landlítil jörð, húslaus og girðingar og ræktun engin, enda jörðin búin að vera í eyði í tugi ára, yfir 30 ár. Jörðina hef ég fyrirhugað að nota til upprekstrar. Hef ég mörg undanfarin ár þurft að sjá um smölun á þessu landi og sýnt að svo þurfi að vera áfram.“
Jarðanefnd hefur svarað þessu bréfi með svohljóðandi bréfi:
Herra Jón Sigurðsson, Hánefsstöðum.
Í bréfi þínu til jarðanefndar Norður-Múlasýslu er leitað samþykkis nefndarinnar fyrir kaupum þínum á ríkisjörðinni Bæjarstæði. Þegar ég fór að athuga málið vegna væntanlegs fundar jarðanefndar áttaði ég mig á að samkv. 6. gr. jarðalaga telst erindi sem þetta ekki í verkahring jarðanefndar. Ég bið afsökunar á hversu dregist hefur að athuga þetta.
Virðingarfyllst f.h. jarðanefndar
Norður-Múlasýslu.
Þorsteinn Kristjánsson,
Jökulsá, Borgarfirði eystra.“
Það mætti segja ýmislegt um þessar eyðijarðir allar saman, en tímans vegna held ég að ég sleppi því að mestu.
Þeir sem eru kunnugir á Austurlandi vita að á s.l. áratugum, við skulum segja s.l. hálfri öld, hafa lagst í eyði annesjajarðir og jarðir með fjarðaströndum, ég mundi'segja í tugum, t.d. frá því að ég var að alast upp á þessum slóðum sem barn og unglingur. Svo hefur einnig verið í Seyðisfjarðarhreppi. Þar hafa lagst í eyði mjög margar jarðir. Það voru einar fimm jarðir setnar fyrir fjórum til fimm áratugum þar og allar hafa lagst í eyði nema ein jörð, Hánefsstaðir, sem Jón Sigurðsson býr á. Þessar jarðir eru ekki nytjaðar, en talsvert fé gengur til beitar á þessu svæði. Þarna eru þó yfirleitt landþrengsli. Ekki aðeins gengur þarna fé frá Hánefsstöðum, þar er tiltölulega fátt sauðfé nú, en úr Seyðisfjarðarkaupstað, þar er nokkur sauðfjáreign, og síðan kemur fé úr næstu fjörðum, t.d. Mjóafirði, verulega inn á þetta svæði.
En í sambandi við þetta mál vil ég sérstaklega geta þess að á undanförnum árum hefur verið talsvert mikið kal, sérstaklega í nýræktum, á þessu svæði. Ég veit að bóndinn á Hánefsstöðum hefur miklar áhyggjur af því máli því að sumar stórar nýræktir sem hann hefur ræktað á undanförnum árum eru svo til ónothæfar. Hefur verið ákaflega erfitt að blása lífi í þá nýrækt á nýjan leik og mun sjálfsagt taka sinn tíma. Fólk hefur því áhyggjur af þróun mála og hefur þess vegna áhuga á að tryggja sér beitarrétt og frekari möguleika á búskap en nú er.
Ég sé ekki ástæðu til þess, virðulegi forseti, að hafa um þetta mál fleiri orð og legg til að því verði vísað til 2. umr. að lokinni þessari og til hv. landbn. Ég mun láta fskj. sem ég hef lesið upp ganga til n. svo hún geti haft þau til afnota við afgreiðslu málsins.