27.10.1983
Sameinað þing: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í B-deild Alþingistíðinda. (260)

Umræður utan dagskrár

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Það er út af fyrir sig ánægjulegt að heyra það af vörum hæstv. utanrrh. að ríkisstjórn Íslands ætli að fylgjast vel með framvindu mála. En ég legg áherslu á að það kemur ekki í staðinn fyrir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í þessum efnum.

Innrás bandaríska hersins ásamt nokkrum leppríkjum þeirra á hið sjálfstæða smáríki Grenada sýnir manni og undirstrikar vel þann yfirgang og þá lítilsvirðingu sem stórveldið Bandaríkin sýnir öðrum þjóðum og sjálfstæði þeirra í þessum heimshluta. Það hefur komið fram í fréttum að innrásin er að undirlagi Bandaríkjamanna þó látið sé heita svo að nágrannar Grenada hafi beðið um aðstoð. Þáttur þeirra, þ.e. Bandaríkjamanna, í undirbúningi innrásarinnar og þá alveg sérstaklega þáttur leyniþjónustunnar, CIA, er enn óljós. Það er ljóst að sú umbótasinnaða vinstri stjórn undir forustu Maurice Bishop, sem steypti hinum gerspillta Eric Gairy af stóli var alla tíð á svörtum lista hjá Bandaríkjastjórn. Þó tók fyrst steininn úr þegar Ronald Reagan settist að í Hvíta húsinu og hóf með milligöngu leyniþjónustunnar skipulega baráttu gegn hverri þeirri ríkisstjórn í þessum heimshluta sem ekki þjónaði hagsmunum Bandaríkjamanna möglunarlaust.

Það er ljóst að þessi innrás þverbrýtur alþjóðalög. Og hún er að því leyti verri og siðlausari en innrás Rússa í Afganistan, sem hér var vitnað í, að enginn, ekki einu sinni leppstjórn, bað Bandaríkjamenn um aðstoð. Sagan geymir mér vitanlega fá dæmi þess að íhlutun einnar þjóðar í málefni annarrar, eins og hér á sér stað, færi heimamönnum einhverja blessun. Hin dæmin eru fjöldamörg að slíkt sé upphafið að stjórnmálalegum, efnahagslegum og ekki síst mannlegum hörmungum. Innrás og hernaðaríhlutun eins ríkis eða ríkja í málefni annarra sjálfstæðra þjóða hljótum við ávallt að mótmæla. Þar með er á engan hátt verið að réttlæta þá atburði, sem átt höfðu sér stað í viðkomandi landi, og það ástand sem þar ríkti. En væru þau ekki orðin ærið mörg ríkin sem ástæða væri þá til að ráðast inn í ef þetta væri einhver réttlæting í sjálfu sér? Það hefur víðar farið fram valdarán og það hafa víðar verið framin blóðug valdarán, en sem betur fer hafa utanaðkomandi aðilar yfirleitt ekki haft afskipti af slíkum innanríkismálum. Og sem betur fer, segi ég, vegna þess að það er samdóma skoðun flestra, sem til þessara hluta þekkja, að slíkt auki einungis á vandann.

Og við skulum minnast þess, við Íslendingar, að hér átti hlut að málum sjálfstæð þjóð, sjálfstætt en smátt ríki sem ekki hefur möguleika á að verja hendur sínar gegn stórveldinu svo nokkru nemi. Þeim mun ruddalegri er íhlutun Bandaríkjamanna í málefni viðkomandi lands sem það er smærra og á meira undir því að aðrar þjóðir virði sjálfstæði þess og fullveldi.

Og ég vil vekja athygli, herra forseti, þingheims á því hvernig fréttir voru matreiddar ofan í íslensku þjóðina af þessum atburðum. Á sjónvarpsskjánum breiddi Ronald Reagan Bandaríkjaforseti úr sér og talaði um ruddalega vinstri sinnaða glæpamenn á smáey sem væru að ógna lífi bandarískra borgara. Það var hvergi minnst á sjálfstæða þjóð. Og það sem heitir á máli annarra landa innrás og hernaðaríhlutun var kölluð landganga.

Ég skora á íslensku ríkisstjórnina að mótmæla fyrir hönd þjóðarinnar þessari óréttmætu og siðlausu hernaðaríhlutun í málefni sjálfstæðrar þjóðar. Við sem sjálfstæð þjóð á eylandi hljótum að finna til samúðar með íbúum Grenada, hverra unga sjálfstæði hefur nú verið freklega fótum troðið með hernaðaríhlutun. Herra forseti, ég hef lokið máli mínu.