27.10.1983
Sameinað þing: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í B-deild Alþingistíðinda. (251)

1. mál, fjárlög 1984

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það frv. til fjárlaga fyrir árið 1984 sem hér er nú til umr. er hið fyrsta frv. núv. hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstj. Ég hygg að ýmsir hafi vænst þess að í fjárlagafrv., hinu fyrsta núv. hæstv. fjmrh., væru ýmsir hlutir eftirtektarverðir, miðað við allt það sem á undan hefur gengið. Og vissulega eru ýmsir þættir í þessu fjárlagafrv. eftirtektarverðir, og fer það að sjálfsögðu eftir því hver á lítur hvort það telst til hins betra eða verra. En að því mun ég koma síðar.

Ég vil fyrst gera að umræðuefni í örfáum orðum það sem mér finnst að hafi gerst nýtt í sambandi við fjárlagafrv. af hálfu einstakra hæstv. ráðh.

Það hefur verið svo, það ég best veit, lengst af ef ekki alla tíð að Alþingi sjálft hefur fyrst fengið vitneskju um innihald fjárlagafrv., þ.e. að ekki hefur verið talað úti í bæ um einstaka þætti þess áður en Alþingi sjálft hefur fengið frv. í hendur. Hins vegar mun það nú hafa gerst að a.m.k. tveir hæstv. ráðh., báðir úr Framsfl. að ég hygg, hæstv. forsrh. og hæstv. félmrh., hafa fjallað um einstaka þætti fjárlagafrv. á opinberum vettvangi áður en Alþingi fékk málið til meðferðar. Þetta eru vinnubrögð af hinu verra tagi. Hvað sem efnisinnihaldi frv. líður ættu menn að halda sig við það, að Alþingi á að vera fyrsti aðilinn sem fær að sjá frv. — áður en aðrir aðilar úti í bæ fá vitneskju um innihald þess.

Ótal spurningar hljóta að vakna í sambandi við þetta fjárlagafrv. — eins og raunar önnur. Spurningar, sem hljóta að verða til þess að upplýsingar verður að fá, ef menn á annað borð eiga að geta gert sér grein fyrir hugsanlegum heildarniðurstöðum um fjármál ríkisins. Að því er tekur til frv. sjálfs er augljóst að mikilvægir þættir ýmsir eru bæði laushnýttir og sumir óhnýttir. Og meðan ekki fást skýringar á þeim mikilvægu þáttum, á hvern hátt með eigi að fara, er engan veginn raunhæft að hægt sé að gera sér grein fyrir til hverra áhrifa frv., yrði það að lögum í þeirri mynd sem það nú er, mundi leiða. Öll framlög til atvinnuvegasjóðanna eru t.d. felld niður. Án þess að ég ætli að fara að ræða lánsfjáráætlun hér sérstaklega, það mun annar gera af hálfu Alþfl. í þessum umr., þá mun þar að vísu vera gert ráð fyrir lántökum til handa þessum aðilum. Ekki verður séð með hvaða hætti á að ráða fram úr húsnæðismálaþættinum. Að vísu sé ég að í lánsfjáráætlun er gert ráð fyrir að fjármagna hann annars vegar með — ja, líklega upptöku á flestum lífeyrissjóðum í landinu og síðan með afgangi af skyldusparnaðarpeningunum. Líklega hefur ræða hæstv. fjmrh. verið samin áður en fyrirsögnin í Tímanum birtist í dag, þar sem mér sýnist aðstoðarmaður hæstv. félmrh. leggja til að skyldusparnaðarkerfið verði hreinlega lagt niður. Ég sé nú ekki að það dæmi komi heim og saman, að ætla sér að taka fjármuni úr því kerfi sem að sögn aðstoðarmanns hæstv. félmrh. ekkert gefur, húsnæðismálakerfið verði fjármagnað með því. En hvað sem þessu líður þá er þarna enn gat sem ekki er séð fyrir með hvaða hætti á að stoppa í, ef svo má orða það, þ.e. að fjármagna húsnæðismálakerfið í landinu, sem er þó kannske einn veigamesti þátturinn sem snýr að almenningi í landinu og húsbyggjendum.

