20.02.1984
Neðri deild: 49. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2979 í B-deild Alþingistíðinda. (2573)

196. mál, lausaskuldir bænda

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég býst við að okkur hafi nú ekki komið á óvart ræða hv. 3. þm. Vestf. sem. höfum heyrt hann ræða um landbúnaðarmál. En ég ætla ekki að fara að svara því á sömu nótum. Eins og ég sagði hef ég áhuga fyrir því að reyna að koma þessu máli sem fyrst til n., sem ég veit að mun fjalla ítarlega um það og þar sem það verður þá skoðað frá öllum hliðum. Hins vegar skal ég reyna að svara þeim beinu spurningum sem hv. 3. þm. Vestf. beindi til mín.

Ég ætla fyrst að leiðrétta að hér væri verið að breyta öllum skuldum bænda í föst lán. Það hefur komið fram hjá síðustu ræðumönnum að hér er um misskilning að ræða. Að einhverju leyti stafar hann kannske af frétt af þessu frv. þegar það var lagt fram. Ég vildi mælast til þess að það yrði þá leiðrétt, þannig að fram komi þær takmarkanir sem gert er ráð fyrir í þessu frv.

Í fyrsta lagi er aðeins um skuldir að ræða sem beinlínis er stofnað til vegna atvinnurekstrarins, afmarkaðra þátta hans, þ.e. fjárfestingar og fóðurkaupa vegna harðindanna sem orðið hafa á þessu tímabili.

Þar að auki er ákvæði um að það verði að leggja fram nægjanlegt veð til þess að hægt sé að fá þessi lán. Er þá miðað við 75% af matsverði veðsins. Það mun vera lægra en þekkist í sumum öðrum atvinnuvegum, þannig að þar er síður en svo um nein forréttindi að ræða.

Hv. 3. þm. Vestf. sagði að það væri ekkert fordæmi fyrir því að ábúendur ríkisjarða megi veðsetja ábúðarjarðir sínar, eins og segir í 3. gr. En nákvæmlega það sama var í 3. gr. laga sem samþykkt voru á Alþingi 16. maí 1979 af þáv. stjórnarflokkum, sem hv. 3. þm. Vestf. var aðili að. Ég vil, með leyfi forseta, lesa 3. gr. þeirra laga:

„Heimilt er ráðherra að leyfa ábúendum ríkisjarða að veðsetja ábúðarjarðir sínar til tryggingar lánum samkvæmt lögum þessum, enda séu eignir viðkomandi ábúenda í mannvirkjum á ábúðarjörðum þeirra eða öðrum tryggingarhæfum eignum aldrei minni en sem nemur samanlögðum áhvílandi lánum.“

Bændur á ríkisjörðum eru að því leyti verr settir en eigendur annarra fasteigna í landinu að þeir verða að fá leyfi fyrir því ef þeir vilja veðsetja hús sem standa á ríkisjörðum. Þeim er það óheimilt nema með samþykki landbrn. Hér er eingöngu um það að ræða að bændur fái að veðsetja sínar eigin eignir. En af því að þær standa á ríkisjörðum þarf þetta leyfi að fylgja.

Þá er spurning hv. 3. þm. Vestf. — eða fullyrðing um að bændur eða fulltrúar þeirra ákveði sjálfir lánakjörin. Það er gert ráð fyrir því, eins og hér hefur verið skýrt, að bankaráðið og auk þess fulltrúarnir í stjórn Stofnlánadeildar frá Búnaðarfélagi Íslands og Stéttarsambandi bænda ákveði þetta. Það er einmitt stjórn stofnlánadeildarinnar sem fjallar um lánakjör í landbúnaði og að því leyti er þarna um algjöra hliðstæðu að ræða. (SighB: Ég spurði um fordæmi fyrir þessu, hæstv. ráðh. Er það til?) Já, það er fordæmi um að þessir aðilar fjalla um aðrar lánveitingar í landbúnaði. (SighB: Þetta fordæmi er ekki til í lögunum frá 1979. Er það til í öðrum lögum?) Já, það er í lögum um stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins o.fl. (SighB: En í lögum um breytingu á lausaskuldum bænda? Er það til?) Ég hef svarað þessu. Það er fordæmi um aðrar lánveitingar til bænda.

Hv. 1. þm. Norðurl. v. beindi til mín spurningum um hvort nefndin hefði skilað af sér öðrum verkefnum sem nefnd eru í erindisbréfi hennar. Það er ekki sundurgreining á milli landsvæða í nefndaráliti, en hins vegar kemur fram í umsóknum þeim sem veðdeildinni hafa borist hvernig lánsþörfin skiptist milli landshluta. Þar kemur ekkert fram heldur um skiptingu milli búgreina. En eins og ég sagði áðan hefur verið óskað eftir því við Þjóðhagsstofnun að efnahagsstaða bænda verði athuguð nánar og þá vænti ég að út úr þeirri athugun megi lesa hvernig þessum málum er varið.

Ég þakka svo þeim sem hafa tekið undir þetta frv. og mun, eins og kom fram í máli mínu áðan, reyna að vinna að öðrum þáttum þessa máls jafnhliða því sem Alþingi fjallar um það, þannig að sem fyrst megi hrinda því í framkvæmd ef Alþingi samþykkir lögin.