15.02.1984
Neðri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2876 í B-deild Alþingistíðinda. (2503)
61. mál, land í þjóðareign
Pálmi Jónsson:
Virðulegi forseti. Frv. þetta felur í sér tvö meginatriði. Í fyrsta lagi að þau landsvæði skuli teljast þjóðareign sem eignarheimildir einstaklinga eða annarra lögaðila finnast ekki fyrir. Í öðru lagi að fjmrn. annist framkvæmd laganna og hafi eftirlit og umsjón með öllum eignum og réttindum sem bundin verða eigu þjóðarinnar skv. 1. gr.
Frv. er gamall kunningi. Frv. af þessu tagi var flutt fyrir einu eða tveimur árum á Alþingi og undanfari þessa frv. voru ýmis þingmál Alþfl. á undangengnum þingum sem gengu misjafnlega langt í því að kveða á um að íslenska ríkið skyldi slá eign sinni á landið.
Varðandi það frv. sem hér liggur fyrir og fyrra meginatriðið má segja að í sjálfu sér sé æskilegt að úr því sé skorið hver eigi land og þau önnur réttindi sem landsvæðum eru bundin sem skýrar eignarheimildir liggja ekki fyrir um. Í mörgum tilvikum liggur þetta nú fyrir að mati a.m.k. þeirra sem notað hafa landið, þ.e. bændanna í landinu. Í mörgum tilvikum telja bændur landsins að fyrir liggi hver á t.a.m. afréttarlöndin og ekki sé nema í tiltölulega fáum tilvikum sem hægt sé að segja að þetta land eigi enginn eins og hv. síðasti ræðumaður Kristín Halldórsdóttir komst að orði hér áðan.
Hitt er hins vegar umhugsunarefni hvort gildandi lög í landinu kveði nógu skýrt á um eftir hverju skuli farið þegar úrskurðað væri um eignarrétt landsins. Það er auðvitað meginatriði þegar til þess kæmi að kveða upp úrskurð — sem í mörgum tilvikum mundi verða hlutverk dómstóla — um hvað af því landi sem einhver vafi leikur á um eignarráð yfir skuli teljast þjóðareign, ríkiseign skv. þessu frv. eða hvaða landsvæði það eru sem gildar eignarheimildir liggja fyrir um.
Það vill svo til að ég hef heyrt mjög virtan lögfræðing halda því fram í opinberu erindi að skjallegar heimildir sem gefnar eru út á tilteknum tíma eftir þeim reglum sem þá giltu um útgáfu afsala geti verið þess efnis að ekki sé víst að þau yrðu metin gild. Rökin fyrir því voru þau að ekki verði hægt að sanna að öll fyrri eigendaskipti á því tiltekna landsvæði einhvern tíma áður en skjalleg eignarheimild var gefin út hafi farið fram með lögformlegum hætti. Þetta verður vitaskuld aldrei hægt að sanna því ekki verður hægt að sanna að eigendaskipti í gegnum tíðina, allt aftur til landnámstíðar, hafi ævinlega farið fram með lögformlegum hætti og að einhver sem talinn hafi verið eigandi landsins á því tímaskeiði — eða í ellefu aldir — hafi í raun verið löglegur eigandi þess. Þegar svo langt er seilst til raka af hálfu virtra lögfræðinga er von að setji að mönnum ugg sem telja að skjallegar eignarheimildir eigi að halda.
Þess vegna varpaði ég fram þeirri fsp. hér hvort ekki kynni að vera nauðsynlegt að um leið og slík lög væru sett sem hér er frv. að væri kveðið á um að þær skjallegu eignarheimildir sem fyrir liggja og eru til um eignarráð á tilteknum landsvæðum, þ. á m. afréttarlöndum, séu virtar og teknar gildar.