Það er ljóst að til vegagerðar vantar um 500 millj. kr. til þess að hægt sé að standa við þá langtímaáætlun í vegamálum sem allir voru sammála um á síðasta Alþingi að hrinda í framkvæmd, enginn flokkur undanskilinn af þeim sem þá áttu fulltrúa á Alþingi. Til þessa þáttar vantar a.m.k. 500 millj. kr. Það er því auðséð, þó að ekki séu nefndir fleiri þættir en hér hefur verið drepið á, að afgreiðsla þeirra hefur mikil áhrif á niðurstöður fjárlaga og framkvæmd þeirra á næsta ári.

En hverjar eru meginforsendurnar sem þetta frv. byggir á? Það byggir á því að gengi verði stöðugt á næsta ári. Ég hygg að flestir geti verið sammála um það að ekki er það traustvekjandi forsenda í fjárlagafrv. að gengið verði svo til óbreytt, eða stöðugt miðað við það sem nú er, á árinu 1984. Það er gert ráð fyrir að launahækkanir verði á bilinu 4–6% á næsta ári sem þýðir, ef á að halda við þá stefnu, að áframhaldandi kjaraskerðing er fyrirhuguð á öllu næsta ári umfram það sem nú þegar er komið til framkvæmda. Og það er gert ráð fyrir því sem einni af forsendum frv. að hækkun vöruverðs verði um 4% á næsta ári. Ég held að það hljóti að vera öllum umhugsunarefni hvort þessar þrjár meginforsendur fjárlagafrv. geti talist trúverðugar til að byggja á fjármál ríkisins á árinu 1984. Ég dreg a.m.k. mjög í efa að gengismálin verði með þeim hætti sem frv. gerir ráð fyrir. Ég dreg einnig mjög í efa að launamálin verði með þeim hætti sem frv. gerir ráð fyrir. Og ég dreg ekki síst í efa að þróun vöruverðs í landinu verði með þeim hætti sem frv. gerir ráð fyrir. (Gripið fram í: Viltu gengislækkun?) Það er ekki spurning um hvað ég vil. Ég hef ekki lagt þetta frv. fram. Ég hygg að hv. formaður fjvn. viti hver leggur frv. fram og það er verið að tala um það. Sé honum ekki um það kunnugt, þá veit hann það nú.

Á sama tíma og þetta á að gerast, þ.e. vöruverð að hækka um 4%, launafólk að fá tekjuaukningu sem nemur 4–6%, ætlar ríkið sjálft að taka til sín, í „hinn þrönga ríkisgeira“, eins og ég held að hæstv. fyrrv. fjmrh. hafi orðað það hér áðan, á bilinu frá yfir 50% og upp í 114% hækkun.

Það má að vísu segja að í sumum tilvikum er hér um tímamót að ræða. Ég hef sagt það áður og ég get sagt það enn. Það er að vissu leyti, sýnist mér, gerð tilraun til aðhalds. En það er auðvitað spurning hvort hver og einn einstaklingur telur þá tilraun gerða á réttum stöðum, hvort ekki hefði verið ástæða til að beita aðhaldinu og niðurskurðinum á öðrum stöðum en frv. gerir ráð fyrir.

Ég held að menn geti ekki dregið aðra ályktun af þessu fjárlagafrv. en að skattbyrði hljóti að aukast á árinu 1984. Það er gert ráð fyrir því að innheimta tekjuskatts einstaklinga aukist á árinu 1984 um 28% frá því sem hún er á árinu 1983. Á sama tíma er gert ráð fyrir launahækkun á bilinu 14–16%. Engum getur því blandast hugur um það að hér er um íþyngingu skatta að ræða. Og á sama hátt er um þyngingu t.d. sjúkratryggingagjaldsins að ræða. Þar er byggt á sömu forsendum og varðandi tekjuskattsþróunina á næsta ári. Einnig er ljóst að á sama tíma og laun eiga að hækka á bilinu 14—16% er gert ráð fyrir að byggingarvísitalan hækki um 22–23%. Í þeim þáttum sem ég hef gert hér að umtalsefni er því augljóst, að um er að ræða íþyngjandi byrðar á launþega umfram þá beinu kjaraskerðingu sem þegar hefur átt sér stað með aðgerðum hæstv. ríkisstj.

