21.02.1984
Sameinað þing: 54. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3042 í B-deild Alþingistíðinda. (2640)

194. mál, sameiginleg hagsmunamál Grænlendinga og Íslendinga

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég vil lýsa yfir stuðningi við þá þáltill. sem hér er til umr. en ég harma þá afstöðu sem virðist koma fram í umr. til Grænlend­inga. Ég vil minna á að þegar Íslendingar voru að stíga hliðstæð spor og Grænlendingar eru að stíga í dag rétt eftir 1900 var samið til 50 ára um fiskveiðar við Island og gjaldið sem greitt var kom aldrei í vasa Íslendinga heldur var það gjald sem auðveldaði fyrir viðskiptum hjá Dönum á fleski og smjöri til Bretlands. Við skulum fagna því að þessi fátæka þjóð hér fyrir norðan okkur fær þó greiðslur í dag, betri kjör en við áttum kost á á sínum tíma. Við skulum gera okkur grein fyrir því að það er í alla staði eðlilegt að þeir reyni að ná samning­um um sína lífshagsmuni og þeir hafa náð samningum. Það sem við þurfum aftur á móti að vera menn til að gera og nota næstu fimm ár til er að auðvelda Græn­lendingum að nytja það hafsvæði sem er fyrir austan Grænland frá íslenskum höfnum. Gjaldið sem við förum fram á fyrir það hlýtur aðeins að vera eitt, það er að þeir virði fiskfriðunarsjónarmið á þessu hafsvæði og stundi ekki rányrkju. En ég vil undirstrika það að við megum ekki vera svo þröngsýnir að við gerum okkur ekki grein fyrir því að það hlýtur þrátt fyrir allt að vera merkilegur viðburður þegar þessi samningur er gerður hjá Grænlendingum. Þessi þjóð, nýlendan, eygir fram á möguleika til sjálfstæðis. Við skulum fagna því sem fyrrverandi nýlenda, minnugir þess hvað það færði okkur og vona og óska að það færi þeim jafn mikið.