27.10.1983
Sameinað þing: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í B-deild Alþingistíðinda. (262)

Umræður utan dagskrár

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Aðdragandi þeirra hörmulegu atburða sem verið hafa að gerast í smáríkinu Grenada nú að undanförnu er sá að bylting var gerð á þessari litlu eyju árið 1979 að ég hygg, marxísk bylting, vafalaust gegn spilltri ríkisstjórn, um það efast ég ekki. Þessir marxistar sem völdin tóku hófu uppbyggingu hins svokallaða sósíalíska þjóðskipulags og kölluðu til ráða m.a. kommúnistaforingjana á Kúbu og í Kreml. Smám saman varð þetta ríki að sjálfsögðu meira og minna sósíalískt og þessir svokölluðu ráðgjafar, rússnesku og kúbönsku, streymdu inn í landið og beittu sínum áhrifum þar eins og þeir auðvitað alls staðar gera.

Svo var komið fyrir nokkrum mánuðum eða kannske einu ári eða svo að leiðtogi þessara byltingarmanna, þessara marxisku byltingarmanna, var farinn að óttast um hag ríkisins. Honum fannst hin erlendu áhrif orðin allmikil. Hann fór í för til Bandaríkjanna, reyndi að leita að einhverju leyti trausts og halds hjá lýðræðisþjóðum, því hann var áreiðanlega farinn að ugga um hag lands síns og þjóðar, að þjóð hans kynni að lenda í sömu örlögum og sú kúbanska, sú tékkneska, sú pólska o.s.frv. Marxisti var hann engu að síður.

Þegar hér er komið þá grípa samstarfsmenn hans, sem tóku þátt í byltingunni, til þeirra ráða að leiða hann á völl og slátra honum, ásamt með utanrrh. og fleiri ráðh. og áhrifamönnum. Ég held að allir Íslendingar, a.m.k. allir alþm., ættu að geta sameinast um að fordæma þessa stórglæpi, þessa morðingja, þessa blóðhunda, sem myrða félaga sína og baráttuvini bara vegna þess að þeir geta ekki komið einræðinu og ofbeldinu nógu fljótt á. Það átti að hraða því meira.

Þetta fordæmum við öll. Hitt er svo alveg rétt að það er ömurlegt til þess að hugsa að stórveldið Bandaríkin skuli vera kallað til, — ég hygg að svo hafi verið, af bandalagsríkjum Grenada sex, til þess að aðstoða við að hindra frekari ofbeldisverk í því ríki, og að hindra það að erlendir ásóknarmenn taki öll völd í þessu litla ríki. Það er vissulega ömurlegt líka. Hvort menn vilja fordæma það, það er smekksatriði. Og við getum bara sett okkur í spor þessa fólks á Grenada. Við erum að vísu helmingi fleiri. Það er smekksatriði og ég endurtek það.

Og nú skutum við athuga þennan smekk, en ég skil nú ekki smekk Alþb. að láta einmitt þennan hv. þm. Hjörleif Guttormsson vera málsvara lýðræðis og þjóðfrelsis og nefna ClA á nafn. Var hann ekki einn af höfundum SlA-bókmenntanna? Er hann ekki einmitt skólaður í Austur-Þýskalandi? Hann kann þessar kúnstir. En sleppum því og honum. (HG: Við viljum gjarnan heyra meira um þetta.) sleppum því. (HG: Þú ert vel lesinn, er það ekki, hv. þm.?) Jú, ég hef lesið rauðu bókina mjög vel. En hitt skal ég játa fúslega að ég hef jafnlitla þekkingu, eða svona hér um bil jafnlitla þekkingu á málum í þessari fjarlægu eyju eins og þeir aðrir sem hér þykjast allt um það vita. En ég þykist vita þó að hjörtum manna svipi saman í Súdan og Grímsnesinu.

Og þá erum við komin að þessu sem ég ætlaði að fara að tala um. Setjum okkur í spor þessa fólks. Segjum svo að vinstri stjórnin, sem mynduð var hér 1979, hefði verið mynduð af marxistum, hreinum marxistum. Ekkert valdarán eða neitt slíkt. Marxistar hefðu náð hér völdum. Segjum svo að hún hefði verið við völd fram á þetta ár, fram á þennan tíma, og hún hefði verið að þjóðnýta hér allt, hún hefði kallað til 100 rússneska sérfræðinga eða 200 miðað við hlutfallið og tvö þúsund kúbanska til þess að aðstoða við málefnin. Síðan hefði það gerst einn daginn að þeim sem fannst ekki nógu hratt ganga að koma sósíalismanum á, kommúnismanum á, þessari dýrðarhugsjón sem við sjáum nú fyrir okkur á miklum hluta jarðarkringlunnar, — þá hefðu menn gert sér lítið fyrir og dregið forsrh., utanrrh. og nokkra aðra ráðh. fram og gengið með þá út á Austurvöll og skotið þá. Ég held að jafnvel ekki hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hefði mælt því bót. Og ég held að jafnvel hann hefði getað látið sér detta það í hug að bandalagsríki okkar, Norðurlöndin hin, hefðu gert eitthvað til þess að reyna að koma aftur á lýðfrelsi á Íslandi og hindra þessa glæpamenn í störfum sínum, jafnvel að senda okkur eitthvert fallhlífarlið.

Við skulum segja að Norðurlandaráð sé ekki hernaðarbandatag. Það er móralskt bandalag. Ég veit ekki hvað mörg ákvæði eru í bandalagi þessara ríkja þarna suður frá um hernaðaraðstoð, en bandalagið er myndað til að verja sjálfstæði allra þessara ríkja, hvers um sig. Menn geta sagt að þetta sé óverjandi. Ég sagði því að það væri smekksatriði hvort menn vildu telja þetta stórglæp. Stórglæpurinn var fyrst framinn. Ég tel þetta ömurlegt eins og ég byrjaði mál mitt á að segja. Þetta eru ömurlegar staðreyndir sem við stöndum frammi fyrir. Það er ljóst. En hitt er að mínu mati ekki höfuðglæpurinn, vegna þess að þetta er ekki ríki á þessari stundu. Það er engin ríkisstj. þar. Hálf ríkisstj. er búin að drepa hinn helminginn. Og menn vita ekki hvað hún ætlar að drepa marga. Og þetta er eitt af þessum bandalagsríkjum. Á ekki að stöðva þetta ofbeldi? — Ef það kostar ekki mannslíf, sem það kostar sárafá, að mér skilst. Eitt mannslíf er kannske jafnmikils virði og mörg.

Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hristir höfuðið. Og annar hv. þm. Alþb. sagði að þetta væri verra en þjóðarmorðið í Afganistan. Takið eftir því. En þessir menn eru alltaf að reyna að bera saman þar, sem við köllum réttargæstu lýðræðisríkja. (SJS: Reyndu að hafa rétt eftir úr því að þú ert að vitna í mann á annað borð.) Sagðirðu þetta ekki? Ég held að attur þingheimur hafi heyrt þetta. (HBl: Hann sagði það.)

Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri. Auðvitað er þetta hörmulegt og við getum sameinast um að samþykkja það að svona atburðir eru hörmulegir, mannkynið er nú bara einu sinni ekki betra en þetta. Og ég fel fyrri atburðinn hörmulegri en hinn síðari. Og það finnst mér ekki vera smekksatriði, hvort er hörmulegra.