Það kemur líka á óvart, eins skeleggur talsmaður niðurfellingar skatts á skrifstofu- og verslunarhúsnæði og hæstv. fjmrh. hefur verið undangengin ár, að sá skattur skuli enn vera látinn standa í þessu fjárlagafrv. (Fjmrh.: Ill nauðsyn.) Nauðsyn brýtur lög, segir ráðh. En hann sagði að vísu hér áðan, hafi ég tekið rétt eftir, að hann muni leita allra ráða til að þessi skattur verði ekki viðloðandi öllu lengur.

Þá er ljóst að það á að skera niður í almannatryggingakerfinu um 300 millj. kr. Ekkert liggur fyrir um það með hvaða hætti á að framkvæma þennan niðurskurð. Það er afskaplega erfitt að tala um 300 millj. kr. niðurskurð af nokkru raunsæi á meðan engin vitneskja hefur um það fengist hvernig á að framkvæma hann. Verður að gera þá kröfu til hæstv. fjmrh. og ríkisstj. í heild að tillögur þar að lútandi sjái dagsins ljós hið fyrsta, svo að menn geti þá talað um þann hlutann sem raunveruleika. Svona lagað hefur sést áður, að gert hefur verið ráð fyrir niðurskurði á tiltekinni fjárupphæð og sagt að frekari útlistanir á þættinum kæmu síðar fram. En þær hafa aldrei séð dagsins ljós.

Ég get ekki stillt mig um að vekja sérstaka athygli á því, að hrikalegur niðurskurður á sér stað á Framkvæmdasjóði fatlaðra. Með hliðsjón af lögum sem samþykkt voru hér á síðasta þingi og fjölluðu m.a. um fjárveitingar til hans sýnist mér vera um nær helmings niðurskurð að ræða. Nú skal ég taka það fram að mér er fullljóst að ekki varð undan því vikist, miðað við ríkjandi ástand efnahags- og þjóðmála, að grípa til aðhalds og niðurskurðar. En mér sýnist að þeim niðurskurði, sem beitt er í frv. á ýmsum þáttum, hefði verið nær að beita annars staðar, hjá aðilum sem mega frekar við samdrætti en t.d. Framkvæmdasjóður fatlaðra.

Það er líka eftirtektarvert að í frv. er gert ráð fyrir að tekjur Erfðafjársjóðs muni skila á næsta ári í kringum 40 millj. kr. En samkv. frv. sýnist mér aðeins gert ráð fyrir að greiða út úr Erfðafjársjóði 19 millj. af þessum 40. Hitt ætli ríkið sér að hirða.

Það hlýtur líka að vekja verulega eftirtekt, ekki síst í ljósi margítrekaðra yfirlýsinga margra hæstv. ráðh. um aðhald og sparnað í ríkisgeiranum þrönga, eins og hv. þm. Ragnar Arnalds talaði um, að önnur rekstrargjöld hjá ríkissjóði eigi að hækka um 93.5% á sama tíma og heimilunum í landinu er ætlað að búa við 4–6% tekjuaukningu. Auðvitað fer þetta ekki saman. En þetta er eftirtektarvert í frv. sem hæstv. fjmrh. og ríkisstj. öll hefur boðað sem sérstakt aðhalds- og sparnaðarfrv. í ríkisgeiranum. (LJ: Þetta er þvættingur.) Hvað segir hv. formaður fjvn., er honum farið að líða illa undir umr. eða hvað? (LJ: Þetta er þvættingur.) Þú færð orðið hér væntanlega á eftir og þá tölum við betur saman. (LJ: Berðu saman réttar tölur.) Ég heyrði ekki betur, kannske hefur hv. formaður fjvn. ekki hlýtt á hæstv. fjmrh., ég heyrði ekki betur en hann læsi nákvæmlega það sama í sinni ræðu eins og ég er hér að fara með. Það er hægt að fletta upp á því fyrir hv. þm. Lárus Jónsson, sé honum ekki um þetta kunnugt, sem ætti þó að vera sem formanni fjvn.

