21.02.1984
Sameinað þing: 54. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3029 í B-deild Alþingistíðinda. (2631)
194. mál, sameiginleg hagsmunamál Grænlendinga og Íslendinga
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Ekki þarf að orðlengja að það voru vondar fréttir sem bárust í morgun af gerðum samningum milli Grænlendinga og Efnahagsbandalagsins um fiskveiðar í grænlenskri landhelgi. Þessi tíðindi kunna að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskan sjávarútveg.
Það var sannarlega ekki að ástæðulausu að tólf alþm. fluttu fyrir einni viku síðan till. þar sem lagt var til að Alþingi fæli ríkisstj. að kanna til fullnustu möguleika á samkomulagi við Grænlendinga um sameiginleg hagsmunamál, sérstaklega að því er snertir verndun fiskistofna og fiskveiðar. Þessa till. átti og þurfti að afgreiða með hraði og hún var tekin til umr. með afbrigðum s.l. þriðjudag, fyrir einni viku síðan, og gert ráð fyrir að hún yrði afgreidd úr Alþingi á fimmtudegi.
Ég hygg að það sé rétt sem hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson nefndi hér áðan að við Íslendingar höfum ekki gætt þess nægilega að brýna fyrir Grænlendingum sjónarmið okkar og hagsmuni í þessu sambandi ellegar benda á og reyna að semja um samstarf á þessu sviði. Og vafalaust má til sanns vegar færa að það ágæta frumkvæði sem í þessari till. felst hafi verið fullseint á ferðinni. Núna, einni viku síðar, liggur við að till. sé nokkuð seint á ferðinni til afgreiðslu, því að við erum búnir að missa af strætisvagninum hvað það snertir að ná einhverju samkomulagi við Grænlendinga um þessi mál. Þeir hafa þegar gert sína samninga við Efnahagsbandalagið.
Mér er ekki alveg ljóst hvers vegna till. var ekki afgreidd með þeim hraða sem ráð var fyrir gert þegar hún var flutt. Ekki kom fram í máli hv. formanns utanrmrn., Ólafs Jóhannessonar 9. þm. Reykv., hver væri ástæðan til þess að ekki varð af því að till. væri afgreidd s.l. fimmtudag. Ég vildi því spyrja hann hvernig á því standi.
Í öðru lagi finnst mér óhjákvæmilegt að fá nánari upplýsingar um það frá hv. talsmönnum ríkisstj. hvað gerst hefur í þessu máli af hálfu ríkisstj. frá því að fréttir bárust hingað til lands um að samningar væru í fullum gangi og viðræður milli Grænlendinga og Efnahagsbandalagins um þessi mál og þar til samningur var gerður.
Hæstv. forsrh. nefndi það hér áðan að hann hefði átt viðræður við ráðamenn á Grænlandi, þar á meðal helstu forsvarsmenn landsins, um þessi mál fyrir nokkrum árum. Og það var fróðlegt að fá þá skýrslu sem hann gaf hér áðan. Einnig var fróðlegt að heyra um samtal sem hann hafði átt við forustumenn Grænlendinga í dag. En hitt kom ekki fram hjá hæstv. ráðh., hvað aðhafst hefur verið í málinu undanfarna daga og undanfarnar vikur.
Hv. þm. Ólafur Jóhannesson tók svo til orða hér áðan að stjórnvöldum bæri að vinna að þessu máli, hvort heldur þáltill. væri samþykkt hér á Alþingi eða ekki. Ég er auðvitað alveg hjartanlega sammála honum um það. Ég tel einsýnt að ríkisstj. beri að hafa ákveðið frumkvæði í þessu máli, jafnvel þótt það dragist í nokkra daga að till. af þessu tagi sé hér samþykkt og þótt við stöndum nú frammi fyrir því að hún er á ferðinni nokkuð seint.
En ég vildi sem sagt spyrja hæstv. forsrh. eða hæstv. utanrrh. eftir atvikum — þeir verða að ákveða það hvor þeirra verður fyrir svörum í þessu efni — hvað ríkisstj. hefur aðhafst í þessu máli seinustu vikuna. Ég hygg að í ræðum hv. formanns utanrmn. og hæstv. forsrh. hafi ekki komið fram nægar upplýsingar um hvort við höfum algerlega setið aðgerðarlausir þessa viku sem liðið hefur eða hvort eitthvert frumkvæði hefur verið af hálfu ríkisstj.
Ég er ekki að fullyrða það, að unnt hefði verið með sterku frumkvæði ríkisstj. að koma í veg fyrir þessa samningsgerð, ég er ekki að fullyrða það. Mér þætti hins vegar fróðlegt að vita hvort ríkisstj. hefur haft eitthvert frumkvæði sem teljandi getur talist þessa seinustu vikuna. Óneitanlega erum við dálítið seinheppnir, alþm., að vera að samþykkja till. í dag um þetta efni, sama daginn og Grænlendingar hafa gert samning við Efnahagsbandalagið um málið.
En þrátt fyrir þessi orð mín má enginn skilja þau á þann veg að ég sé andvígur því að þessi till. verði samþykkt. Ég tel þörf á að samþykkja hana og að hún eigi fullan rétt á sér engu að síður. Þess vegna mæli ég mjög eindregið með því að hún verði afgreidd hér í dag.