15.02.1984
Neðri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2871 í B-deild Alþingistíðinda. (2500)
61. mál, land í þjóðareign
Flm. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um land í þjóðareign. Tilgangur þessa frv. er að lýsa óbyggðir Íslands þjóðareign. Með því yrðu öll þau landsvæði sem aðrir en ríkið hafa ekki eignarheimildir fyrir eign þjóðarinnar í heild sinni og í umsjá ríkisins og Alþingis. Þessi eign næði til allra fasteignaréttinda, svo sem vatnsréttinda, jarðhita, námuréttinda og annarra réttinda sem bundin eru eignarrétti lands en beitarréttindi og veiðiréttindi yrðu óbreytt frá því sem nú er. Þetta frv. er þáttur í stefnumörkun Alþfl. um sameign þjóðarinnar á landi sínu. Það var áður flutt árið 1981 af þm. flokksins í Nd. og var þá Sighvatur Björgvinsson 1. flm. þess.
Sannleikurinn er sá að Íslendingar eru orðnir harla réttlausir í landi sínu. Fróðlegt er til samanburðar að taka þann rétt sem menn hafa til umgengni við land sitt í ýmsum grannlöndum okkar. Það vill svo til að mér er kunnugt um hvaða rétt menn hafa í þessum efnum t.d. í Svíþjóð. Þar er almannaréttur slíkur að allir geta gengið um landið eða farið um það á skíðum, hver svo sem eigandinn er, með þeirri einu undantekningu að um lóð í kringum hús eða sumarhús eða þvílíkt sé að ræða. Allir hafa rétt til þess að fara um stöðuvötn, hver svo sem telst hafa eignarhald á þeim, allir hafa rétt til þess að baða sig við strönd, hvernig svo sem á stendur í þeim efnum með eignarréttinn. Allir hafa rétt til þess að tína ber, sveppi eða blóm hvar sem er. Allir hafa heimild til að tjalda nema inni á húsalóðum.
Þessi réttindi eru okkur Íslendingum í raun ekki tryggð. Alls konar ákvæði eru hér í gildi þar sem þessi almannaréttur er hindraður. Í sjálfu sér væri ástæða til að fara fleiri orðum um réttleysi landleysingjanna, svo að segja, þeirra sem á mölinni búa, þeirra sem ekki eiga land. En ég vek sérstaklega athygli á þessu í sambandi við þetta mál og hversu óþolandi þau boð og bönn eru orðin sem hér eru við lýði varðandi umgengni við landið.
En að því er varðar sérstaklega óbyggðir Íslands hefur Hæstiréttur Íslands í rauninni kallað eftir því að sett yrði löggjöf af því tagi sem hér er mælt fyrir. Skv. nýlegum hæstaréttardómi á enginn beinan eignarrétt að afréttum en skv. þeim sama dómi getur Alþingi ákvarðað eignarrétt ríkisins með lögum og það yrði ekki talið eignarnám. Hæstiréttur hefur sem sagt með þessum dómi sínum nánast bent á að þá löggjöf skorti sem hér er flutt frv. um.
Það deiluefni sem hér um ræðir varðaði Landmannaafrétt. Dómurinn gekk 28. des. 1981. Þá var krafa ríkissjóðs að honum yrði tildæmdur beinn eignarréttur að Landmannaafrétti en til andmæla gaf sig fram hreppsnefnd Landmannahrepps og Holtahrepps og ábúendur jarða í Holtahreppi og í nokkrum fleiri hreppum þar í grenndinni. Héraðsdómur féllst á kröfu fjmrh. en málinu var áfrýjað. Þegar það kom til úrlausnar í Hæstarétti varð Hæstiréttur reyndar ekki sammála um afstöðu sína en meiri hlutinn, þ.e. þrír dómarar af fimm, taldi að óyggjandi sönnun fyrir eignarrétti ríkisins hafi ekki tekist og tók þess vegna ekki til greina kröfu fjmrh. Í forsendum þessa meiri hluta kom fram að Alþingi hafi ekki sett lög um þetta efni þó að það hefði verið eðlileg leið til að fá ákvörðun handhafa ríkisvalds um málsefni.
