15.02.1984
Neðri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2875 í B-deild Alþingistíðinda. (2502)

61. mál, land í þjóðareign

Kristín Halldórsdóttir:

Virðulegi forseti. Eins og væntanlega flestum er kunnugt erum við hætt að fara um landið með eld og kvígur svo sem forfeður okkar gerðu og frægt er í sögum. Þegar rölti þessu með nautgripi og eld lauk þá var enn eftir nokkuð af landi, helst klettum og klungri, land sem talið var einskis nýtt og enginn vildi eiga. Í byggð hafa menn nú yfirleitt fengið einhverja pappíra því til sönnunar að þeir eigi ákveðna landskika, en auðvitað hefur enginn pappír um að hann eigi það land sem enginn hefur nokkru sinni eignað sér. Það er enn einskis manns land en hefur löngum verið nytjað til beitar, a.m.k. þau svæði sem næst eru byggð.

Á seinni árum hafa nytjar þessara svæða mjög aukist. Auk hinnar hefðbundnu beitar nota menn nú land þetta til virkjana og ferðamennsku og landið sem enginn vildi eiga hér fyrrum verður nú æ vinsælla. En þetta land á enginn. Enginn veit í raun hver ber ábyrgð á þessu landi. M.a.s. sýslumörk eru sums staðar svo óljós að ef sækja þyrfti sýslumann upp á hálendi er ekki alls staðar ljóst hvaða yfirvald ætti að sækja. Allt veldur þetta hinni mestu óreiðu og má í því sambandi gera sér í hugarlund hvernig væri ef þessar aðstæður ríktu í þéttbýli. Eigendur húsa eiga yfirleitt lóðarskika umhverfis hús sín sem þeir hugsa um af natni. Land þar fyrir utan, opin svæði o.fl., er í umsjá yfirvalda borgarinnar. Ef landamæri eru einhvers staðar óglögg fer allt í bál og brand, nágrannar rífast, svæði komast í óhirðu o.fl.

Þótt aðstæður í Reykjavík og nágrenni séu harla ólíkar og á hálendinu eru vandamálin svipuð og líkjast æ meira eftir því sem notkun á hálendinu eykst. Frv. það sem hér er til umr. gerir ráð fyrir að þetta einskismannsland falli undir ríkið, sé sameign allra Íslendinga. Hlýtur það ekki að vera sjálfsagðasti hlutur í heimi? Það hlýtur að vera mjög svo eðlilegt að ríkið hafi með að gera umsjón þessa landsvæðis og því fyrr sem hægt er að koma einhverri reiðu á þessa hluti því betra. Óreiðan vex eftir því sem lengra liður og þeim mun erfiðara verður að taka á þessu máli. Það er því í mínum augum engin spurning um það hvort svona frv. verður að lögum heldur hvenær.

Ég sé ekki ástæðu til að gera aths. við einstakar greinar þessa frv. en vona að það fái verðuga umfjöllun. Vissulega eru í því snertifletir við önnur mál sem lögð hafa verið fram á þessu þingi og sjálfsagt að skoða þau mál í samhengi.