21.02.1984
Sameinað þing: 53. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2999 í B-deild Alþingistíðinda. (2590)

193. mál, rannsókn umferðarslysa

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Hv. 4. þm. Reykn. hefur borið fram fsp. til mín um rannsókn umferðarslysa. Rannsókn umferðarslysa hér á landi er fyrst og fremst sú rannsókn sem fer fram á vegum lögreglu á slysum sem hún fær vitneskju um. Fer rannsóknin fram með sama hætti og rannsókn slysa og óhappa almennt að hætti opinberra mála, sbr. einkum 5. kafla laga nr. 74/1974. Rannsóknin miðast við að finna þá sem hlut eiga að máli, töku skýrslna af aðilum og vitnum, athugun á ástandi ökumanns, m.a. með tilliti til áhrifa áfengis, lyfja eða fíkniefna, rannsókn á vettvangi, m.a. með mælingum, gerð uppdrátta og ljósmyndun eftir því sem við á, og athugun á ökutækjum sem í hlut eiga. Leitað er eftir sérfræðilegri rannsókn þegar það á við. Fer þannig fram læknisrannsókn og efnafræðileg rannsókn svo sem þegar grunur er um ölvun við akstur eða akstur undir áhrifum lyfja eða fíkniefna. Enn fremur eru til kvaddir bifreiðaeftirlitsmenn ef öryggisbúnaði er áfátt eða meiri háttar slys hefur orðið.

Hér hefur í stórum dráttum verið lýst frumrannsókn vegna umferðarslysa. Það fer síðan eftir atvikum hvort rannsókn verður ítarlegri, hvort hún er send ríkissaksóknara til meðferðar, hvort máli lýkur með sektargerð án atbeina ríkissaksóknara eða að mál sé þess eðlis að skýrslur séu sendar vátryggingarfélögum án annarra aðgerða. Ekki er um að ræða aðra rannsókn á umferðarslysum hér á landi.

Hins vegar er safnað saman og unnið úr upplýsingum um umferðarslys og fást á þann hátt ýmsar tölfræðilegar upplýsingar um fjölda, tegund og orsakir umferðarslysa. Þannig hefur Umferðarráð árlega staðið að úrvinnslu upplýsinga um umferðarslys eftir lögregluskýrslum frá árinu 1969. Var það verk unnið í framhaldi af könnun á umferðarslysum sem Framkvæmdanefnd hægri umferðar stofnaði til.

Í skýrslu Umferðarráðs kemur fram ýmiss konar skipting umferðarslysa. Eru þau flokkuð eftir mánuðum, eftir afleiðingum (dauði, meiðsli, eignatjón einungis) og eftir umdæmum. Einnig kemur þar fram aldursdreifing slasaðra og látinna og skipting þeirra eftir hópum vegfarenda í fótgangandi, ökumenn reiðhjóla, léttra bifhjóla og bifreiða.

Til fróðleiks skulu hér nefndar nokkrar tölur um fjölda umferðarslysa á síðasta ári og næstu fimm árum á undan til samanburðar. Þannig létust 18 í umferðarslysum á síðasta ári en 25 að meðaltali árin á undan. Slasaðir voru 613 á síðasta ári en 687 að meðaltali árin á undan. Lægst var talan 588 árið 1979 en hæst 1982, 768. Hér er einungis átt við umferðarslys sem lögregla hefur skráð. Hinir slösuðu skiptust þannig, að á síðasta ári voru 316 sem töldust hafa hlotið minni háttar meiðsli miðað við 381 árin á undan og 297 með meiri háttar meiðsli samanborið við 306 árin á undan. Af hinum slösuðu voru 257 fluttir á sjúkrahús á s.l. ári. Önnur skipting var þannig á s.l. ári að 210 voru ökumenn bifreiða, 18 ökumenn bifhjóla, 29 ökumenn léttra bifhjóla, 42 hjólreiðamenn, farþegar voru 212 og gangandi vegfarendur 111. Karlar voru 390 en konur 241. Var um að ræða fækkun í öllum þessum hópum miðað við meðaltal 1978–1982, nema í hópi ökumanna bifhjóla. Skýringu á því hvers vegna þessi fækkun umferðarslysa varð á síðasta ári miðað við árin á undan er hins vegar ekki auðvelt að gefa, enda koma margir þættir við sögu. Þessi fækkun varð hér á sama tíma og umferðarslysum fjölgaði á hinum Norðurlöndunum eftir fækkun slysa þar áratuginn á undan, en þetta var, eins og kom hér fram hjá fyrirspyrjanda á norrænu umferðaröryggisári.

