15.02.1984
Neðri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2869 í B-deild Alþingistíðinda. (2498)
157. mál, húsaleiga
Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Ég æli hér fyrir frv. á þskj. 227 um húsaleigu sem fylgi breytingum vísitölu húsnæðiskostnaðar. Frv. er flutt til staðfestingar á bráðabirgðalögum um sama efni sem gefin voru út 22. apríl á s.l. ári.
Í sambandi við gildistöku nýrrar vísitölu framfærslukostnaðar með grunntölunni 100 í janúar 1968 ákvað kauplagsnefnd að reikna sérstaka vísitölu er sýndi breytingar á rekstrarkostnaði húsnæðis í Reykjavík. Skyldi húsnæðisliður hinnar nýju framfærsluvísitölu fylgja breytingum vísitölu húsnæðiskostnaðar eftir ákveðnum reglum og hefur svo orðið til þessa.
Þar eð þörf virtist vera fyrir slíka vísitölu til að ákveða verðbætur á umsamda grunnhúsaleigu ákváðu kauplagsnefnd og Hagstofan að birta þessa vísitölu í Hagtíðindum svo að leigusalar og leigutakar gætu notað hana í þessu skyni ef þeim sýndist svo. Engin lög voru sett um hana, útreikningur hennar og birting byggðist einvörðungu á ákvörðunum kauplagsnefndar þar að lútandi.
Vísitala húsnæðiskostnaðar 1968 var fljótlega mikið notuð í leigusamningum til ákvörðunar verðbóta á húsaleigu og virtist hún gegna þessu aukahlutverki sínu vel framan af. En á seinni hluta áratugsins 1971–1980 fór með vaxandi verðbólgu að bera meir og meir á ágalla sem var afleiðing þess að hækkanir vísitölunnar dreifðust mjög misjafnt yfir árið. Vegna þarfa framfærsluvísitölunnar hafði kauplagsnefnd ákveðið í upphafi að öll árleg hækkun fjármagnskostnaðar húsnæðis og fasteignagjalda skyldi ganga inn í hana einu sinni á ári, þ: e. við mars-útreikning hennar. Þetta þýddi að allt upp í 80% af árshækkun vísitölunnar kom fram í einu stökki í mars-framfærsluvísitölu.
Þessi annmarki kom ekki mikið að sök meðan verðbólgan hélst tiltölulega hófleg. Þegar kom að lokum áratugsins fór hann að verða tilfinnanlegur og að lokum keyrði um þverbak. Mars-vísitala eftirtalinna ára var sem hér segir hærri en desembervísitala næst á undan: 1979 28.9%, 1980 36.6%, 1981 38%, 1982 34.2% og 1983 51%.
Síðasttalda og langmesta hækkunin kom í kjölfar eftirfarandi hækkana á tólf mánaða tímabilinu frá mars 1982: júní 3.6%, september 5.9%, desember 4%. Við svo búið varð augljóslega ekki lengur unað. Að vísu voru vandræði af þessum sökum ekki mjög mikil að því er varðaði ársgamla húsaleigusamninga eða eldri, en öðru máli gegndi um samninga gerða eftir marslok 1982. Þar gátu leigutakar orðið fyrir óréttmætum fjárhagslegu áfalli er yrði þeim mun meira sem lengra væri liðið á tólf mánaða tímabilið frá apríl 1982.
Gera mátti ráð fyrir að grunnleiga skv. nýjum húsaleigusamningi, gerðum t.d. í febrúar 1983, tæki á einhvern hátt mið af markaðsleigu á þeim tíma og mundi þá 51% hækkun leigu frá 1. apríl 1983, skv. samningsákvæði um að húsaleiga fylgdi vísitölu húsnæðiskostnaðar, ekki eiga neinn rétt á sér. Hér bar auðsjáanlega nauðsyn til að gripið yrði til sérstakra ráðstafana. Varð niðurstaðan sú að gefin voru út brbl., sem fylgja sem fskj. með frv. þessu, til lausnar á þessum sérstaka vanda. Ákvæði þar að lútandi eru í 1. gr. brbl.
Með því að fyrir lá að vísitala húsnæðiskostnaðar frá 1968 var orðin ónothæf sem mælikvarði til ákvörðunar verðbóta á húsaleigu var talið rétt að koma á fót nýju kerfi til að gegna þessu hlutverki, sbr. 2. og 3. gr. brbl. Talið var eðlilegt að húsaleiga skv. leigusamningum, er lögin tækju til, skyldi fylgja hlutfallslegum breytingum meðallauna á næstliðnum þremur mánuðum og breyttist hún eins og verið hafði ársfjórðungslega frá byrjun mánaðanna júlí, október, janúar og apríl. Hagstofan skyldi tilkynna opinberlega hver þessi breyting væri hverju sinni.
Skiptin frá hinni gömlu vísitölu húsnæðiskostnaðar til hinir nýju tilhögunar voru, eins og við var að búast, ýmsum vandkvæðum bundin. En vel rættist úr. Hagstofan leiðbeindi, aðallega í símtölum, fjölda fyrirspyrjenda og þegar fyrir lá að breytingin leiddi til ósanngjarnrar niðurstöðu benti Hagstofan á eðlilega lausn, sem svo að segja alltaf var samþykkt af leigusala og leigutaka.
Auk hækkunar þeirrar á húsateigu frá 1. maí 1983, sem ákveðin var í 1. gr. brbl., hefur húsaleiga, sem þau taka til, hækkað um 8.2% frá 1. júlí 1983, um 4% frá 1. jan. 1984, eða sem svarar því sem laun hækkuðu almennt frá 1. júní og 1. október 1983 skv. brbl. nr. 54 27. maí 1983.
Það skal tekið fram að setning þessara brbl. hefur ekki sætt gagnrýni í fjölmiðlum og að í hundruðum símtala Hagstofunnar við aðila, sem voru að leita upplýsinga og aðstoðar, var aðeins í örfáum tilvikum látin í ljós óánægja með þær aðgerðir sem fólust í brbl. skv. þeim upplýsingum sem ég hef fengið.
Að svo mæltu, herra forseti, leyfi ég mér að leggja til að þessu frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.