20.02.1984
Neðri deild: 49. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2978 í B-deild Alþingistíðinda. (2572)

196. mál, lausaskuldir bænda

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Hv. þm. Pálmi Jónsson, síðasti ræðumaður, hefur að nokkru leyti rakið þann misskilning sem virtist gæta í máli hv. þm. Sighvats Björgvinssonar eftir það sem virtist vera, ef dæma má af máli hans, óvandaður lestur 1. gr. þessa frv. Ég skildi mál hans svo sem hann stæði í þeirri meiningu að hreinlega væri verið að færa bændum á silfurfati mikla fjármuni og gefa þeim þá og þeir ættuðu bara sjálfir að ráða þeim skilmálum sem gjöfin kæmi með. En eins og kom fram hér áðan er ekki um það að ræða, hér er ekki verið að gefa neinum neitt og hér er heldur ekki verið að lána mönnum út á einkaeyðslu, sólarlandaferðir, enda hafa bændur reyndar farið í fáar slíkar á undanförnum árum.

Hann talaði um forréttindi og sérréttindi. Ég er fyrir mitt leyti sannfærður um að fáir yrðu fegnari að losna við að þurfa að búa við þessi forréttindi og sérréttindi — ef á þá að kalla það þeim nöfnum — en einmitt bændur. Mér er ekki kunnugt um að slík lán hafi á undanförnum árum verið á neinum gjafakjörum. Ef hv. þm. Sighvatur Björgvinsson getur upplýst okkur hér í hv. Nd. um það gerir hann það væntanlega á eftir, ef hann hefur þá haft fyrir því á annað borð að kynna sér lánakjör þessara lána eins og þau hafa verið hingað til.

Í sambandi við þetta tek ég undir með hv. þm. Pálma Jónssyni, 1. þm. Norðurl. v., um að miklu máli skiptir hvernig staðið verður að framkvæmd þessarar breytingar og á hvaða kjörum þau lán verða ef þau eiga að ná tilgangi sínum.

Ég tek undir það með hv. þm. Sighvati Björgvinssyni — svo ég sé honum sammála um eitthvað í dag — að svo kann að fara og kann reyndar að vera svo þegar í dag að ýmsir fleiri þyrftu á slíkri aðstoð að halda á einhvern máta. En ég hefði heldur viljað leggja Sighvati Björgvinssyni lið til að berjast fyrir því að launþegar í þessu landi fengju þannig kjör að þeir þyrftu ekki á slíkum náðargjöfum að halda. (SighB: Er þetta þá náðargjöf, herra þm., sem þú varst að enda við að mótmæla áðan?) Þú kallaðir þetta náðargjöf, ekki satt, hv. þm.? (SighB: Það er gott að hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri.) Ef hv. þm. Sighvatur Björgvinsson hefur ekki skilið orð mín get ég farið yfir það aftur að mér er ekki kunnugt um að hér standi til að gefa neinum neina peninga. Ég veit ekki betur en að bændur ætli að borga þessi lán til baka og það með fullum skilum eins og komið hefur fram að þeir eru manna líklegastir til að gera, hv. þm.

Dugar þetta þá um mína afstöðu? (JBH: Það fer eftir lánskjörunum, hv. þm.)

En ég leyfi mér að fullyrða að þó víða sé þröngt í búi um þessar mundir, eins og hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson eflaust veit, þá er það sennilega óvíða, ef þá nokkurs staðar, erfiðara en hjá mörgum bændum, sérstaklega þeim sem staðið hafa í miklum fjárfestingum á undanförnum árum á erfiðum greiðslukjörum og búið auk þess við samdrátt í framleiðslu og mjög óhagstætt tíðarfar. Þess vegna er ég fylgjandi því að lausaskuldum þeirra sem verst eru staddir í þeirri stétt verði á einhvern hátt breytt í löng lán eins og hér er gerð till. um. Hv. landbn. mun sjálfsagt skoða það með hverjum hætti þetta verður best framkvæmt og með hvaða kjörum sé nauðsynlegt að þessi lán verði ef þau eigi að ná tilgangi sínum.

Auk þess tek ég undir það sem hér hefur áður komið fram að ekki er verið að gera hér neitt sem er fortakslaust og fordæmislaust. Hliðstæðar ráðstafanir hafa þekkst og standa reyndar fyrir dyrum í ýmsum atvinnuvegum þjóðarinnar ef rétt er eftir þeim mönnum haft sem um það hafa talað. Þannig að ég held að ekki sé verið að gera bændur neitt jafnari en aðra. Út af fyrir sig er ég viss um að þeir væru manna fúsastir til að taka undir með hv. þm. Sighvati Björgvinssyni um að allir ættu að vera jafnir því ég sé ekki annað en þeir högnuðust mest á slíkri jöfnun eins og staða þeirra er og hefur verið undanfarin ár.