15.02.1984
Neðri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2894 í B-deild Alþingistíðinda. (2523)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Herra forseti. Ég sakna hér hv. 7. þm. Reykv., virðulegs þm. Ólafs Ragnars Grímssonar. Ég vil þá leyfa mér að svara hv. 4. landsk. þm. nokkrum orðum. Hann hóf máls með því að gera með nokkrum almennum orðum lítið úr því frv. sem hér er til umr. og endaði þann kafla ræðu sinnar með því að segja að það væri óvitlaust ef einhver gerði nú tillögur til úrbóta. Ég vil taka undir þau orð. Það væri afskaplega gaman ef einhvern tíma kæmu tillögur til úrbóta frá þeim hv. þm. í staðinn fyrir ekkert annað en neikvætt tal þegar hann hefur komið í ræðustól þann stutta tíma sem hann hefur verið hér á Alþingi. Ég fagna því, ef við getum fengið góðar tillögur til úrbóta sem gengju upp í heildardæmi þjóðarinnar. Ég er búinn að vera hér á Alþingi í 10 ár og er fjmrh. og treysti mér alls ekki til að segja að ég hafi heildaryfirlit yfir störf Alþingis og jafnvel ekki það sem mér er trúað fyrir. Það er langt frá því að ég sé alvitur í fjármálum þjóðarinnar þó ég hafi verið átta mánuði í embætti. Ef hv. þm. gæti, án þess að hafa verið hér á Alþingi nema nokkra mánuði og þó hann hafi enga þekkingu á störfum fjmrn. og litla á fjármálum þjóðarinnar, látið okkur í té tillögur sem gætu leyst öll vandamál þjóðarinnar í einum hvelli, eins og hann virtist tala, þá væri ég fyrsti maður til að fagna því.
Ég vil upplýsa hann og aðra virðulega þm. um að lánsfjármarkaðurinn í ár er ótryggur. Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því og ég hef ekki leynt áhyggjum mínum vegna þess arna. Ég á erfitt með að sjá að Atvinnuleysistryggingasjóður standi við sitt. Hann gerði það ekki s.l. ár. Aftur á móti treysti ég því nokkuð að lífeyrissjóðirnir standi við þau 40% skuldabréfakaup sem þeim eru ættuð, eftir tvo fundi sem ég hef átt með þeim. Þeir stóðu við heildarframlag sitt á s.l. ári þó ekki færi allt í þann farveg sem ríkisstj. þá óskaði eftir. Þeir keyptu 120 millj. af veðdeildum og öðrum aðilum en framkvæmdasjóðum þeim sem ríkisstj. hafði óskað eftir. Ég á ekki von á að þeir bregðist.
Bregðist eitthvað, þá hef ég margoft sagt hér að mér dettur ekki í hug að reyna að blekkja Alþingi né heldur almenning, og síst af öllu þá sem koma til með að reikna með lánum til húsbygginga. Ef við náum ekki þeim peningum sem við ætlum að ná í gegnum skuldabréfasölu þá verður að draga úr framkvæmdum. Ef við segjum eitthvað annað, þá erum við að blekkja því að erlendar lántökur verða ekki auknar og það verður ekki aukinn yfirdráttur í seðlabankanum frekar en orðið er og ríkissjóður er afgreiddur með halla. Frekari álögur á fólkið koma ekki til greina. Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd, að ástandið eins og það var þegar þessi ríkisstj. tók við er það slæmt að við höfum ekki efni á að gefa nein loforð. Það er kominn tími til þess að segja satt svo að ungt fólk leggi ekki í fjárfestingar sem standa svo hálfkláraðar árum saman og hlaða á sig kostnaði. (SJS: Á ekki að segja satt í kosningum líka?) Það er tími til kominn að einhver úr Alþb. fari að átta sig á því, að það er einmitt sannleikurinn sem gildir. (SJS: 80 prósentin?) Ég er að tala hér um staðreyndir, eins og þær blasa við í dag, en ekki kosningaloforð eða kosningaslagorð sem byggð voru á þeim upplýsingum sem lágu fyrir þegar flokkarnir undirbjuggu sig undir kosningabaráttu. Við verðum að byggja á því sem reyndist vera staðreynd þegar núverandi stjórnarherrar komust í skjöl og sáu hvernig málin stóðu. Það var áður en virðulegur frammíkallandi kom til þings.
Það er rétt hjá virðulegum þm. Guðmundi Einarssyni, 4. landsk. þm., að ef þessi lánsfjáröflun bregst þá þarf að endurskoða útlánastefnuna. Það er alveg ljóst. Þetta hef ég margoft endurtekið og ég hef sagt hvernig ég hef hugsað mér að standa að því. Um miðjan mars kemur hér fram í fyrsta skipti endurskoðuð staða ríkissjóðs og endurskoðuð fjárlög eftir aðeins tvo mánuði frá því að þau eru gerð, vegna þess að þau eru komin út á svo ranga braut, að það þarf að þoka þeim stig af stigi inn á rétta braut, til þess að alþm. almennt viti með stuttum fyrirvara hvernig staðan er og við getum sameiginlega leiðrétt það sem aflögu hefur farið langa tíð í fjárlagagerðinni og að fjárlagagerð geti orðið það stýritæki sem hún á að vera, hver sem fer með stjórn. Og þó að mér takist ekki neitt annað en að fá fjárlögin endurskoðuð reglulega fyrir opnum tjöldum með öllum þm. frá einum mánuði til annars — ég hafði hugsað mér að leggja fram skýrslu á þriggja mánaða fresti en sé nú ástæðu til að gera það á tveggja mánaða fresti — þá tel ég að ég hafi átt erindi í þetta embætti.