Fleiri aðilar vinna úr upplýsingum um umferðarslys. Þannig vinnur lögreglustjóraembættið í Reykjavík úr upplýsingum um umferðarslys í Reykjavík og leitast við að finna orsök slysa, svo sem að aðalbrautarréttur er ekki virtur, umferðarréttur ekki virtur, of stutt bil milli bifreiða, ranglega beygt, röng staðsetning á vegi, ölvun við akstur, bifreið í ólagi o.s.frv. Enn fremur eru slysin flokkuð eftir því hvenær sólarhrings þau verða. Auk þessa tekur lögreglan í samvinnu við gatnamálastjóra saman upplýsingar um hvar umferðarslys verða. Sama á sér stað hjá fleiri sveitarfélögum og einnig Vegagerð ríkisins sem gefur út skýrslu um umferðarslys á þjóðvegum. Niðurstöður þessar eru hafðar til hliðsjónar við lagfæringu á vegum og gatnakerfi.

Enn má nefna könnun, sem unnin hefur verið á vegum landlæknis á vélhjólaslysum í Reykjavík á árunum 1981 og 1982, svo og ítarlega rannsókn sem Bjarni Torfason læknir gerði á umferðarslysum sem skráð voru á slysadeild Borgarspítalans í Reykjavík á árinu 1975. Veita þessar rannsóknir ýmsar athyglisverðar upplýsingar um umferðarslysin og eðli þeirra.

Í 84. gr. umferðarlaga er fjallað um hlutverk Umferðarráðs. Í 6. tölul. þeirrar greinar segir að það skuli vera hlutverk þess að sjá um að á hverjum tíma sé til vitneskja um fjölda, tegund og orsakir umferðarslysa í landinu. Hér að framan hefur verið rakið hvernig Umferðarráð hefur staðið að úrvinnslu upplýsinga um umferðarslys sem lögreglan hefur gert skýrslu um. Umferðarráð hefur haft hug á því að vinna frekari skýrslur um umferðarslys og orsakir þeirra, eðli og afleiðingar. Hefur Umferðarráð árum saman farið fram á fé til slíkrar úrvinnslu í fjárlagatillögum, en fjárveitingar til Umferðarráðs hafa jafnan verið lækkaðar, svo það hefur eigi treyst sér til að fara út í slíkar athuganir. Er ljóst að til slíkra athugana verður eigi stofnað nema með sérstöku fjárframlagi og undir stjórn sérhæfðs starfsliðs. Er eðlilegt að slík starfsemi fari fram undir umsjá Umferðarráðs og fjármagni verði beint til þess í þessu skyni. Af þeirri ástæðu verður naumast talið rétt að stofna til sérstakrar nefndar eða stofnunar til aðgerða á þessu sviði, þótt Umferðarráði muni þörf á ráðgjöf sem kann að vera mismunandi eftir því hvert viðfangsefnið yrði. Kann þar að henta að leita samstarfs við Háskóla Íslands, svo sem læknadeild og verkfræðideild. Til þessa er þó augljóslega þörf fjármagns og vilja til að láta það af hendi rakna í þessu skyni.

Ég vil svo að lokum taka undir orð hv. fyrirspyrjanda að það er mikils virði fyrir þjóðfélagið, hvernig svo sem á málið er litið, að allt sé gert sem unnt er til þess að draga úr því gífurlega tjóni og öðrum afleiðingum sem umferðarslys hafa.