21.02.1984
Sameinað þing: 54. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3024 í B-deild Alþingistíðinda. (2628)

194. mál, sameiginleg hagsmunamál Grænlendinga og Íslendinga

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. framsögumanni og fagna framkominni till., sem samþykkt á Alþingi styrkir mjög viðleitni ríkisstj. til að ná samningum við Grænlendinga um sameiginleg hagsmunamál.

Ég tel jafnframt rétt að gera í nokkrum orðum grein fyrir þeim afskiptum sem ég hef haft af þessum málum á undanförnum árum.

Skömmu eftir að ég tók við embætti sjútvrh. 1980 hafði ég samband við formann landsstjórnar Græn­lands, Jonathan Motzfeldt, og lýsti áhuga fyrir því að ræða við hann um sameiginleg hagsmunamál á sviði sjávarútvegsins. Það varð til þess að mér var boðið í hálfopinbera heimsókn til Grænlands og fór þangað haustið 1981. Ég ræddi þá ítarlega bæði við formann landsstjórnar, Jonathan Motzfeldt, og sömuleiðis Lars Emil Johansen sem fór og fer með atvinnumál í lands­stjórninni. Ég ræddi við þá um sameiginleg hags­munamál í verndun fiskistofna og nýtingu þeirra á svæðinu á milli Íslands og Grænlands og fór með töluverðar upplýsingar frá okkar fiskifræðingum um þá fiskstofna, um áætlaðan hámarksafrakstur þeirra o.s.frv. Ég lýsti þá einnig áhyggjum okkar út af veiðum Efnahagsbandalagsins, einkum á karfa, sem hafa verið mjög miklar á þessu svæði í nokkur ár.

Þessar viðræður voru að ýmsu leyti mjög gagnlegar. Greinilega kom fram hjá Grænlendingum að þeir vildu eiga samstarf við okkur á sviði fiskveiða og reyndar ekki síður á sviði fiskvinnslu og markaðsmála þó það falli ekki beinlínis undir það sem hér er kannske fyrst og fremst til umræðu.

Hins vegar kom mjög greinilega fram að áætlun þeirra um úrsögn úr Efnahagsbandalaginu væri nánast háð því að viðræður yrðu við Efnahagsbandalagið um tollfrjálsan aðgang að bandalaginu og fjárstyrk. Kom greinilega fram að þeir töldu sig mundu eiga mjög erfitt með ýmsar framkvæmdir og þróun mála á Grænlandi ef þeir misstu þann fjárhagsstyrk sem þeir hafa haft frá Efnahagsbandalaginu og fóru reyndar ekkert leynt með það að þeir mundu ræða við Efnahagsbandalagið um veiðar gegn því að þeir fengju tollfrjálsan aðgang og fjárhagsaðstoð. Þeir sögðu mér að um þetta væri víðtækara samkomulag en innan stjórnarflokksins á Grænlandi og töldu jafnvel að slíkt gæti orðið forsenda fyrir því að málið næði fram að ganga í þeirri atkvgr. sem síðar varð um það. Engu að síður lögðu þeir áherslu á að þeir vildu ræða við okkur um þau mál en töldu það vart tímabært fyrr en reynt hefði á viðræður við Efnahagsbandalagið. Ég tjáði þeim að ég hefði ástæðu til að óttast að Efnahagsbandalagið leitaði eftir víðtækum fiskveiðiheimildum og varaði við því.

Ég vil geta þess að að mínu undirlagi komu þrír úr landsstjórninni til Íslands s.l. vor. Það var fyrst og fremst til viðræðu um samgöngur við Grænland. Það voru Jonathan Motzfeldt og Lars Emil Johansen og svo sá sem fer með menntamálin hjá Grænlendingum. Þá gafst einnig tækifæri til að ræða þessi mál, að sjálfsögðu einnig óformlega, og kom þá fram að þeir mundu ræða við Efnahagsbandalagið um einhvers konar samning af svipuðu tagi og ég hef þegar rakið.

Þetta hefur nú komið fram. Þær viðræður hafa átt sér stað og ég vil taka undir það með mönnum að ég tel fyllstu ástæðu til að hafa áhyggjur af þeim niðurstöðum sem hafa orðið. Eftir því sem ég veit best er samið um veiðar Efnahagsbandalagsins á 57 880 lestum af karfa, 23 500 lestum af þorski og 4300 lestum af rækju. Þarna er um að ræða allan þann karfa sem Grænlend­ingar telja sjálfir að veiða megi á þeirra hafssvæði. Hins vegar er heildarþorskafli að þeirra mati töluvert meiri, eða um 53 þús. lestir, en heimild Efnahagsbandalagsins nær, eins og ég sagði, til 23 500 lesta. Gert er ráð fyrir því að Efnahagsbandalagið greiði 216 millj. danskra kr. fyrir þessar heimildir, þ.e. um 650 millj. ísl. kr., en jafnframt að Grænlendingar fái tollfrjálsan aðgang að Efnahagsbandalaginu.