Nei, hér stangast hlutir greinilega á, og eftir því verður tekið af launafólki, þegar svo herfilega er misboðið í aðhaldi og sparnaði, að á sama tíma og alþýðuheimilum í landinu er ætlað að búa við 4–6% tekjuaukningu á næsta ári skuli ríkið ætla að taka til sín svo gífurlega umfram það sem því var gert á árinu 1983. Það er vissulega athyglisvert.

Nú hafa menn hlýtt á bæði núv. hæstv. fjmrh., sem í raun og veru var guðfaðir fyrrv. hæstv. ríkisstj. að verulegu leyti, og hæstv. fyrrv. fjmrh., þ.e. samherjana úr fyrrv. hæstv. ríkisstj. Og beri menn nú saman túlkunina hjá þessum tveim hæstv. fyrrv. samstarfsmönnum í ríkisstj. á því ástandi sem sú ríkisstj. skapaði hér á landi í óstjórn efnahagsmála. Hæstv. fjmrh. lýsir þessu ástandi í aths. með sínu eigin frv. á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Þetta fjárlagafrv. ber merki þess hættulega ástands sem ríkti þegar ríkisstj. tók við á s.l. vori“, af þeirri ríkisstj. sem Steingrímur Hermannsson var ráðh. í, núv. hæstv. forsrh., ríkisstj. sem núv. hæstv. fjmrh. var stuðningsmaður að og kom á laggirnar og ber fulla ábyrgð á. Áfram segir: „Þjóðarframleiðsla hefur dregist saman annað árið í röð og er því spáð, að þessi samdráttur muni nema um 10% á mann á árunum 1982 og 1983. Verðbólga stefndi langt yfir 100%, sem haft hefði í för með sér m.a. óbærilega greiðslubyrði atvinnuvega og einstaklinga. Atvinnubrestur hefði fylgt í kjölfarið ef ekki hefði verið að gert. Erlend skuldasöfnun var orðin stóratvarleg og langt umfram það sem hægt er að réttlæta með lántökum til arðbærra framkvæmda. Jafnvel á metaflaárunum 1980 og 1981 varð halli á viðskiptum þjóðarinnar við útlönd miðað við þjóðarframleiðslu. Á árinu 1982 var þessi halli enn alvarlegri. Undanfarin ár hafa því verið tekin erlend lán til eyðslu umfram efni. Áætlaðar heildarskuldir þjóðarbúsins erlendis verða u.þ.b. 60% af þjóðarframleiðslu um næstu áramót. Slíkri eyðsluskuldasöfnun verður að linna svo að fjárhagslegu sjálfstæði þjóðarinnar verði ekki hætt.“

Þetta segir núv. hæstv. fjmrh. í grg. með sínu fyrsta fjárlagafrv. eftir að hafa stutt hæstv. fyrrv. ríkisstj. allan hennar valdaferil og bera þar fulla ábyrgð á. (Fjmrh.: Það er rangt.) Það er ekki rangt, hæstv. ráðh. Sú ríkisstj. hefði ekki á laggir komist ef hæstv. núv. fjmrh. hefði ekki léð henni sinn stuðning. (Fjmrh.: Það er rétt.) Þá er þetta allt saman rétt. Enda hygg ég að hæstv. fjmrh. hefði ekki sett þetta í fjárlagafrv. eða grg. þess ef hann hefði ekki talið að það væri rétt.

Það er sérstök ástæða til að vekja athygli á því ástandi sem hér er lýst. Þetta er eins og talað út úr brjósti Alþfl.-manna, lýsingin á ástandinu, því ástandi sem þeir hafa varað við undanfarin ár að mundi koma upp ef haldið yrði áfram á sömu braut óráðsíu í efnahagsstjórn landsins. Væri betur að þeir sem bera ábyrgð á þessu ástandi hefðu fyrr hlýtt á varnaðarorð Alþfl. um efnahagsmálastjórnina í landinu.

