21.02.1984
Sameinað þing: 53. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3003 í B-deild Alþingistíðinda. (2593)

193. mál, rannsókn umferðarslysa

Fyrirspyrjandi (Salome Þorkelsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Mér er ekki nokkur leið að taka undir orð hv. 10. landsk. þm. um það að svör hæstv. ráðh. hafi verið meira þreytandi en gerist og gengur og hægt er að reikna með. Ég varð ekki vör við neina sérstaka þreytu í máli hæstv. ráðh. En við vitum það hv. þm. að auðvitað hljóta ráðherrar að verða að leita svara hjá sínum starfsmönnum. Það er nú ofætlan, held ég, að ætlast til þess að þeir geti í hverju svari sínu talað eingöngu frá eigin brjósti. Það eru staðreyndir sem þm. eru að biðja um og það er m.a. það sem ég var að leita eftir hér. Það kom ýmislegt fram í máli hæstv. ráðh. sem ég held að hafi verið gagnlegt fyrir okkur þm. að fá hér fram á Alþingi, því að aldrei verður of mikið gert að því að ræða þau alvarlegu mál sem umferðarslysin eru. Og ég ætla ekki að endurtaka það sem ég sagði áðan í tölum um þau efni hvað þetta kostar þjóðfélagið.

Það var vissulega rétt sem hæstv. ráðh. sagði að slysum fækkaði á s.l. ári og má beinlínis rekja það til þess starfs sem unnið var hér vegna norræns umferðaröryggisárs. En til þess að halda þeirri stöðu held ég að sé brýn nauðsyn að það sé í raun umferðaröryggisár allan ársins hring, á hverjum degi og hverri nóttu.

Ég þakka hv. þm. sem tóku undir fsp. mína. Hv. 4. þm. Suðurl. talaði um að það væri ekki nóg að safna skýrslum, það þyrfti að gera eitthvað. Og auðvitað er það rétt. En hverjir eiga að gera eitthvað? Erum það ekki við sjálf sem ferðumst í umferðinni, ýmist akandi eða gangandi, sem eigum að leggja okkar af mörkum, m.a. með því að nota bílbeltin, eins og hv. 4. þm. Suðurl. kom inn á? Í því sambandi má upplýsa hann um það, ef hann veit ekki, að nú þegar eru komin fram tvö frv. í hv. Ed. einmitt í því skyni að bæta hér um. Það er bæði varðandi ljósanotkun bifreiða og að beitt verði sektarákvæðum ef bílbelti eru ekki notuð.

Hvað varðar skipun nefndarinnar sem ég var að tala um. Ég veit að það er unnið gott starf á vegum Umferðarráðs varðandi rannsóknir slysa, svo langt sem það nær, eins og kom fram í máli hæstv. ráðh. En ég er að tala um að það verði skipuð sérstök nefnd sem fjalli um það þegar alvarleg slys ber að höndum, þ.e. dauðaslys og alvarleg slys í umferðinni. Minna má á það, að Íslendingar eru þátttakendur í alþjóðlegu samstarfi um rannsóknir t.d. á flugslysum. Og það er starfandi sjóslysanefnd sem rannsakar orsakir sjóslysa. En það er engin slík nefnd starfandi varðandi umferðarslysin umfram það sem kom fram í máli hæstv. ráðh. Ég held að það sé brýn nauðsyn að koma á fót slíkri nefnd og ég tel að hún eigi að starfa á vegum Umferðarráðs, að það eigi. að vera á þeirra hendi.

Ég vil segja það að lokum að það er of seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í, eins og reyndar kom fram í máli hv. 4. þm. Suðurl. kannske í ofurlítið öðrum orðum. En það er aldrei of seint að gera nauðsynlegar varúðarráðstafanir til þess að fækka dauðaslysum og öðrum stórslysum í umferðinni. Ég vænti þess að það verði ríkur skilningur á hv. Alþingi á þýðingu þess að veita fjármagni til fyrirbyggjandi aðgerða.