22.02.1984
Sameinað þing: 55. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3045 í B-deild Alþingistíðinda. (2647)

Um þingsköp

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Hæstv. forsrh. getur ekki skotið sér undan þeirri staðreynd, að hvorki hann né hæstv. utanrrh. höfðu uppi hérlendis eða erlendis á þeim tíma sem liðinn var frá því að þessi till. var lögð fram og þar til þeir atburðir gerðust sem okkur eru kunnugir, aðgerðir sem gæfu til kynna að ríkisstjórn Íslands og Alþingi teldu þetta brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar.

Hæstv. forsrh. er þekktur að því að leggja land undir fót að minna tilefni og sækja heim viðræðuaðila, ef hann telur að slíkt sé nauðsynlegt. Það var ekki gert í þessu tilviki og það gerði hæstv. utanrrh. ekki heldur. Það kom ekki fram í umr. í gær nein staðfesting á því, að þessir tveir hæstv. ráðh. hefðu tekið málið þeim tökum sem gæfu til kynna að þeir gerðu sér grein fyrir því í verki, að hér væri verið að takast á við eitt brýnasta hagsmunamál Íslendinga. Þeir töldu sér greinilega trú um að málið væri með þeim hætti að þeir gætu látið hjá líða að veita því þann þunga. Það er alveg óhjákvæmi­legt að við, sem eigum nú að greiða því atkv. hér á Alþingi að ríkisstj. taki málið áfram í sínar hendur, gerum það með þeim fyrirvara sem samviska okkar býður.

Það er ekki hægt að líta fram hjá því, þó að ég skilji vel að hæstv. forsrh. vilji fela þá staðreynd hér í þingsölum, að hann brást skyldu sinni sem forsrh. þjóðarinnar. Og hæstv. utanrrh. brást líka skyldu sinni sem utanrrh. þjóðarinnar í þessu efni. Það er skiljanlegt að þeir vilji fela slíka staðreynd og kveinki sér við því að á hana sé minnst hér í þingsölum. Hún stendur hins vegar eftir og það er alveg ljóst að um langa framtíð mun verða spurt að því, hvað forsrh. Íslands hafi verið að gera þessa daga og hvað utanrrh. Íslands hafi verið að gera þessa daga.

Ég ætla ekki að gera það mál nánar að umræðuefni hér. Það má þó, hæstv. forseti, vitna í — (Forseti hringir.) Ég er að ljúka máli mínu með einni setningu. (Forseti: Ég vil taka fram að þegar menn óska eftir, að ræða um þingsköp ber mönnum að ræða um þingsköp en ekki efnisatriði máls.) Ég vona að hæstv. forseti komi þeim ábendingum á framfæri við hæstv. forsrh. einnig. (Forsrh.: Hann er búinn að gera það.) Ég var að ljúka máli mínu með því að geta þess, að það var greinilegt af ræðu hæstv. utanrrh. hér í gær að hann hafði séð ýmsa meinbugi á því að taka þetta mál þeim föstu tökum sem nauðsynlegt var.