Samkv. fjárlagafrv. er ráð fyrir því gert að framlög til framkvæmda muni hækka að meðaltali um 11% frá fjárlögum yfirstandandi árs. Þetta á við um t.d. grunnskóla, dagvistunarheimili, sjúkrahús, flugvelli og hafnargerðir. Þetta á líklega ekki við um framkvæmdir við seðlabankabygginguna. (Gripið fram í.) Ég veit það, en eigi að síður mætti hæstv. fjmrh. líta til fleiri átta en þeirra sem beint snúa að fjárlagafrv. Til þess ætlumst við. (Gripið fram í.) Er ekki bankamálaráðherra í hæstv. ríkisstj. eða ber hann enga ábyrgð á þessu frv.? Er þetta persónulegt frv. hæstv. fjmrh.? Það er ástæða til að spyrja um það eftir svona aths. frá hæstv. ráðh. Eða ber að líta svo á, að hæstv. fjmrh. hafi gert tilraun til þess að halda í við seðlabankabygginguna en ekki tekist? Er þá ekki ástæða til fyrir hæstv. ráðh., eftir þetta svar, að koma með frv. að lagabreytingu um þá hluti hér á Alþingi, sem heimilar þá hæstv. ríkisstj. að stjórna í landinu í þeim þætti eins og öðrum? Ég a.m.k. hef talið upp á að skapgerð hæstv. fjmrh. stæði ekki upp á annað en hann fengi því ráðið sem hann vildi ráða. Sé svo ekki, þá er mér farið að förlast.

Nei, auðvitað þarf aðhald. Engum blandast hugur um það. En því aðhaldi verður að beita skynsamlega og því aðhaldi á að beita skipulega, ekki grípa niður hingað og þangað, meira og minna af handahófi, án þess að nokkrum raunverulegum tilgangi eða takmarki sé náð. Mér sýnist að það sé meira um þau vinnubrögð í þessu frv. þó að ég viðurkenni eins og ég áður hef sagt að það hefur líklega verið einhver vilji til þess að gæta aðhalds og sparnaðar, en hann kemur æði kynlega fyrir sjónir þegar málið birtist hér á hv. Alþingi.

Ég sagði hér áðan að það kæmi mér kynlega fyrir sjónir, ef menn á annað borð hafa í huga réttlæti, að sjá það í fjárlagafrv. að á sama tíma og fjölskyldunum, heimilunum í landinu er ætlað að búa við 4–6% tekjuaukningu skuli ríkið ætla að taka til sín talsvert á annað hundrað prósent í hækkunum til yfirstjórnar á ráðuneytunum. Eða hvernig fer það saman í réttarvitund almennings að á sama tíma og launafólk á að fá 4– 6% tekjuaukningu skuli t.d. forsrh. sjálfur ætla að taka til yfirstjórnar í sínu eigin rn. upphæð sem er 107% hærri en hann hafði til ráðstöfunar á árinu 1983? Í öllu sparnaðartalinu og þrengingarólatalinu til heimila þessa lands ætlar forsrh. sjálfur að hækka fjárveitingu til yfirstjórnar í sínu eigin rn. úr 8.6 millj. kr. í nærri 18 millj. Það hefði þótt gott hjá heimilunum að fá slíka hækkun. Svona má rekja í gegnum allt fjárlagafrv. hækkanir í yfirstjórn ráðuneytanna, sem eru á bilinu frá 50% upp í 114%, á sama tíma og öðrum aðilum er ætlað að bera mjög skarðan hlut frá borði, ef ekki strikaðir algerlega út úr frv. Ég sé ekkert sem réttlætir slíka málsmeðferð af hálfu hæstv. ríkisstj., að krefjast aðhalds og sparnaðar hjá öðrum en eyða og sóa sjálf út fyrir öll velsæmistakmörk miðað við ástandið sem ríkir í þjóðfélaginu. Ef það er rétt, sem hv. stjórnarliðar halda fram, að hér sé byggt á raunverulegri þörf ráðuneytanna til þessara fjármuna er a.m.k. ástæða til að spyrja hæstv. fjmrh. hverju aukafjárveitingar til ráðuneytanna nemi á árinu 1983, ef hér er byggt á raunveruleikanum um á annað hundrað prósent hækkun miðað við árið í ár. Það væri fullkomin ástæða til þess að Alþingi fengi slíkan lista. (Gripið fram í.) Já, ég ætlaði nú að koma að því síðar, hæstv. ráðh., en fyrst þú minnist á það er sjálfsagt að taka það til athugunar.