Enn má vitna til þess að í sambandi við þá hneigð dómstóla að úrskurða ríki í vil í sambandi við eignarráð á landi hafa lög um hefð, nr. 46 frá 10. nóv. 1905, ekki alltaf haldið. Í þessum lögum segir í 1. gr., með leyfi hæstv. forseta:
„Hefð má vinna á hverjum hlut, jafnt fasteign sem lausafé, er getur verið eign einstakra manna, án tillits til þess, hvort hann var áður einstaks manns eign eða opinber eign.“
Enn fremur:
„Skilyrði fyrir hefð er 20 ára óslitið eignarhald á fasteign, en 10 ára óslitið eignarhald á lausafé.“
Í flestum tilvikum þar sem land er nýtt þrátt fyrir að skjallegar eignarheimildir liggi ekki fyrir hafa bændur landsins, samtök þeirra, félög þeirra eða sveitarfélög, farið með afréttarland, nýtt afréttarlönd og annast þau sem sína eign í áratugi og í mörgum tilvikum aldir. Nú segir auðvitað í lögum að hefð megi ekki vinna með ólögmætum hætti. En hafi land komist í hendur tiltekins aðila án þess að með ólögmætum hætti sé og hann farið með sem sína eign í tuttugu ár án þess að mótmælt hafi verið af einhverjum öðrum má a.m.k. með mínum leikmannsaugum skilja sem hann hafi unnið það fyrir hefð. Þetta hefur ekki alltaf haldið fyrir dómstólum og má nokkurri furðu gegna.
Þannig eru alls ekki eins skýr ákvæði í lögum og ætla mætti og jafnvel ekki eins skýr niðurstaða dómstóla í slíkum málum og maður kynni að ætla miðað við þau gögn og þau lög sem fyrir liggja í landinu.
Þetta vildi ég láta koma fram við 1. umr. um þetta mál og tel afar nauðsynlegt að ef farið væri í það að kveða á um eignarheimildir skv. þessu frv. yrði í fyrsta lagi skýrt að þær eignarheimildir sem fyrir liggja yrðu teknar gildar án slíkra útúrsnúninga sem ég kalla og heyrði í erindi hjá tilteknum virtum lagamanni. Eins tel ég að ástæða væri til að líta á þessi lög um hefð sem eru orðin nærri 80 ára gömul.
Að öðru leyti skal ég ekki ræða um 1. gr. og þennan megintilgang frv. annað en að alltaf verður og alltaf hlýtur að vera heppilegt að ráðast í það verkefni, hvort sem það er gert fyrr eða seinna, að kveða skýrt á um hver land eigi og hver ekki. Eðlilegt er að það sé ríkiseign þar sem ekki eru eignarheimildir fyrir og þar sem land hefur ekki unnist fyrir hefð skv. íslenskum lögum.
Um annað meginatriði þessa frv., sem sé að fjmrn. skuli annast framkvæmd þessara laga ef sett yrðu og hafa eftirlit með öllum eignum og réttindum sem bundin eru í eigu þjóðarinnar skv. hinu fyrra meginatriði þessa máls, vil ég lýsa því yfir að ég er þessu öðru meginmarkmiði frv. atgerlega andvígur. Meðferð þess lands sem frv. er ætlað að taka til er í mjög mörgum, mér liggur við að segja flestum, tilvikum verulega bundin landbúnaðarnotum og í mjög nánum tengslum við landbúnaðarlöggjöf sem gildir í landinu. Það er afar óheppilegt og að mínum dómi rangt að slíta þau tengsl í sundur. ég tel þess vegna tvímælalaust rétt að það land sem er í eigu ríkisins falli undir meðferð landbrn. eins og það gerir að mestum hluta í dag.
Önnur atriði í þessu frv. skal ég ekki ræða hér. Það leiðir af því sem ég hef þegar sagt um annað meginatriði frv. að ég tel ekki rétt að það sé fjmrn. sem fái það hlutverk að láta kanna eignarrétt á öllu landi og landgæðum utan heimalanda lögbýla. Það ætti að vera annarra hlutverk, þeirra sem með þessi mál fara.