15.02.1984
Neðri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2885 í B-deild Alþingistíðinda. (2519)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til lánsfjárlaga. Frv. hefur þegar hlotið afgreiðslu í virðulegri Ed. Alþingis. Í samræmi við stefnu ríkisstj. var efnahagsstefnan í launa-, gengis- og ríkisfjármálum mótuð við gerð fjárlaga og lánsfjáráætlunar fyrir árið 1984. Komið hefur fram að stefnt er að sem stöðugustu gengi krónunnar. Í ljósi erfiðrar afkomu í efnahagsmálum er aðeins svigrúm til launahækkana er nema 4%. Þessa dagana standa yfir kjarasamningar. Veltur á miklu að þeir komi út í sem mestu samræmi við markaða stefnu stjórnvalda svo að takast megi að fyrirbyggja uppgang verðbólgunnar að nýju hér á landi. Eins og allir vita er mikilvægt að viðhalda þeim stöðugleika sem þegar hefur náðst á undanförnum mánuðum. Má minna á að nýverið var tilkynnt um hækkun framfærsluvísitölunnar í janúarmánuði og nam hún 0.63% sem þýðir 7–8% á ársgrundvelli. Eins vita allir að slíkur árangur hefur ekki komið af sjálfu sér heldur með samstilltu átaki allra landsmanna. Það er deginum ljósara að launahækkanir umfram þann ramma sem stjórnvöld hafa lagt til munu fyrr eða síðar hleypa verðlaginu á skrið að nýju.
Á síðustu árum hefur verið mjög mikið um erlendar lántökur hér á landi til að fjármagna ýmsar fjármagnsfrekar framkvæmdir, einkum á sviði fjárfestingar, en einnig til að fjármagna almennan innflutning. Með þessu móti hefur verið haldið uppi mikilli eftirspurn og fullri atvinnu á síðustu árum. Nú er svo komið að það er mönnum áhyggjuefni hversu háar erlendar skuldir þjóðarinnar eru, en þær nema um 60% af þjóðarframleiðslunni. Lánsfjáráætlun og frv. til lánsfjárlaga árið 1984 var byggt á ströngu aðhaldi í innflutningi og opinberum framkvæmdum. Allt kapp var lagt á að auka ekki skuldsetningu þjóðarbúsins og áformaðar erlendar lántökur voru takmarkaðar við það.
Við meðferð Ed. Alþingis hafa verið gerðar nokkrar breytingar á frv. til lánsfjárlaga. Í heild fellur sú afgreiðsla þó vel innan þess ramma sem settur hefur verið um erlendar lántökur alls 4573 millj. kr. og þar af renna 2871 millj. kr. til opinberra aðila. Meiri hl. fjh.og viðskn. Ed. mælti með samþykkt frv. með þeim brtt. sem hann flutti á sérstöku þskj. Ég ætla nú að gera grein fyrir þeim breytingum sem frv. hefur tekið við umfjöllun n. í Ed.
Umfjöllun fjvn. um fjárlagafrv. leiddi til breytinga sem jafnframt hafa áhrif á lánsfjárfrv. Nauðsynleg heimild til erlendrar lántöku A- og B- hluta ríkissjóðs er nú metin alls 1641 millj. kr. í stað 1708 millj. kr. eins og var í frv. til lánsfjárlaga. Heimild til innlendrar lánsfjáröflunar er nú talin 600 millj. kr. í stað 478 millj. og deilist þannig, að ríkissjóði, A- og B-hluta, eru ætlaðar 278 millj. kr. og Byggingarsjóði ríkisins 322 millj. kr. Ákvörðun ríkisstj. frá s.l. ári um að hækka veitt lán Húsnæðisstofnunar um 50% jók útgjöld stofnunarinnar um 280–290 millj. kr. Á árinu 1984 koma til greiðslu 122 millj. og er því sótt um lántökuheimildir fjárlaga til að fjármagna þetta verkefni. Árið 1983 námu lánveitingar vegna þessa verkefnis 160 millj. kr. Var það fjármagnað með 43 millj. kr. skuldabréfasölu og 120 millj. kr. fjárútvegun ríkissjóðs. Þá er hér jafnframt sótt um heimild til 200 millj. kr. skuldabréfaútgáfu vegna sérstakrar fjáröflunar til Byggingarsjóðs ríkisins eins og fram kemur í aths. við lánsfjárlagafrv.
Við afgreiðslu fjárlaga urðu þær breytingar að lánsfjáröflun til Vegagerðar lækkaði um 87 millj. kr., m.a. vegna hækkunar á mörkuðum tekjum til vegagerðar. Á móti hækkuðu fyrirhuguð lántaka Byggingarsjóðs rannsóknastofnana atvinnuveganna um 2 millj. kr. og stefnt er að lántöku hjá Póst- og símamálastofnuninni alls 30 millj. kr. Heimild til þeirrar lántöku liggur fyrir í sérlögum. Í meðförum Ed. er að auki gert ráð fyrir lántöku vegna kaupa á flugleiðsögutækjum flugmálastjórnar að andvirði allt að 17.4 millj. kr., en ekki var ætluð fjárveiting vegna þessa í fjárlögum 1984. Fyrir Alþingi liggur frv. um lántöku o.fl. vegna byggingar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Er það 140. mál Ed. Þar er gert ráð fyrir að árlega verði lántökur til flugstöðvarframkvæmda ákveðnar í lánsfjárlögum. Hér er miðað við, eins og fram kemur í aths. lánsfjárlagafrv., að lántaka verði 88.8 millj. kr. í ár. Ég vek athygli á þessu vegna umfjöllunar um frv. um flugstöð í Keflavík, sem liggur fyrir Alþingi til afgreiðslu.