Ég hjó eftir því í ræðu hæstv. ráðh. að hann orðaði það einhvern veginn svo, efnislega a.m.k. þó það sé ekki orðrétt, að ekki þýddi fyrir aðila að koma í fjmrn. á næsta ári til þess að biðja um aukafjárveitingar. Ég hygg að menn minnist þessara orða að hausti, þegar menn fara að ræða fjárlög fyrir árið 1985, hvort hæstv. ráðh. hefur alveg lokað kistunni fyrir aukafjárveitingum til allra aðila í ríkiskerfinu á næsta ári.

Fjvn. hefur ekki mér vitanlega verið spurð um aukafjárveitingar. Þær hafa ráðh., óeðlilega að mér finnst, leyft sér að afgreiða sjálfir. En vissulega ætti slíkt að fara til fjvn. (Fjmrh.: Sammála.) Ég efast ekki um það, skynsamur maður, hæstv. fjmrh. (Gripið fram í: Sammála.) En hann gleymdi að segja það. Það þurfti að minna hann á það.

Ekki verður hjá því komist að minnast örfáum orðum á þau sjónarmið og þá skoðun hæstv. fjmrh. sem hann hefur látið út ganga um sölu ríkisfyrirtækja. Í ljósi þeirrar skoðunar, án þess að ég ætli að úttala mig neitt um afstöðu til hennar fyrr en menn sjá eitthvað fyrir sér í þeim efnum, hefði verið fullkomin ástæða til að fá að sjá, t.d. sem fskj. eða upplýsingar með fjárlagafrv., hvaða ríkisfyrirtæki það eru sem hæstv. fjmrh. vill láta kanna sölu á. Það hefði verið ástæða til þess. Þess vegna skýtur það skökku við að á sama tíma og hæstv. fjmrh. talar um sölu ríkisfyrirtækja er í fjárlagafrv. boðuð aukning hlutafjár ríkisins um 25 millj. í Áburðarverksmiðjunni. (Gripið fram í: Lög.) Lög? Menn geta ekki alltaf skotið sér á bak við lög. Lögum er hægt að breyta ef menn vilja. Þetta er ekki gild ástæða. Ef hæstv. fjmrh. er þeirrar skoðunar að stefna eigi að sölu ríkisfyrirtækja í hendur einkaaðilum þá skýtur skökku við að sjá svona boðskap hæstv. ráðh. á Alþingi.

Það hefur verið vikið hér að þeirri hlið fjárlagafrv. sem varðar afborganir til Seðlabankans. Ég skal ekki gera það að umræðuefni. En á fjárlögum ársins í ár, muni ég rétt, er þó gert ráð fyrir að borga 100 millj. í afborganir af skuld til Seðlabankans. Ég sé ekki að gert sé ráð fyrir slíku í fjárlagafrv. En hafi mér missýnst þá hlýtur það að koma í ljós við afgreiðsluna. Um það skal ég ekki fara fleiri orðum.

Á sama hátt er, að því er ég best sé, ekki gert ráð fyrir greiðslu vaxta af yfirdrætti sem skapast hefur í Seðlabankanum. Það er um stórar fjárfúlgur að ræða, sem hlýtur með einhverjum hætti að verða að bjarga, og ég sé ekki með hvaða hætti hæstv. ríkisstj. ætlar sér að gera það. En að sjálfsögðu hlýtur það að koma í ljós við frekari skoðun og afgreiðslu málsins.

Einn er sá þáttur í þessu fjárlagafrv. sem ég held að menn þurfi að staldra við og skoða. Það er í sambandi við afgreiðslu til sýslumannsembætta í landinu. Það hefur lengi verið höfuðverkur og áhyggjuefni a.m.k. ýmissa fjvn.-manna hvernig mál í þeim þætti hafa þróast. Þar hefur svo að segja engu aðhaldi — eða hömlum kannske réttara sagt — verið hægt að koma á eitt eða neitt í útgjaldaaukningu. Og enn a.m.k. ekki sjáanlegt að neinu aðhaldi verði komið þar við eða hömlum.