Niðurlag forsendnanna hjá meiri hluta Hæstaréttar er mjög athyglisvert. Þar segir:
„Hins vegar verður að telja að handhafar ríkisvalds, sem til þess eru bærir, geti í skjóli valdheimilda sinna sett reglur um meðferð og nýtingu landsvæðis þess, sem hér er um að ræða, en líta ber til þess að fyrirsvarsmenn ríkisins hafa viðurkennt „rétt byggðamanna til upprekstrar og annarra afnota, sem lög eða venjur eru fyrir.““
Gunnlaugur Claessen hæstaréttardómari ritaði grein um þetta mál í tilefni af 75 ára afmæli Sigurðar Ólasonar. Með hans leyfi hefur meginefni þessarar greinar sem birtist reyndar síðar í Morgunblaðinu 26. jan. 1982 verið tekið inn í grg. með því frv. sem ég mæli nú fyrir. Í niðurlagsorðum sínum segir Gunnlaugur Claessen, hrl.:
„Niðurstaðan er nánast sú að enginn eigi beinan eignarrétt að afréttinum. Eignarrétti heimamanna er alfarið synjað og meiri hlutinn telur ríkið ekki hafa sannað sinn rétt nægjanlega. Niðurlag forsendnanna er hins vegar athyglisvert. Það er ljóst, að Alþingi getur ákvarðað eignarrétt ríkisins með lögum, og slík löggjöf yrði ekki metin sem eignarnám, a.m.k. ekki gagnvart þeim sem voru aðilar þessa máls.“
Ég tel að hér sé í rauninni um ákall frá Hæstarétti að ræða þar sem hann biður einmitt um löggjöf af því tagi sem ég mæli nú fyrir fyrir hönd þm. Alþfl. að sett verði. Sannleikurinn er sá að hér er í rauninni um tómarúm að ræða í íslenskum lögum. Það tómarúm ber Alþingi að fylla. Ég held að hv. Alþingi hafi látið dragast allt of lengi úr hömlu að setja einmitt skýr og ótvíræð lög um eignarhald á landi, lög sem væru í samræmi við nútímaþörf og væru í rauninni til þess fallin að styrkja búsetu í sveitum landsins og auðvelda nýjum kynslóðum að taka við búskaparréttindum. Síðast en ekki síst er nauðsynlegt að kveða á um almannarétt til landsins og nytja þess. Þessu hefur löggjafinn í rauninni ekki sinnt af neinni alvöru eða einbeitni í marga áratugi.
Í rauninni búum við við löggjöf sem miðast við það að stór hluti þjóðarinnar séu landeigendur. En sú feikilega búseturöskun sem hefur átt sér stað á undanförnum áratugum hefur gert það að verkum að meiri hluti þjóðarinnar er í rauninni orðinn landleysingjar þó við segjum að Íslendingar eigi þetta land saman. Þess vegna bæri nauðsyn til þess að setja löggjöf um umferð um landið líka, frjálsa umferð um landið.
Það er út frá þessum atriðum sem hugmyndir Alþfl. um þjóðareign á landi hafa verið markaðar. Fyrstu tillögur flokksins um þau mál voru lagðar fram á Alþingi af Braga Sigurjónssyni alþm. árið 1970. Þar var um að ræða till. til þál. um endurskoðun löggjafar um óbyggðir landsins, vötn og ár, jarðhita og námur. Í till. var lagt til að Alþingi legði fyrir ríkisstj. að hún léti sérfróða menn semja frumvarp eða frumvörp að lögum um eignarráð og eignarréttindi yfir óbyggðum landsins, stöðuvötnum, fjallavötnum, jarðhita svo og hvers konar námum og vinnslu verðmæta úr jörðu þar sem stefnt væri að því m.a. að allt hálendi landsins og óbyggðir yrðu lýst alþjóðareign.
Þessi till. tók ýmsum breytingum við frekari meðferð málsins. Henni var breytt verulega árið 1972 og árið 1976 fluttu þm. Alþfl. í Ed., þeir Bragi Sigurjónsson og Jón Ármann Héðinsson, síðan frv. til l. um eignarráð yfir landinu, gögnum þess og gæðum. Þar höfðu þm. sem sagt breytt þáttill. um almenna stefnumörkun í þessum málum yfir í lagasmíð.
Þingmenn Alþfl. hafa einnig flutt sérstök þingmál þessu máli tengd, svo sem frv. til l. um breytingu á lögum um framkvæmd eignarnáms og frv. til l. um breytingu á orkulögum. Þetta gerðist á þingunum 1974, 1976 og 1978. Með því og þeim tillöguflutningi sem Alþfl. hefur haft uppi síðan 1978 hefur verið fylgt þeirri stefnu, þar sem hér væri um mjög yfirgripsmikið mál að ræða sem varðaði fjölmarga þætti, að brjóta það upp í mörg mál. Það mál sem ég mæti hér fyrir er því einungis eitt af þeim en fyrir öðru þeirra hef ég mætt hér áður á þessu þingi.
