27.10.1983
Sameinað þing: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (261)

Umræður utan dagskrár

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég verð að lýsa vonbrigðum mínum með að hæstv. utanrrh. skyldi hér ekki afdráttarlaust fordæma þann verknað sem hér hefur gerst, það brot á alþjóðalögum sem Bandaríkin hafa gert sig sek um með innrásinni í Grenada. Af hans orðum varð ekki ráðið neitt um slíka afstöðu íslensku ríkisstjórnarinnar og því erum við enn í óvissu um það hvort ríkisstjórnin ætlar sér yfirleitt að taka afstöðu til málsins, og ljóst er að hún hefur ekki gert það með þeim hætti sem sjálfsagður virðist. Hæstv. utanrrh. var að leita hér eftir skýringum á þessum verknaði Bandaríkjamanna. Ég ítreka það að innanlandsaðstæður í Grenada skipta hér raunverulega ekki máli um það grundvallaratriði, íhlutun og innrás gagnvart sjálfstæðri þjóð, sem hér er um að ræða.

Mér er hins vegar ókunnugt um að til hafi komið ógnun við bandaríska borgara á Grenada sem hæstv. utanrrh. var að vitna hér til að gerst hefði. Ég hef ekki heyrt það af fjölmiðlum að slík ógnun hafi átt sér stað.

Og við hljótum að minnast þess þegar hæstv. utanrrh. Íslands talar um viðleitni Bandaríkjanna til að halda uppi lögum og reglu og vernda lýðræði, hvert er það lýðræði sem Bandaríkin búa þjóðum rómversku Ameríku, þeim þjóðum sem þau halda undir veldissprota sínum. Það hefur ekki farið mikið fyrir viðleitni til endurreisnar lýðræðisins í Guatemala eða El Salvador svo dæmi séu tekin.

Herra forseti. Ég ætla af minni hálfu ekki að lengja þessa umr. Það blasir við hvað gerst hefur. En afstöðuleysi íslensku ríkisstjórnarinnar í þessu máli fram til þessa er áhyggjuefni og ég lýsi enn eftir því að þessi afstaða þarf að koma fram, eindregin fordæming af hálfu íslenskra stjórnvalda gagnvart þeirri innrás, þeim brotum á alþjóðalögum sem hér hefur farið fram. Það eitt er ekki nóg að innrásarliðið víki, það á að vera sjálfsögð krafa. Við hljótum að fordæma verknaðinn.