Ég get ekki stillt mig um, af því að hæstv. fjmrh. situr hérna fyrir framan mig, að víkja með örfáum orðum að þeim þætti í ræðu hæstv. ráðh., sem hann flutti hér áðan, sem er á bls. 56. Þar segir, með leyfi forseta:

„Við viljum tengja saman efnahagslegar ákvarðanir og ábyrgðina af afleiðingum þeirra.“ Það hefði bara mátt bæta við: með því að strika úf allar skuldir útgerðarinnar. Það hefði mátt bæta því við, gera menn ábyrga með því að strika út allar skuldirnar. (AG: Það hefur gleymst.) Ég held að hæstv. ráðh. ætti að bæta þessu inn í ræðuna svo að það stæði í skjölum þingsins með hvaða hætti þetta skyldi fara saman, efnahagslega ábyrgðin og að strika út skuldirnar. En nóg um það.

Mér sýnist á ýmsu í þessu fjárlagafrv. að það þurfi verulegrar athugunar við. Þar eru ýmsir smáliðir, sem mönnum finnst kannske sjálfsagt að strika út og kasta fyrir róða, en geta þó verið þess eðlis að þeir koma viðkomandi aðilum mjög vel. Mig hryllir t.d. í raun og veru við því að sjá í fjárlagafrv. að það eigi að strika út 210 þús. kr. fjárveitingu til samtaka aldraðra, á sama tíma og mér sýnist að það séu nægir peningar í ríkiskassanum til þess að auka fjárveitinguna til Hallgrímskirkju um 300% frá árinu í ár, án þess að ég ætti á nokkurn hátt að vera neikvæður í garð kirkjunnar í landinu, síður en svo. En ég veit að kirkjulega þenkjandi menn hefðu líka viljað sjá í frv. nokkurn stuðning við samtök aldraðra í landinu. Þess vegna endurtek ég það að mér sýnist mönnum hafa verið á ýmsan hátt mislagðar hendur, vægast sagt, þegar þeir ætluðu sér að gæta aðhalds og sparnaðar í ríkiskerfinu.

Mér kemur það líka einkennilega fyrir sjónir nú, þegar talað er hvað mest um að hlúa þurfi að fiskvinnslunni með tilliti til aukinnar framleiðni og gæðamats, að ekki skuli vera ætlaður eyrir til framkvæmda við Fiskvinnsluskólann á fjárlögum ársins 1984, ekki eyrir. Á sama tíma og allflestir eru um það sammála að auðvitað hljóti þjóðfélagið að byggja á því í framtíðinni, eins og raunar verið hefur í fortíðinni, hvernig fer með þennan grundvallaratvinnuveg þjóðarinnar, hvort hægt er með ýmsum samverkandi aðgerðum að halda þannig á málum að hann skili meiru til þjóðarbúsins, þá sýnir hæstv. ríkisstj. hug sinn með því að ætla ekki eyri til framkvæmda við Fiskvinnsluskólann á árinu 1984, sem ætti auðvitað að vera eitt af forgangsverkefnum miðað við stöðu okkar þjóðarbús. En þar er kannske miklu nauðsynlegra að auka fjárveitingar til varnarmáladeildarinnar um 113% frá því sem er í ár og hækka fjárveitingar til Búnaðarfélagsins um yfir 60% frá því sem er í ár, en að líta til þessara og hinna átta sem ég hef verið hér aðeins að nefna. Mætti raunar nefna miklu fleiri þætti en ég hef gert.

Og það er best að það komi fram að ég sé ekki að það þurfi að hafa uppi neinn sérstakan harmagrát vegna Lánasjóðs ísl. námsmanna, hvernig hann er meðhöndlaður í þessu frv., miðað við ýmsa aðra mikilvæga þætti innan okkar þjóðarbús. Ég held að menn hljóti að fara að skoða hug sinn á þeim tímum sem við nú lifum á um þær tölur sem hæstv. fjmrh. vitnaði hér til áðan, þegar Lánasjóður ísl. námsmanna er farinn að taka til sín á næsta ári meira fjármagn en velflestar hinar nauðsynlegustu framkvæmdir í landinu. Þetta er á engan hátt talað af illgirni í garð skólafólks, síður en svo, en auðvitað verður það að taka á sig byrðar eins og aðrir, og ekkert síður. Það verður ekki undan því vikist. Það hefur verið lagt á launþega landsins og það á að leggja það á alla.