Hv. þm. minntist á offjárfestingu í Landsvirkjun og raforkuiðnaðinum. Þar eru 900 millj., þar af 200 millj. í Blöndu. Ég vil bara upplýsa hann og aðra ágæta þm. um það að þessi upphæð, 900 millj., þó að hún sé stór í augum hv. 4. landsk. þm., er mikið niðurskorin miðað við þær óskir sem komu frá iðnrn. við gerð fjárlaga, mjög mikið niðurskorin. Ég get ekki svarað því á þessari stundu hvað raforkuverðið væri ef kostnaðurinn við Kröflu væri tekinn inn í raforkuverðið. Það er spurning sem virðulegur þm. óskar eftir að fá svar við. Ég vona að hann fái það í fjh.- og viðskn. Ef ekki, þá ætti hann að láta mig vita. Mér er ljúft að útvega honum það svar skriflega. En ég vil mótmæla því að frekar athuguðu máli frá því að virðulegur þm. hélt ræðu að reiknað sé með 2% aukningu skulda. Það er reiknað með að fjárlagadæmið eins og það liggur fyrir, verði það samþykkt í heild sinni eins og hér er lagt til, verði — ekki vel innan við, en innan við 60% af þjóðarframleiðslu. Það var það orðið þegar þessi ríkisstj. tók við. Hér er því ekki um skuldaaukningu að ræða að því marki sem virðulegur þm. gat um. Ég vil undirstrika það, til þess að það verði ekki hártogað, að ekki er um skuldaaukningu að ræða. Það hefur ekki farið fram úr 60% af þjóðarframleiðslu.
Hv. 7. þm. Reykv. hélt hér sína venjulegu ræðu í árásarstíl ef svo mætti segja. (ÓRG: Hún var mjög hógvær.) Mjög hógvær. Miðað við það að heldur hefur dregið niður í virðulegum þm. má til sanns vegar færa að hún var mjög hógvær. Líklega eru það vonbrigði yfir því að ná ekki kjöri sem gera hann hógværari en við eigum að venjast, en þó var hann ekki hógvær.
Hv. þm. segir að frv. sé staðfesting á uppgjöf og staðfesting á óbreyttu ástandi í peningamálum. Ég er ekki viss um hvað hann á við. Á hann við það ástand sem ríkti þegar sú stjórn sem hann studdi hvað mest og drengilegast fór frá? Það var sannarlega hrein uppgjöf. Öll sú vinna sem þar var unnin síðustu dagana bendir til uppgjafar og er staðfesting á óeðlilega slæmu ástandi í peningamálum. Hann segir að þúsundir Íslendinga búi við sára fátækt og er að gera því skóna að þetta sé árangurinn af nokkurra mánaða stjórnarsetu þessarar stjórnar, en ekki árangur af fyrrv. stjórnarsetu Alþb., sem fór þá með peningamálin, ekki framhald af því neyðarhrópi sem kom um fjögurra ára neyðaráætlun, svo mikla neyðaráætlun að þeir vildu jafnvel taka saman höndum við Sjálfstfl. til að bjarga þjóðinni frá því ástandi sem þeir höfðu búið henni.
Það er tiltölulega fátt í þessari upphrópunarræðu prófessorsins, virðulegs 7. þm. Reykv., sem er beinar spurningar til mín. Ýmist segir hann að skuldirnar hafi stóraukist, þannig hóf hann ræðu sína, eða hann segir að það vanti örfá prósentustig til að erlendar skuldir fari yfir 60% af þjóðarframleiðslunni. Rökréttur prófessorinn þar. En hann segir líka að aðgerðirnar í brbl. hafi verið rangar. Ég hef áður borið saman aðgerðir fyrrv. ríkisstj. með sínum brbl. og aðgerðir núv. ríkisstj. með sínum brbl. Þær þola fyllilega samanburð. Helsti munurinn er sá að núv. ríkisstj. greip til mildandi ráðstafana en fyrrv. ríkisstj. herti á þvingunum með auknum álögum á fólkið, með fleiri vörugjaldsflokkum og auknu vörugjaldi og það fór beint út í verðlagið, enda stefndi þá verðbólgan í 130%. Allt stangast hvað á annars horn.
Þá var talað um skuldasöfnun við Seðlabankann. Lokar virðulegur 7. þm. Reykv. augunum fyrir staðreyndum, fyrir því ástandi sem ríkti í yfirdrætti í Seðlabankanum og á öðrum sviðum þegar fyrrv. ríkisstj. fór frá? Eða á að reyna að blekkja fólk með því að hylja sannindi með upphrópunum og slagorðum sem blekkja ekki nokkurn mann lengur? Alþb. er tímaskekkja í íslensku þjóðfélagi og í íslenskum stjórnmálum sem blekkir engan mann lengur.
