15.02.1984
Neðri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2882 í B-deild Alþingistíðinda. (2511)
129. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. minni hl. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Má ég biðja hæstv. fjmrh. að vera viðstaddan. (Forseti: Hæstv. fjmrh. er í salnum.) Herra forseti. Í framhaldi af ræðu hæstv. fjmrh. vildi ég benda á að það liggur fyrir, m.a. í gögnum sem nú liggja fyrir fjh.- og viðskn. Nd., að kaupmáttur ellilífeyris hefur rýrnað um 23–27% á seinustu 12–16 mánuðum. Ég tel þetta að sjálfsögðu algerlega óviðunandi, en vil vekja athygli á þessu í sambandi við þær umr. sem hér fara fram um fyrirframgreiðslur skatta. Hér er því sem næst um þá hlutfallstölu að ræða sem hæstv. fjmhr. sagði að rauntekjusamdráttur þyrfti að nema til þess að hægt væri að endurskoða fyrirframgreiðslur. Nú liggur fyrir í gögnum að elli- og örorkulífeyrir hefur einmitt skerst um þessa prósentutölu. Er þá ekki fyllsta ástæða til að koma strax til móts við þetta fólk og létta af því fyrirframgreiðslunni a.m.k. sem þessu nemur? Ég tel að gera ætti allt sem unnt er til að koma til móts við þetta fólk. Ég vil beina því til hæstv. fjmrh. nú, þegar þetta er upplýst, hvort hann geti ekki beitt sér fyrir því, úr því að þessi gögn liggja fyrir, að það verði veittur almennur afsláttur til ellilífeyrisþega upp á 25% af fyrirframgreiðslunni þangað til að annar úrskurður hefur verið felldur.