21.02.1984
Sameinað þing: 53. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2996 í B-deild Alþingistíðinda. (2585)
171. mál, gjaldskrá fyrir uppboðshaldara
Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Fyrr í vetur lagði ég fram fsp. til hæstv. dómsmrh. um hverjar væru tekjur uppboðshaldara á árinu 1982 og fyrstu 6 mánuði ársins 1983 skv. gjaldskrá fyrir uppboðshaldara nr. 757/1981.
Í svari dómsmrh. við þeirri fsp. kom fram að tekjur uppboðshaldara á árinu 1982 voru rúmar 4 millj. og fyrstu 6 mánuði ársins 1983 um 3 millj. sem skiptist milli 27 embætta. Skv. gjaldskránni fá uppboðshaldarar 1% innheimtugjald. innheimtugjald fyrir sölu fasteigna og skipa er 1% af þeirri upphæð sem innheimtist. Innheimtugjald fyrir sölu lausafjár frá kaupanda er 6% með gjaldfresti og 3% við staðgreiðslu og frá seljanda 4%.
segja má að varla geti verið um erfið eða umfangsmikil störf að ræða hjá uppboðshöldurum. Lang algengast er að hér sé um hrein rútínustörf að ræða í því formi að auglýsa og tilkynna um uppboð en lítill hluti þeirra eigna sem auglýstar eru er tekinn til eiginlegra gjaldþrotaskipta.
Ljóst er af þeim upplýsingum sem fram koma að innheimtulaun hjá stærstu embættunum eru veruleg. Telja verður það óeðlilega tilhögun að einstakir embættismenn geti hagnast verulega á þessu fyrirkomulagi og haft af því miklar tekjur ofan á föst laun og önnur fríðindi hjá ríki og bæ. Því er nú á þskj. 312 lögð fram svohljóðandi fsp. til hæstv. dómsmrh.: „Áformar dómsmrh. að gera breytingar á þeirri tilhögun sem gilt hefur um innheimtulaun uppboðshaldara skv. lögum nr. 57/1949, um nauðungaruppboð, sbr. gjaldskrá fyrir uppboðshaldara nr. 757/1981, sem sett er með stoð í þeim lögum? Ef svo er, hvenær má vænta þeirra breytinga og hverjar verða þær?“
Vænti ég að hæstv. dómsmrh. gefi skýr og greinargóð svör við þessari fsp.