Þetta frv. takmarkast sem sagt við það eitt að lýsa öll þau landsvæði þjóðareign sem skýlausar eignarheimildir annarra en ríkisins finnast ekki fyrir. Lagt er til að það sé gert um öll landsvæði þar sem svo háttar til og auk þeirra um vatnsréttindi, jarðhita, námuréttindi og önnur fasteignaréttindi. Í framkvæmd mundi þetta þýða að allar óbyggðir Ístands yrðu lýstar þjóðareign ásamt flestum eða öllum afréttum og hálendissvæðum. Á þeim svæðum mun Íslenska þjóðin eins og ég hef áður bent á gera tilkall til allra fasteignaréttinda sem bundin eru eignarrétti lands en beitarréttindi sem fylgja einstökum bújörðum, upprekstrarfélögum eða sveitarfélögum stæðu óskert svo og veiðiréttindi og allar aðrar eignarheimildir annarra en ríkisins sem sönnun er færð fyrir.
Stefna af því tagi sem tekin er með 1. gr. frv. mundi þá jafnframt afgreiða endanlega ýmis deilumál sem niðurstaða þarf að fást í. Þessi lagasetning mundi taka af öll tvímæti um eignarréttindi á afréttum sem dómstólar hafa verið að fjalla um á undanförnum árum og m.a. þá með þeirri niðurstöðu sem ég vitnaði til hér áðan í hæstaréttardóminum frá 1981.
Það er vel líklegt að ágreiningur geti orðið og verði um hvaða lönd og landgæði eignarheimildir annarra en ríkisins liggi fyrir. Þess vegna er í 5. gr. frv. þessa gert ráð fyrir að fjmrn. sem á skv. frv. að annast framkvæmd laganna láti kanna eignarrétt á öllu landi og landsgæðum utan heimalanda og birti opinberlega. Rn. skal gefa öllum þeim sem hlut eiga að máli kost á að koma fram breytingum og leiðréttingum á skránni og loks er lögð sú skylda á herðar að ef óvissa þykir ríkja skuli fjmrn. leita úrskurðar dómstótanna. Með þessu á að vera frágengið svo öruggt sé að ekki verði um neinar eignarupptökur að ræða né eignarnám heldur aðeins það eitt að lýsa þau landsvæði og landsgæði þjóðareign sem aðrir eigendur finnast ekki að.
Um önnur atriði vil ég vísa til grg. með frv. sem felur m.a. í sér aths. um einstakar greinar frv. sem ég tel ekki ástæðu til að fara í að öðru leyti en ég hef þegar gert. En það skal ítrekað að með frv. er ekki gerð till. um eignaupptöku eða eignarnám á landsvæði, hlunnindum, eða öðrum eignaréttindum sem eru eign annarra en ríkisins. Samþykki frv. mundi engu breyta þar um. Einasti tilgangurinn er að lýsa yfir að land og landsréttindi sem aðrir eigendur finnast ekki að skuli eftirleiðis talin eign þjóðarheildarinnar og að um þá þjóðareign verði settar ákveðnar reglur sem tryggi bæði rétt og skyldur almennings gagnvart slíku landi og landgæðum.
Það er vel við eigandi að slíkt sé gert einmitt nú þegar þessi þjóð hefur nýlega varið miklu af fjármunum sínum til að bæta fyrir spjöll sem orðið hafa í umgengninni við landið og þegar rætt er um nauðsyn þess að vernda landið þannig að ekki sé á það gengið.
Ég vil að lokum, herra forseti, skora á hæstv. deild að taka þeirri áskorun Hæstaréttar um að fylla upp í það tómarúm sem er í íslenskum lögum varðandi þetta atriði. Það er ekki vansalaust að það skuli hafa dregist svo lengi. Nauðsynlegt er að setja skýr og ótvíræð lög um eignarhald sem sé í samræmi við nútímaþarfir. Það er í rauninni áfangi í því að gera öllum landsmönnum jafnhátt undir höfði í að njóta landsins. Ég tel, herra forseti, að hér sé um mikið réttlætismál að ræða og ég vænti þess að það fái góðar undirtektir í þessari hæstv. deild og legg svo að lokum til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til fjh.- og viðskn. hv. deildar.