Ég skil það af málflutningi virðulegs 7. þm. Reykv. að hann boðar tafir á afgreiðslu í nefnd. Ég vona að hans iðja, sem hann stundaði með svo góðum árangri þegar hann var kjörinn þm., bregðist honum í þetta sinn, því að það liggur á að ganga frá þessu frv. endanlega sem fyrst.
Ekki er nú 7. þm. Reykv. trúverðugur þegar hann tekur upp hanskann fyrir Kristnisjóð eða íslenska kirkju. Hann er lítið trúverðugur þá. En ég vil taka það fram hér að ég ætlast til þess að kirkjan, hvort sem það er í gegnum Kristnisjóð eða aðrar stofnanir kirkjunnar, taki á sig hlutfallslega sömu byrðar og almenningur þarf að gera í landinu, virðuleg eins og sú stofnun er, og henni hef ég sýnt hlýhug og velvilja alla tíð, ekki bara úr ræðustól í orðagjálfri á Alþingi, hún taki á sig sömu byrðar og almenningur gerir þegar að kreppir eins og nú. Ég stend upp og segi henni það. Biskup hefur líka komið á minn fund, ekki bara fjh.- og viðskn., og ég segi honum nákvæmlega hverju ég treysti mér til að standa að, hvað ég treysti mér til að gera og hvað ég treysti mér ekki til að gera, þannig að hann veit nákvæmlega á hverju hann á von og hann veit nákvæmlega hvernig hann þarf að standa að sínum fjármálum. Það er ekki bara litla fólkið, það er ekki bara þjóðin annars vegar og kirkjan hins vegar, það eru allir þegnar þessa lands sem þurfa að taka á sig sínar byrðar. Öðruvísi verður ástandið, sem Alþb. skildi eftir sig í fjármálum, ekki lagað. Það held ég að öllum sé ljóst.
Annars er fróðlegt að rifja það upp fyrir virðulegan 7. þm. Reykv. að í lánsfjárlögum frá 1982 segir svo í 26. gr., með leyfi forseta:
„Þrátt fyrir ákvæði 20. gr. laga nr. 35 frá 1970 um skipan prestakalla og prófastsdæma og Kristnisjóð skal framlag ríkissjóðs til Kristnisjóðs eigi fara fram úr 1 millj. 130 þús. kr. á árinu 1982.“
Annað fengu þeir ekki í Kristnisjóð á því ári. En forveri minn, virðulegur 3. þm. Norðurl. v., veitti síðar aukafjárveitingu sem nemur 600 þús. kr., þannig að einnig þessi vörn Kristnisjóðs, sem ég er sannfærður um að Kristnisjóður er ekkert hrifinn af, bregst virðulegum 7. þm. Reykv. Hann segir að það sé hljótt um fjmrh. í tali hans um 4% rammann og prófessorinn og íslenskumaðurinn kallar það að vera kjaftaglaður þegar menn segja hug sinn. Betra íslenskuorð hlýtur að vera hægt að finna í Háskólanum.
Einsdæmi að ráðh. leggi niður embætti sitt eða leggi embætti sitt að veði fyrir samvisku sína, segir þar. Ég get fullvissað 7. þm. Reykv. um það, að þrátt fyrir það að ráðherrastólar kunni að vera heitir og mjúkir, eins og hann orðar það, mun ég standa við mín orð. Og bið ég virðulegan þm. að bíða þangað til á reynir en vera ekki með fullyrðingar, sem eru hreinar ágiskanir frá hans hálfu, um vilja minn og getu til að standa hér eftir sem hingað til við allt það sem ég ætla mér að standa við og hef lofað. Ég endurtek það og bið hann um að rifja upp hvenær hann hefur reynt mig að því að bregðast því sem ég hef lofað. Þessu hef ég lofað sjálfum mér. Náist ekki sá árangur að halda verðbólgunni á þeirri braut sem hún nú er, þá endurtek ég: ég hef ekkert í þá ríkisstj. að gera sem snýr við í baráttunni við verðbólguna. Og það hefur enginn séð mína hæla þegar á hefur þurft að reyna. Þannig er mín skapfesta á við ykkur alla hér ef þið rengið það. (GHG: Hvern einasta?) Hvern einasta. (GHG: Það efast ég um.) Virðulegur flokksbróðir minn getur haft sinn efa, hann hefur ekki þurft á því að halda enn þá að á það reyndi. (Gripið fram í.) Hann getur átt það eftir. (GHG: Við getum verið skapfastir hinir líka.) Ég held að ég hafi svarað þeim aðalspurningum sem komu fram hjá virðulegum 7. þm. Reykv.
Ég hef ekki neinu að svara virðulegum 4. þm. Norðurl. e. öðru en því, að hann á mikið eftir ótært ef hann getur ekki einhvern tíma orðið einmana innan um margmenni.