21.02.1984
Sameinað þing: 53. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3012 í B-deild Alþingistíðinda. (2606)

422. mál, geðræn vandamál barna og unglinga

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Engin barnageðdeild var rekin hér á landi þar til 1970 að húsnæði var tekið á leigu af Reykjavíkurborg að Dalbraut 12 og opnuð þar barnageðdeild. Fram að því höfðu barnageðlækningar verið hluti af almennum geðlækningum. Á geðdeild barnaspítala Hringsins eru þrjár deildir, göngudeild, legudeild og dagdeild. Barnageðdeild veitir aðstoð börnum og unglingum með hvers konar geðræn vandamál til 16 ára aldurs. Meðferð byrjar oftast á göngudeild eða sem sérfræðirannsókn á öðrum sjúkrahúsum og er þá viðkomandi tekinn til meðferðar ef ástæða þykir til. Meðferð langflestra sjúklinga fer fram á göngudeild sem einstaklings- eða fjölskyldumeðferð. Um það bil tíundi hver sjúklingur er lagður inn á dagdeild eða legudeild. Á dagdeild eru sjúklingar um það bil sex tíma á dag. Það eru venjulega börn á aldrinum 2–8 ára sem búa á Reykjavíkursvæðinu. Á legudeild dvelja börn af öllu landinu og eru elstu börnin 12–13 ára. Á móti unglingum yfir fermingaraldri taka almennar geðdeildir, bæði geðdeildir ríkisspítalanna og Borgarspítala, en að einhverju leyti barnadeildir bæði Landspítala og Landakotsspítala.

Þess er vart að vænta að sérstök deild sé hér á landi til að sinna vandamálum fíkniefnaunglinga, þar sem meðferð fíkniefna og önnur geðræn vandamál fléttast þannig saman að erfitt er að skilja að.

Geðdeild barnaspítala Hringsins við Dalbraut er í leiguhúsnæði. Var húsnæðið tekið á leigu til 15 ára 1970 og rennur leigusamningur út í árslok 1985. Ítrekaðar tilraunir hafa verið gerðar til að auka húsnæði barnageðdeildar með því að fá leigt meira húsnæði að Dalbraut 12 til starfseminnar, en ekki hefur náðst um það samkomulag við borgaryfirvöld. Það virðist því ekki vera í sjónmáli bygging barnageðdeildar eða sérstakrar deildar fyrir börn vegna fíkniefnaneyslu á Landspítalalóð og mun verða eftir því leitað að framlengja húsaleigusamning ríkisins við Reykjavíkurborg um húsnæði barnageðdeildarinnar á Dalbraut, er hann rennur út í árslok næsta árs. Þá mun að nýju verða gerð tilraun til að fá húsið allt að Dalbraut á leigu og jafnvel kemur til mála að fá það hús keypt, ef samkomulag næst um það við Reykjavíkurborg, en um það vil ég ekki fullyrða.

Í þessu sambandi má ekki gleyma því að fleiri aðilar stunda meðferð og þjónustu við unglinga með geðræn vandamál en geðdeildir ríkisspítala. Þar má helst nefna sálfræðideildir skóla og unglingaheimili ríkisins fyrir afbrotaunglinga. Því miður hefur samstarf þessara aðila oft verið brotakennt, en skortur á samstarfi hefur ekki stafað af tregðu ríkisspítalanna og deilda þeirra til samstarfsins, heldur af því að ýmsir þeir aðilar sem þessum málum sinna utan heilbrigðiskerfisins líta ekki á þessi vandamál sem sjúkdóma heldur eingöngu sem félagslegt vandamál, og er miður að slíkar skoðanir skuli enn vera ríkjandi í þjóðfélaginu.