15.02.1984
Neðri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2901 í B-deild Alþingistíðinda. (2526)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Það er ákaflega sérkennilegt að heyra hæstv. fjmrh. skammast út í fyrrv. ríkisstj. og aðgerðir hennar þegar öllum er ljóst að hann var guðfaðir þeirrar ríkisstj. Það var ekki fyrr en hann gaf sig fram með stuðning við þá stjórnarmyndun sem möguleikinn myndaðist til að hún yrði mynduð. Þessi hæstv. ráðh. og þáv. þm. hélt lífinu í þeirri ríkisstj. meðan hún lafði. Hann sér kannske eftir því, það má vel vera. En þetta eru staðreyndir sem menn verða að hafa í huga.
Ég ætla ekki, herra forseti, að fara út í mörg atriði hér í sambandi við þessi lánsfjárlög sem eru til umfjöllunar. Ég hef áður gert þau að umtalsefni, m.a. í sambandi við afgreiðslu á fjárlögum. En það eru fáein atriði sem mig langaði til að drepa á.
Fram kom í máli hæstv. ráðh. áðan að því er varðaði Kristnisjóð að hann yrði að bera sömu byrðar og aðrir. Nú veit ég ekki hvað hæstv. ráðh. telur að byrðarnar séu að jafnaði þungar ef þær eiga að vera hinar sömu hjá öllum. En sá niðurskurður sem boðaður er í lánsfjárlögunum er 35% af þeim tekjum sem sjóðurinn hefur gert ráð fyrir. Það er þó a.m.k. meiri niðurskurður og þyngri byrðar en menn sjá á ýmsum öðrum liðum. En það er einkennandi að þeim byrðum sem ríkisstj. ætlar þegnunum að bera er heldur misjafnt skipt niður.
Það hefur verið gert eilítið að umtalsefni í dag — ég gerði það m.a. og hv. 7. þm. Reykv. gerði það áðan — að kaupmáttur ellilífeyris hefði minnkað um u.þ.b. fjórðung á s.l. ári. En það sem meira er, kaupmáttur ellilífeyris hefur ekki verið eins lágur og hann er núna a.m.k. s.l. 14 ár, allar götur síðan 1970. Ég hef ekki gögn lengra aftur í tímann.
Það vill svo til, hæstv. ráðh., að fyrir jól bað ég um yfirlit í fjh.- og viðskn. um það hver hefði verið þróun kaupmáttar ellilífeyris á undanförnum árum. Svarið var svona lengi að fæðast að það kom ekki í möppurnar til okkar í n. fyrr en í dag. Kaupmáttur elli- og örorkulífeyris 1971 var 120. Á árabilinu 1972–77 hefur hann verið frá 118 og upp í 140. Á árabilinu 1978–80 var hann á bilinu 126–136. Á árinu 1981 var hann 124. Og á miðju árinu 1982 er hann 122. Kaupmátturinn hefur sem sagt verið á bilinu 122–140 að einu ári undanteknu, árinu 1976. En hvað er hann núna?
Fyrir seinasta ársfjórðung 1983 var hann 87.9 og hann er enn lægri núna. Þetta þýðir að. kaupmáttur elli- og örorkulífeyris hefur rýrnað um hvorki meira né minna en 28% frá því á miðju árinu 1982. Hann var byrjaður að rýrna í tíð fyrrv. ríkisstj. En þó hefur keyrt úr hófi á þessu ári. Hver hefði trúað því fyrir s.l. kosningar ef ég hefði staðið upp eða aðrir talsmenn Alþfl. og sagt: Eitt af því sem sú ríkisstj. mun gera sem verður hér mynduð af Sjálfstfl. og Framsfl. — eins og þá lá þegar í loftinu verður að skerða svo kjör ellilífeyrisþega að kaupmátturinn rýrni um 28% frá því sem hann var á miðju ári 1982 eða að meðaltali 1982, því það var næstum því það sama.
Ég er alveg sannfærður um að talsmenn Sjálfstfl. og Framsfl. hefðu svarið fyrir að þetta gæti nokkurn tíma gerst. Það er alveg sama þó við lítum á svokallaða tekjutryggingu, þ.e. elli- og örorkulífeyri með tekjutryggingu. Það er svo til það sama uppi á teningnum. Þar var kaupmátturinn á miðju ári 1982 298.1 stig. En hann er kominn niður í 231.3. Það er um 24% rýrnun á kaupmætti að ræða hjá þessu gamla fólki sem hefur ekkert nema þetta og getur ekki haft neitt nema þetta vegna þess að það fær ekki tekjutrygginguna ef það hefur eitthvað annað. Það er ekki í lífeyrissjóðum.
Þetta er hrikaleg aðför að því fólki sem hefur lagt grunninn að því þjóðfélagi sem við búum í. Þetta er miskunnarlaus aðför að þessu fólki. Þetta held ég að menn ættu að hugleiða. Við teljum í Alþfl. að þetta sé algjörlega óviðunandi, hér hafi byrðunum ekki verið réttlátlega dreift.
Að lokum, herra forseti. Hæstv. fjmrh. staðhæfði áðan að það yrði sko ekki aukning á erlendum skuldum á árinu 1984. 60% er viðmiðunartalan, sagði ráðh. En í þessum 60%, jafnvel þótt þau verði haldin sem við eigum nú eftir að sjá, felst skuldaaukning vegna þess að það stendur svart á hvítu í þeim gögnum sem frá ráðh. sjálfum hafa komið að afborganir af erlendum lánum munu vera 3160 millj. kr. á næsta ári. En hann ætlar að taka lán sem eru 4548 millj. kr. Þarna er verið að taka lán umfram það sem greitt er upp á tæplega 1400 millj. kr. þannig að erlendu heildarlánin eru skv. gögnum ráðh. sjálfs hærri í árslok 1984 en 1983. Sú yfirlýsing sem gefin hefur verið um að erlendar skuldir verði ekki auknar stenst því ekki. Þær munu aukast skv. gögnum sem liggja fyrir frá ráðh. sjálfum um 1.5 milljarð, því sem næst.
Hæstv. ráðh. sagði líka áðan: Það verður ekki aukinn yfirdrátturinn í Seðlabankanum. En nú vekur það athygli að frá því að lánsfjárlögin voru lögð fram og þar til þau koma nú til afgreiðslu hafa fjárlög verið afgreidd með halla upp á 388 millj. kr. Í lánsfjárlögunum eins og þau koma frá Ed. er ekki gert ráð fyrir því að mæta þessu með neinum hætti. Ekki króna til þess að mæta þessum halla á fjárlögum ríkisins upp á 388 millj. kr. Nú hefur hæstv. ráðh. sagt að ekki komi til greina að leysa þetta með auknum yfirdrætti í Seðlabankanum. Hvernig á þetta dæmi að ganga upp, hæstv. ráðh.?
Þegar hæstv. ráðh. var að tala um það áðan að nauðsynlegt væri að dæmið gengi upp vekur athygli að hér eru skildar eftir tæpar 400 millj. kr. sem liggur fyrir skv. fjárlögum og engin grein gerð fyrir því hvernig eigi að mæta því. Þetta dæmi gengur auðvitað ekki upp heldur. Þarna eru væntanlega — svo framarlega sem fjárlögin eiga að halda—viðbótarskuldir sem ríkissjóður mun stofna til sem hvergi eru komnar á pappír.
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessa umr. frekar. Ég hef gert hér fáein atriði að umtalsefni. Ég mun að öðru leyti ræða þetta frekar við 2. umr. málsins.