Hv. Ed. Alþingis taldi nauðsynlegt að gefin yrði nánari sundurliðun en fram kemur í lánsfjáráætlun um ráðstöfun lánsfjár Landsvirkjunar til framkvæmda. Mörgum sýnist að Alþingi ætti að fjalla nánar en oft hefur verið um framkvæmdir á vegum Landsvirkjunar, enda erlendar lántökur fyrirtækisins mjög miklar. Að höfðu samráði við iðnrn. var lagt til að framkvæmdum yrði hagað í samræmi við þá skiptingu sem fram kemur í 3. gr. frv. til lánsfjárlaga á þskj. 349.
Á 4. gr. frv. var gerð eftirfarandi breyting: Fyrirhuguð er lántökuheimild til grænfóðurverksmiðju í Skagafirði, alls 9 millj. kr. Ráðgert er að þetta lán endurgreiðist með auknu hlutafé eignaraðila, en verksmiðjan á í miklum fjárhagserfiðleikum. Þá er lántaka vegna sjóefnavinnslu á Reykjanesi hækkuð um 11 millj. kr., í 45 millj. kr. Er þetta nauðsynlegt vegna vaxta og afborgana af eldri lánum. Ekki er gert ráð fyrir framkvæmdum við saltverksmiðjuna á árinu.
Við gerð áætlunar fyrir Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar láðist að taka tillit til fjármagnskostnaðar vegna skuldbreytinga á lánum hitaveitunnar. Því var lögð til viðbótarlánsheimild að fjárhæð 14 millj. kr. Þannig nemur lánsfjárheimild alls 22.5 millj. kr. Þá féllst fjh.- og viðskn. Ed. á ósk Hitaveitu Kjalarness um heimild til 25 millj. kr. lántöku til stofnframkvæmda við lagningu hitaveitu í hreppnum að því tilskildu að samkomulag náist um þá framkvæmd milli hlutaðeigandi aðila og að iðnrn. veiti veitunni rekstrarleyfi í samræmi við ákvæði orkulaga.
Bætt var við nýrri gr. í frv., 27. gr., þar sem frestað er gildistöku ákvæðis um lánveitingar Lánasjóðs ísl. námsmanna á árinu 1984. Því er, eins og var á árinu 1983, gert ráð fyrir að 95% af umframfjárþörf námsmanna verði mætt.
29. gr., sem var 28. gr., breyttist með tvennum hætti. Í fyrsta lagi er þar viðbótarheimild til erlendrar lántöku vegna lánsfjárlaga fyrir 1983. Í ljós hefur komið að fjármagnsútgjöld vegna Kröflu og byggðalínu reyndust hærri en áður var talið. Því er sótt um heimild til 400 millj. kr. viðbótarlántöku í stað 340 millj. kr. Í öðru lagi er leitað heimildar til ríkisábyrgðar vegna lántöku Hitaveitu Vestmannaeyja og Hitaveitu Rangæinga á árinu 1983, alls 39.2 millj. kr.
Hins vegar liggur hér frammi hjá formanni hv. fjh.og viðskn. Nd. brtt. um heimild fjmrh. til endurgreiðslu á lendingargjöldum Flugleiða vegna Norður-Atlantshafsflugsins á tímabilinu 1. okt. 1983 til 31. des. 1984 og skal framkvæmdin ákveðin í samráði við fjvn. Alþingis.
Á það hefur verið bent að hvergi sé að finna lausn á fjárhagsvanda skipaiðnaðarins, útgerðar eða landbúnaðar. Jafnhliða því sem þessi mál eru í skoðun hefur verið afráðið að á þeim skuli ekki tekið í lánsfjárlögum. Því hljóta þessi mál að koma til kasta Alþingis síðar. Augljóst er þó að bankakerfið og lánastofnanirnar verða að leggja sinn skerf af mörkum til lausnar á erfiðleikum atvinnuveganna.
Hjá því fer ekki, að mjög miklu skiptir að innlendi lánsfjármarkaðurinn bregðist vel við sölu spariskírteina og annarra verðtryggðra skuldaviðurkenninga. Það er stefna núv. stjórnar að snúa af þeirri braut að leita ávallt í erlenda lánsfjármarkaði þegar afla þarf lánsfjár. Takist ekki að afla fjár til húsnæðislánakerfisins eða ríkissjóðs tel ég annað ekki koma til greina en að endurskoða útlánaáform Húsnæðisstofnunar og fjármál ríkissjóðs. Til þess að gera sölu spariskírteina álitlega var ákveðið að bjóða hærri vexti en áður. Nú eru til sölu 80 millj. kr. í formi verð- og gengistryggðra pappíra og hafa selst um 20 millj. kr. þegar.
Herra forseti. Ég hef ekki fleiri orð um þetta mál að sinni, en vona að hv. Nd. Alþingis bregði skjótt við og afgreiði þessi lánsfjárlög með hraði, því að það er farið að standa á samþykkt þeirra.