Ég ræddi við Jonathan Motzfeldt nú í dag um þessi mál og lýsti fyrir honum áhyggjum okkar af þessum miklu veiðum. Jafnframt bundum við það fastmælum, sem var undirbúið fyrir nokkru, að við hittumst í Stokkhólmi á Norðurlandaráðsfundi en hann mun verða þar ásamt þremur öðrum meðlimum landsstjórn­arinnar.

Ég tel að síðan eigi í framhaldi af því að taka upp formlegar viðræður við Grænlendinga um þessi mál. Ég lít svo á að hér sé fremur um óformlegan fund að ræða, enda undirbúinn með stuttum fyrirvara og fyrst og fremst til þess að koma á formlegum viðræðum.

Ég vil jafnframt geta þess að í þeim viðræðum sem ég átti við Grænlendinga voru nefnd ýmis atriði sem gætu orðið þeim að liði. Ég nefni löndunarrétt hér á landi, rannsóknastarfsemi á þeirra svæði austan Grænlands, þjálfun á mönnum, bæði til fiskveiða og vinnslu, samstarf við framleiðendur sjávarafurða o.s.frv. Þessu var öllu mjög vel tekið og lýst áhuga á slíku. Til að staðfesta okkar vilja heimilaði ég sem sjútvrh. Græn­lendingum að athafna sig frá íslenskum höfnum og þeir hafa gert það. Hygg ég að þetta sé þriðja rækjuvertíðin sem þeir athafna sig frá Ísafirði, og er það þeim vitanlega ákaflega mikils virði því þeir eiga mjög erfitt með að stunda rækjuveiðar á milli Grænlands og Íslands án þess að hafa slíkar heimildir.

Rétt er að geta þess að við Íslendingar áttum og eigum reyndar enn í viðræðum við Efnahagsbandalagið um sameiginleg hagsmunamál á þessu svæði. Ég segi sameiginleg því Efnahagsbandalagið fer til næstu ára­móta með málefni Grænlendinga og því aðeins óform­lega unnt að ræða við þá þar til nú. Þeir viðræðufundir hafa orðið margir og valdið okkur verulegum vonbrigð­um. Virðist vera ákaflega lítill skilningur á sameigin­legum hagsmunum, hvað þá á nokkrum rétti okkar. Allar kröfur Efnahagsbandalagsins um hlutdeild í afla hafa verið langtum meiri en við höfum getað sætt okkur við. Þannig að segja má að upp úr þeim viðræðum hafi slitnað fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári og eru þær nú eingöngu bundnar við loðnuveiðar. Slíkur fundur fer fram á morgun og hinn daginn hér í Reykjavík, miðvikudag og fimmtudag.

Ég veit ekki hvort miklu er við þetta að bæta. En ég vil þó segja að ég held að mönnum verði að vera ljóst að Grænlendingar eru að stíga ákaflega erfitt skref með úrsögn sinni úr Efnahagsbandalaginu og mjög óljóst hvernig þeir ráða við þróun mála í sínu stóra landi með mjög takmarkaðar tekjur án erlendrar aðstoðar. Mér er tjáð að Danir muni áfram veita þeim aðstoð eins og þeir hafa gert en það hrekkur hvergi nærri til. Því verð ég að segja að mig undrar alls ekki út af fyrir sig að þeir hafi valið þennan kostinn, að selja í fimm ár, (samningurinn er gerður til fimm ára, Efnahagsbandalagið vildi fá hann til tíu ára).

Ég vil hins vegar undirstrika það, sem komið hefur fram bæði hjá framsögumanni og mér, að þarna er um mjög mikla sameiginlega hagsmuni að ræða. Ég endur­tek jafnframt að ég tel að þær samþykktir sem hafa verið gerðar um veiðiheimildir fyrir Efnahagsbanda­lagið séu allt of háar, t.d. í sambandi við karfann sé samningur um 57 880 lestir mjög óraunhæfur. En við verðum þó að minnast þess að við veiðum líka miklu meira en fiskifræðingar leggja til og við eigum erfitt með að gera þá kröfu til Grænlendinga að þeir dragi úr þessum veiðum án þess að draga þá einnig mjög úr eigin veiðum. Þetta er sameiginlegur stofn okkar og Færey­inga. Ekki hefur náðst nauðsynleg samstaða með þess­um þjóðum um takmörkun á karfaafla. Við getum ekki gert þá kröfu til einnar þjóðar að hún takmarki sinn afla ef við gerum það ekki sömuleiðis. Málið er því marg­slungnara en í fljótu bragði kann að líta út fyrir. En eins og ég hef sagt er mikilvægt að Alþingi lýsi sínum vilja í þessu máli og formlegar viðræður við Grænlendinga geti hafist sem fyrst. Og reyndar verða Færeyingar áreiðanlega að tengjast þeim viðræðum að einhverju leyti.