20.02.1984
Sameinað þing: 52. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2949 í B-deild Alþingistíðinda. (2553)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman til fundar og athugað kjörbréf Sveins Jónssonar, sem er 1. varaþm. Alþb. í Austurlandskjördæmi, en eftir því er óskað að hann taki sæti á Alþingi nú í veikindaforföllum hv. þm. Helga Seljans.

Kjörbréfanefnd hefur ekki fundið neitt athugavert við kjörbréfið eða kosningu þm. og leggur til að kjörbréfið verði samþykkt.