Ég skal, herra forseti, fara að stytta mál mitt. Ég vil þó ekki skilja við þessa umr. án þess að gera með nokkrum orðum að umræðuefni orkujöfnunargjaldið margumtalaða. Hæstv. núv. fjmrh. virðist hafa fallið í sömu gröf og hæstv. fyrrv. fjmrh. Ragnar Arnalds að kippa þessu út úr fjárlagafrv. sem sérstökum fjárlagalið eins og hann var áður. Samkv. því frv. sem hér er um að ræða er gert ráð fyrir að orkujöfnunargjaldið muni gefa í tekjur á árinu 1984 420 millj. kr. Af því á að skila til þess verkefnis, sem þessu gjaldi er lögum samkv. ætlað að þjóna, aðeins tæpum 300 millj. kr. Það má því segja að núv. hæstv. ríkisstj. ætli að taka ófrjálsri hendi örlítið minna af þessu gjaldi en hæstv. fyrrv. fjmrh. og ríkisstj. gerði, taka ófrjálsri hendi örlítið minna til eigin þarfa en undanfari hennar gerði. Með tilliti til þess til hvers gjaldið var ætlað og að allir urðu sammála um að leggja það á, sem er 1.5% söluskatts, verður að gera kröfu til stjórnvalda, hver sem þau eru, um að þau skili öllu andvirði þessa gjaldstofns til þess verkefnis sem því var ætlað. Annað er að taka hlutina ófrjálsri hendi. Það má víst ekki orða það sterkar hér án þess að fá áminningu hæstv. forseta. En það mætti orða það á hreinni íslensku betur. (ÓÞÞ: Heldurðu að forseta klígi við hreinni íslensku?) Held ég að hann klígi? Ekki voru það mín orð. En ég veit að hæstv. forseti vill gæta alls velsæmis í umr. manna á meðal, þótt skrifari sé ekki þess þenkjandi. Það er svo annað mál. En ég skora á hæstv. fjmrh., því að ég treysti honum til margra góðra hluta, að sjá til þess að öllu andvirði þessa gjalds verði skilað til réttra aðila samkv. því sem ákvarðað var þegar gjaldið var á lagt með samþykki allra alþm. á sínum tíma. Annað er algert óréttlæti að því er þennan tekjustofn varðar.

Ég skal ekki, herra forseti, hafa um þetta öllu fleiri orð. Það mætti margt fleira segja um það fjárlagafrv. sem hér er nú til umr. Frv. á örugglega eftir að taka breytingum, ég skal ekkert segja hversu miklum, en breytingum hlýtur það að eiga eftir að taka í meðförum fjvn. og þingsins. En sé það rétt, sem núv. hæstv. fjmrh., samherji fyrrv. hæstv. fjmrh. úr fyrrv. ríkisstj., heldur fram, að óstjórnin í efnahagsmálum í tíð fyrrv. hæstv. ríkisstj. hafi verið orðin svo gegndarlaus þegar núv. ríkisstj. tók við að grípa þyrfti til slíkra aðgerða sem bæði þetta fjárlagafrv. og aðrar ráðstafanir ríkisstj. með brbl.-útgáfu hafi knúið hana til, þá er lýsingin ekki góð og afraksturinn ekki góður frá tíð fyrrv. hæstv. fjmrh. og full ástæða til að hvetja ekki bara þingheim heldur og þjóðina alla til að kynna sér í reynd, með eigin augum þá staðreynd, sem Alþfl. hefur haldið fram um mörg undanfarin ár, að stjórn efnahagsmála hafi verið með þeim hætti að hún hlyti fyrr en seinna að leiða til þess ófremdarástands sem efnahags- og fjármál þjóðarinnar virðast nú komin í eftir setu fyrrv. hæstv. ríkisstj.