21.02.1984
Sameinað þing: 53. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3008 í B-deild Alþingistíðinda. (2601)
421. mál, athvarf fyrir börn og unglinga sem neyta fíkniefna
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég þakka hv. heilbrmrh. fyrir svör hans. En mín spurning beindist í raun að mjög brýnu og bráðu vandamáli sem er á meðal okkar í dag. Þarna er um að ræða unga einstaklinga sem eru að farast í félagslegu brimróti, ef svo má segja. Það þarf að beita einhverjum aðgerðum núna. Ég virði þá útlistun sem hæstv. heilbrmrh. gaf á þeirri þjónustu sem er fyrir hendi en jafnframt veit ég að margir þessara einstaklinga komast aldrei til að njóta þessarar þjónustu. Þeir hrekjast á þeim stöðum þar sem þessi þjónusta nær ekki til þeirra og hún hefur ekki bolmagn til að leita þessara einstaklinga. Það er álitamál að hve miklu leyti þessir einstaklingar eiga eingöngu við geðræn vandamál að stríða og að hve miklu leyti þeir eiga við félagsleg vandamál að stríða.
Rætt var um fíkniefnamál og um að hefta útbreiðslu og minnka framboð efnanna skömmu fyrir þinglok síðasta þings og er það vel. Jafnframt var veitt 1 millj. kr. á fjárlögum og sú upphæð sett í umsjá fjmrh. til þess að verja til varnaraðgerða gegn fíkniefnum. Nú vill svo heppilega til að heilbrmrh. — ég held að ég hafi rétt fyrir mér — fer með starf fjmrh. í fjarveru hans. Mig mundi langa til að vita hvað ætti að gera við þessa 1 millj. kr. og hvort hægt væri að beita henni á einhvern hátt til þess að koma til móts við þarfir þessara barna.
Annað vildi ég líka benda á með tilliti til félagslegu aðstæðnanna. Það er að verða sífellt erfiðari fjárhagsafkoma fjölskyldnanna og eykur það á félagsleg vandræði þeirra. Ég vil benda á nýlega frétt í Hagtíðindum þar sem fram kemur að sjötta hvert heimili landsins er á framfæri einstæðra foreldra eða 6 254 heimili þann 1. des. s.l. Þar af voru 393 einstæðir feður. Meiri hluti þessara heimila er því á framfæri einstæðra mæðra. Ef litið er til þess hvar konur skipast í launahópa, þ.e. í láglaunahópana sem sífellt eru að verða aðþrengdari, er það mikill ábyrgðarhluti fyrir stjórnvöld að herða sífellt takið á þessum hópum. Um áttunda hvert barn eða 8 232 íslensk börn alast nú upp á heimilum sem eru í forsjá einstæðra foreldra. Hvernig félagslegar aðstæður og framtíð er þessum börnum búin? Ég held að stjórnvöld verði að hyggja að því.