21.02.1984
Sameinað þing: 54. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3019 í B-deild Alþingistíðinda. (2618)

107. mál, gjaldskrársvæði Pósts- og símamálastofnunar

Sveinn Jónsson:

Herra forseti. Hér er vissulega um að ræða till. sem er skref í rétta átt, en ég hefði þó gjarnan viljað sjá skrefið tekið stærra. Ég er ekki alveg sannfærður um að þær tæknilegu hindranir séu í vegi sem menn vilja vera láta fyrir því að svo megi verða að eitt gjaldskrársvæði falli undir hvert svæðisnúmer. Kostnaður yrði e.t.v. einhver samfara þeim breyting­um. Ég held að við ættum þó að reyna að yfirstíga hann svo að af breytingu þessari geti orðið. En ég vildi eftir sem áður sjá landið verða eitt gjaldskrársvæði og sama gjald gilda, sama hvaðan væri hringt og hvert á land sem væri. Þá fyrst væri tryggður nokkur jöfnuður þeirra sem á landsbyggðinni búa og hafa mátt búa við það um alla tíð sennilega að símakostnaður þeirra hefur verið langtum, langtum meiri en þeirra sem á þéttbýlissvæð­unum við Faxaflóa búa og hafa notið þess að vera í nánu nágrenni stjórnstöðva ríkisvaldsins. Þetta er kannske fjarlægur draumur og þó veit ég það ekki. Þetta er spurning um vilja fyrst og fremst-vilja þm. til að búa landsmönnum öllum sömu kjör.

Það er nokkuð sem hefur áunnist á undanförnum árum sem er í svipaða átt. Það er verðjöfnun á raforku í landinu. Það hefur nú m.a. áunnist að Landsvirkjun afhendir raforku á aðveitustöðvum um allt land á sama verði. Rafmagnsveiturnar dreifa því síðan til notenda. Því skyldi ekki ríkisfyrirtæki eins og Póstur og sími einnig geta boðið sínum notendum upp á að greiða sama verð fyrir afnot af þjónustu, eins og þegar hefur áunnist á sviði rafdreifingar?