21.02.1984
Sameinað þing: 54. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3041 í B-deild Alþingistíðinda. (2639)
194. mál, sameiginleg hagsmunamál Grænlendinga og Íslendinga
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Ég skal verða við tilmælum forseta og reyna að hafa orð mín ekki mjög mörg en mér virðist samt að það breyti ekki ýkja miklu úr því sem komið er hvort ályktun í þessu máli er gerð í dag eða á morgun og raunar miklu eðlilegra að álykta um þetta efni á fullskipuðum fundi.
Ég kemst ekki hjá því áður en umr. lýkur að vekja athygli á því að samkomulag var um það þegar till. var flutt að hún yrði afgreidd með hraði og að hún kæmi til afgreiðslu hér í Sþ. s.l. fimmtudag. Hins vegar mun það vera staðreynd að utanrmn. kom ekki saman fyrr en s.l. mánudag. Ég vil sem sagt ósköp einfaldlega benda á að fyrirspurn minni um þetta efni hefur ekki verið svarað hér í umr. og það er óútskýrt hvers vegna þessi dráttur hefur orðið.
Ég spurðist einnig fyrir um hvaða aðgerðir hæstv. ríkisstj. hefði haft í frammi til að ræða þessi mál við Grænlendinga frá því að fréttir bárust af því að yfirvofandi væru samningaviðræður milli Efnahagsbandalagsins og forustumanna Grænlendinga. Í ræðu sinni hér áðan gat hæstv. forsrh. þess að reynt hefði verið að ná sambandi við Motzfeldt, forustumann Grænlendinga, en ekki hefði tekist að ná sambandi við hann. Hins vegar kom fram fyrr í umr. að fulltrúar ríkisstj. og ráðh. hennar — þá fyrst og fremst forsrh. og hæstv. utanrrh. — hafa stefnt á fundi með Grænlendingum í tengslum við væntanlegan fund Norðurlandaráðs.
Ég er alls ekki að fullyrða að fundur með Íslendingum og forustumönnum Grænlendinga hefði gerbreytt stöðu þessa máls en ég er hins vegar ekki alveg sömu skoðunar og hæstv. sjútvrh. Halldór Ásgrímsson sem virðist vera þeirrar forlagatrúar að það hefði örugglega engu getað breytt. Ég get sem sagt ekki útilokað það með öllu að það hefði einhverju getað breytt ef hv. utanrmn. hefði verið örlítið snarari í snúningum og ef hæstv. ríkisstj. hefði tekist að ná fram viðræðum meðal forustumanna Grænlendinga.